Víðförli - 01.10.2001, Blaðsíða 4

Víðförli - 01.10.2001, Blaðsíða 4
4 VÍÐFÖRLI 20. ÁRG. 7. TBL. Kirkjuþing að sænskum sið Sænska kirkjan hefur fengið talsvert rými í fjölmiðlum nú í haust. í september var kosið til kirkjuþings og voru þær kosningar um margt kirkjusögulegar. Sænska kirkjan sá í fyrsta skipti sjálf um alla framkvæmdina, en hún hafði rúmu ári fyrr tekið við stjórn allra sinna mála úr hendi hins opinbera. Allir sem skráðir eru í sænsku kirkjuna hafa kosningarétt en hlutfall meðlima mun vera svipað og á Is- landi. Auk kirkjuþingskosninga var kosið til sóknarnefnda og ýmissa annarra trúnaðarstarfa innan kirkjunnar. Alls voru um 100.000 manns á framboði til margvíslegra emb- ætta innan kirkjunnar. Kosningarnar byggjast upp með sama hætti og val til þings þar sem valið er á milli lista. Jafhffamt bjóða helstu stjórnmálaflokkarnir fram svo tengingin við stjórnlaga- þingið verður enn ljósari. Að þessu sinni gátu kjósendur valið á milli 17 lista, bæði á vegum stjórnmálaflokkanna og einnig svokallaðra „ópólitískra" kirkjulista. Þetta form má rekja til eftirstríðsáranna. Eðlilegt þótti að þjóðin fengi að stýra málefnum kirkjunnar og velja þá sem mörkuðu stefnu hennar. Kirkjan var jafnframt ríkiskirkja og var því litið til hins pólitíska kerfis að fyrirmynd þegar finna átti meirihluta þjóðarinnar. Frá þeim tíma hafa stjórnmála- flokkarnir mótað stefnu kirkjunnar á þessum vettvangi. Nú er komin hálfrar aldar reynsla á þetta fyrirkomulag, kosti þess og galla. Augljóslega hefur það haft það í för með sér að kirkjan hefur verið í nánari tengslum við þjóðlífið og völd leikmanna ættu að vera nokkuð vel tryggð. Flokkarnir leggja fram ákveðna stefnuskrá og verður því valið mun gegnsærra en þegar kosið er á milli einstaklinga. Fólk á að geta kosið í samræmi við þær væntingar sem það hefur til kirkjunnar. Ennfremur gefa kosningar tilefni til að ræða einstaka málaflokka og leggja svo undir atkvæði. Sem dæmi um þetta má nefna deiluna um það hvort vígja eigi konur til prestsembætta innan kirkjunnar. Hér rétt norðan við Gautaborg, í Bohus-léni, hafa andstæðingar kvenpresta verið háværir í gegnum tíðina. Þar urðu málefni kven- presta eitt af „kosningamálunum" og náði flokkur einn, er berst fyrir réttindum kvenpresta, góðu fylgi. Þarna gáfu kosningarnar fólki sem ef til vill stendur ekki fremst í flokki í sóknarnefndum og kirkjulegri pólitík kost á að taka afstöðu f tilteknu hitamáli. Þessu fyrirkomulagi er fyrst og fremst ætlað að viðhalda lýðræði innan kirkjunnar og er ofangreint dæmi til marks um að sú viðleitni getur borið raunhæfan árangur. Á því eru hins vegar einnig annmarkar og raunar svo miklir að draga má t efa hvort kosningarnar séu jafn lýð- ræðislegar og þeim er ætlað að vera. Fram að síðustu kosn- ingum hefur þátttaka sjaldan farið yfir 10% svo það býður þeirri hættu heim að fámennir öfgahópar geti komist til áhrifa. Sú varð og raunin í síðustu kosningum en þá bauð Sænski lýðræðisflokkurinn fram lista. Flokkur þessi er lengst til hægri í pólitíkinni og hefur það á stefnuskrá sinni í kirkjupólitík að færa ásýnd sænsku kirkjunnar aftur til þess horfs er var áður en fólk úr annarri menningu tók að setjast hér að í ríkum mæli. Margir óttuðust að flokkur þessi kæmi hópi fólks inn á kirkjuþing og gæti því haft áhrif á stefnu kirkjunnar í ýmsum mikilvægum málaflokk- um, svo sem á sviði siðferðis og samskipta við hópa inn- flytjenda. Af annarri gagnrýni má nefna að eftir að kirkjan hefur verið aðskilin frá ríkinu þykir óeðlilegt að hún skuli vera jafn bundin í klafa hefðbundinna stjórnmála sem raun ber vitni. Loks eru kosningar þessar mikið fyrirtæki og á mörkum þess að vera mögulegar fyrir sjálfstætt starfandi trúfélag. Samkvæmt upplýsingum í málgagni kirkjunnar, Kyrltans tidning, kostuðu síðustu kosningar um 150 milljónir sænskra króna, sem er helmingi meira en í fyrra þegar hér- aðs' og sveitarstjórnir önnuðust verkefnið. Vafalaust hefði mátt verja hluta þeirra fjármuna til brýnni verkefna. Um 80% atkvæðisbærra Svía höfðu svo kost á því að ganga að kjörborðinu þann 16. september og hafa sín áhrif á stefnu kirkjunnar. Alls greiddu 14% þeirra atkvæði sitt sem er með allra mesta móti. Fjölmiðlar eru sammála um að kirkjan megi vel við una með þátttökuna og ekki síður að téður lýðræðisflokkur fékk aðeins tvo menn af 251 á þingið. Kirkjan getur líklega þakkað þeim flokki þessa góðu kjörsókn því menn voru uggandi um að hann fengi stóran hluta atkvæðanna. Sænska kirkjan beitir mjög dýrri og flókinni aðferð til þess að velja sér fólk til forystu. Aðferðin er að sama skapi djörf og má færa rök fyrir sú hugdirfska sé óraunhæf. Ára- tuga reynsla sýnir að aðeins 10-15% kosningabærra nýta atkvæðisrétt sinn og þótt kirkjan megi ef til vill vel við una að fá slíkt fylgi í almennum kosningum er það þó undir þeim mörkum sem ættu að veita réttan þverskurð af áhuga og vilja þeirra sem henni er ætlað að þjóna. Því hlýtur að koma að þvf kirkjan taki að leita að einfaldara og ódýrara fyrirkomulagi. Skúli S. Olafsson, prestur Islendinga í Svíþjóð Nýr erkibiskup bandarískra lútherana Evangelískdútherska kirkjan í Bandaríkjunum hefur fengið nýjan biskup til forystu. Reyndar tala lútheranar þar vestra ekki um forystubiskup heldur forsætisbiskup. Mark S. Hanson hefur tekið við af George Anderson, sem veitt hefur ELCA forystu síðustu ár. Anderson var m.a. á Islandi á kristnihátíð og tók þátt í ráðstefnunni „Framtíðartrú: Trú og vísindi" sem haldin var í júlí 2001. Hinn nýi biskup, Mark S. Hanson, var settur í embætti 6. október sl. Sigurður Árni Þórðarson

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.