Víðförli - 01.10.2001, Blaðsíða 6

Víðförli - 01.10.2001, Blaðsíða 6
6 VIÐFORLI 20. ARG. 7. TBL. Upphaf vetrarstarfs í söfnuðum landsins Opnar dyr Bréf úr ísafjarðarprestakalli Dag einn í byrjun september stóð ég fyrir utan gluggann á safnaðarheimilinu og dáðist að auglýsingum sem ég hafði gert í tölvunni og fest þar upp. I auglýsingunum var sagt frá kirkjuskólanum og tíu til tólf ára starfinu. Þá var slegið á öxlina á mér. Við hliðina á mér stóð flóttamaður frá E1 Salvador, Pablo Dias að nafni, en hann er nýkominn til Is- lands ásamt fjölskyldu sinni og hefur í sumar unnið við að helluleggja hringtorgið fyrir framan ísafjarðarkirkju. „Nin- jos, ninjos," sagði maðurinn við mig og benti á auglýsing- una um kirkjuskólann. Svo kom heljarinnar romsa á spænsku sem ég skildi ekki bofs í. Svona til að sýnast kurt- eis þá kinkaði ég kolli og sagði: „Si!“ Þá kom önnur romsa og skildi ég þar orðin „Domingo“ og „Christus". Síðan hlógum við báðir. Astæða þessarar reynslusögu er sú að barnastarf kirkj- unnar er líklega sá þátturinn í starfi kirkjunnar sem er flestum opinn. Eg sé það í starfinu á ísafirði að það er einmitt í kirkjuskólanum sem Tælendingarnir og aðrir út- lendingar koma með börnin sín og mynda þannig fyrstu tengslin við kirkjuna, enda er barnaefnið fyrir kirkjuskóL ann einstaklega gott og vandað. Þetta er lfflegt efni með sögum, brúðuleikritum og alls kyns hugmyndum. Þá hefur verið gefin út vönduð söngbók með hreyfisöngvum og söngvum á táknmáli - og meira að segja lærðum við að syngja svolítið á swahílí á seinasta barnastarfsnámskeiði. Með efninu koma ítarlegar kennsluleiðbeiningar sem hafa auðveldað prestum að fá til liðs við sig í starfinu kennara og aðra þá sem hafa áhuga á börnum. Leiðbeiningarnar eru öðrum þræði fræðsluefni fyrir þessa leikmenn og þannig er kirkjan í leiðinni að sinna ákveðinni leiðtoga- fræðslu. Barnastarfið er í mínum huga eins og dyrnar að kirkj - unni. Barnastarfið er oft fyrsta skrefið í því að laða fólk inn í kirkjuna og gera það heimavant þar. Höfundar bamaefn- isins eiga hrós skilið fyrir gott efni. Magnús Erlingsson Sæl verið þið öll! Bréf úr Sauðárkróksprestakalli Víðförli hittir ykkur vonandi með bros á vör. Vetrarstarfið hér í Sauðárkróksprestakalli er að hefjast nú í vikunni, 23.- 30. september. Oneitanlega er það svolítið skrítið að vera að dreifa í hús blaði þar sem fram koma upplýsingar um messuhald og fleiri notalegheit fram að jólum og sumarið varla yfirstaðið. Veðrið er milt og gott enda alltaf gott veð- ur hér fyrir norðan líkt og alþjóð veit. Klúbbar fyrir börnin og unglingana, fermingarfræðsla, vikulegar kvöldmessur með altarisgöngu, 12-spora hópur kvenna, foreldrasíðdegi, föndur eldri borgara, gospelkórinn og barnakórinn - allt þetta er að fara í gang. Öll komum við endurnærð til starfa og höfum margt að segja hvert öðru af ævintýrum sumars- ins. Kirkjukórinn okkar fór sem dæmi til Ítalíu í afar við- burðarríkt ferðalag og ég fór til Bandaríkjanna í vel heppn- aða námsferð. Já, það er margt spennandi hér á seyði. Við búum afar vel hér í bæ að áhugasömu fagfólki á mörgum sviðum er skarast við starf kirkjunnar. Ég hef undanfarin ár lagt í það nokkra vinnu að efla samstarf kirkjunnar við ýmsa aðila. Það hefur ekki aðeins verið skemmtilegt og eflt tengslin við samstarfsfólkið í bænum, heldur hefur þetta samstarf nú þegar borið nokkurn ávöxt. Sem dæmi má nefna nokk- ur samstarfsverkefni sem ég má til með að segja ykkur frá. Sauðárkrókskirkja, Sveitarfélagið Skagafjörður, Skaga- fjarðardeild RKÍ, lögregla, Verkalýðsfélagið Aldan og FjöL brautaskóli Norðurlands vestra hafa sameinast um það markmið að styðja við vímulausa unglingamenningu. Við höfum ráðið til okkar verkefnisstjóra og látum okkur nú dreyma með unglingunum um opnun menningarhúss ungs fólks, e.t.v. í líkingu við Apótekið á ísafirði. Gaman verður að sjá hvað gerist í því máli. Ekki er síður áhugavert samstarf Sauðárkrókskirkju og RKÍ um heimsóknarþjónustu. Sjálfboðaliðar hafa nýlokið námskeiði og munu fyrstu heimsóknarvinirnir og vinkon- urnar halda af stað í næstu viku og knýja dyra hjá gestgjöf- um sínum. Samstarf hófst síðasta vetur við Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki um að koma á fót sjálfshandleiðsluhópum meðal hjúkrunarfræðinga á stofnuninni. Fyrstu hóparnir eru að hefja störf og lofa góðu. Afar gott samstarf hefur verið við lögregluliðið hér í bæ og sýslumanninn sem hefur skilað sér m.a. í námskeiðs- haldi um félagastuðning. Af þessu má sjá að kvíði fyrir komandi vetri ætti með góðu rnóti að fjúka hér langt út á fjörð og í staðinn að ríkja gleði yfir því að fá í fermingar- fræðslu börn sem hafa verið virk í tfu til tólf ára starfi und- anfarin þrjú ár. Og því að finna hversu vikulegar kvöld- messur eru vel þegnar og eru orðnar ómissandi hluti helgihaldsins eftir aðeins þrjú ár. Já, svo má ég ekki gleyma því heldur að við höfum eignast vinasöfnuð. Háteigssöfn- uður bauð okkur að messa á kirkjudögum, svo nú er komið að þeim að endurgjalda heimsóknina þann 14. október. Þá munu Króksarar geta barið augum fyrrum sóknarprest og hlýtt á Ijúfa tóna úr börkum Háteigskirkjukórs. Hvað get ég nú sagt ykkur fleira? Jú, messuhald verður með svipuðum hætti á Skaga og segjast verður að ekki er þjónustan nógu góð við þessar fá- mennu sóknir. Ég veit ekki hvort að talningsguðfræðin al- ræmda hefur náð tökum á mér eða ekki. En það er nú alltaf eitthvað sem færa þarf í betra horf og er það verkefni sem þarf að leysa. Ég hef alla vega ákveðið að vera með sól í sinni sama hvað norðangarranum líður. Einsetinn skóli og undra dug- leg rússnesk íþróttakona (au-pair stúlkan!) munu hjálpast

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.