Víðförli - 01.10.2001, Blaðsíða 11

Víðförli - 01.10.2001, Blaðsíða 11
OKTÓBER 2001 VIÐFORLI ll Virðingarleysi ríkir í miðbæ Reykjavíkur Dagur virðingar - málþing í ráðhúsinu Nú er nóg komið! Virðing er hátíðlegt orð en virðingarleysi fékk samstarfs- hópinn Betri borg til að halda málþing í Ráðhúsi Reykja- vfkur 24. september sl. undir yfirskriftinni „Virðing og virðingarleysi á degi virðingar“. Þau berja í borðið og segja: „Nú er nóg komið. Eitthvað verður að gerast, við viljum breyta virðingarleysinu sem ríkir í miðbæ Reykjavíkur. Hjálpumst að og setjum virðingarleysinu mörk!“ Stuttmynd Helenu Stefánsdóttur dró upp dapurlega mynd af tengslaleysi í fjölskyldu þar sem einstaklingarnir sýna hvert öðru hvorki virðingu né kærleika. Þar er gullna reglan ekki virt, en sr. Jóna Hrönn Bolladóttir dró hana fram sem grundvöll mannskilnings okkar. I raun má segja að þessi regla hafi svifið yfir ráðstefnunni en hugsunin var klædd í ýmsan búning. Guðmundur Andri Thorsson sagði t.d. að við þyrftum að líta á annað fólk sem jafningja og geta sett okkur í spor annarra. Það bentu einnig Antoinette Gyedu og Guðmundur Magnússon á. Hún er innflytjandi og hann er bundinn hjólastól. Sjálfsálit okkar felst að hluta til í hvað öðrum finnst um okkur og hvernig okkur tekst að komast inni í hús þar sem tröppur virðast vera til að stía fólki í sundur. Antoinette er frá Ghana og það var mikill fögnuður þegar hún sagðist stefna að því að verða fyrsta þeldökka manneskjan á Grund! Margir komu með lifandi dæmi um virðingarleysi og var saga Arna Gunnlaugssonar sláandi. Hann gekk fram á brennivínsdauðan útigangsmann sem margir höfðu séð en ekkert gert fyrir. Uti var kalt og honum fannst rétt að hringja á lögregluna og það gerði hann en öðrum nærstöddum fannst það ekki ómaksins vert. Flosi Ólafsson taldi virðingarleysið í miðborginni stafa af því að hún væri ekki heima fyrir fólkið sem þar færi um berjandi og skemmandi. En einhvers staðar yrði íslenska þjóðin að fá útrás fyrir virðingarleysið! Mesta athygli mína vakti Sigrún Þorsteinsdóttir grunn- skólanemandi. Hún var vel máli farin og sagði frá sam- skiptum unglinga við fullorðna. Þau samskipti lýstu ekki virðingu fullorðinna gagnvart unglingum og ósjálfrátt spyr maður sig: „Hvernig eiga unglingar að læra virðingu ef þeim er ekki sýnd virðing?“ Andardráttur Elísabetar Jökulsdóttur var snjall. Hún taldi mikilvægt að allir ættu eitthvað sameiginlegt og lét ráðstefnugesti draga andann í sameiningu og kallaði hann „hinn virðingarverða andardrátt“. Að lokum las Helga Kolbeinsdóttir upp frumsamið ljóð sem snerti alla djúpt. Ljóðið heitir Afganistan og fjallar um hörmungar og virðingarleysi stríðs sem rænir venjulegt fólk virðingarverðri framtíð. Betri borg samanstendur af fulltrúum frá Félagsþjónust- unni í Reykjavík, Foreldrahúsinu / Vímulausri æsku, Hinu húsinu, Iþrótta' og tómstundaráði Reykjavíkur, lögreglu- stjóraembættinu, Miðbæjarstarfi KFUM og K, Rauðakross- húsinu, Samhjálp og Ungmennadeild Reykjavíkurdeildar Rauða krossins. Fulltrúar Betri borgar vildu vekja athygli á nauðsyn þess að við vöndum framkomu okkar hvert við annað. Degi virðingar var líkt við slysalausan dag í umferð- inni. Bent var á mikilvægi þess að hafa slysalausan dag í samskiptum við hvert annað. Ragnheiður Sverrisdóttir Tómasarguðspjall komið út í íslenskri þýðingu Tómasarguðspjall - orð Jesú sjálfs og annarra Tómasarguðspjall í íslenskri þýðingu Jóns Ma. Ásgeirssonar er komið út í útgáfuröð Lærdómsrita Bókmenntafélagsins. Jón Ma. Ásgeirsson ritar einnig inngang og skýringar. Einn merkasti handritafundur 20. aldar varð árið 1945 nærri bænum Nag Hammadi í Suður-Egyptalandi, skammt undan klettagarðinum JabaLal Tarif. Á meðal papírusar- bókanna sem þar litu dagsins ljós var Tómasarguðspjall sem hafði verið horfið sjónum manna allt frá því á fjórðu öld, að talið er. Ekkert þessara annars merku handrita, sem þama fund- ust, hafa vakið jafn mikla athygli sem Tómasarguðspjall, en í því er að finna orð Jesú sjálfs og þeirra sem þegar á fyrstu öld tóku að túlka þau í heimspekilega átt. Þessa frásögn af lífi og örlögum Jesú er ekki að finna í guðspjöllum Nýja testamentisins. Ritið geymir upprunalegustu hefðir, ýmis ummæli og dæmisögur sem eignaðar eru Jesú frá Nasaret í Galíleu, margt sem aðeins á sér hliðstæður í elstu heimild- um að baki guðspjalla Nýja testamentisins eins og við þekkjum það nú. I ritum kirkjufeðranna svokölluðu er að finna margar tilvísanir til rita sem ekki hafa varðveist, en eru aðeins þekkt á okkar dögum af titlinum einum. Tómasarguðspjall er nú ómissandi þáttur í því að rekja sögu hins sögulega Jesú og þeirra sem fyrstir tóku að túlka orð hans og verk á fyrstu áratugum hins kristna tímatals, enda hefur fundur handritanna leitt til rannsókna á uppruna kirkjunnar, sögu frumkristninnar út frá forsendum sem ekki voru kunnar sérfræðingum á sviði guðfræði. Það fer vel á því að á merkum tímamótum, á 31. útgáfu- ári Lærdómsrita Bókmenntafélagsins, skuli Tómasarguð- spjall verða 50. ritið í bókaflokknum. Jafnframt er útgef- andinn 185 ára. Bókin fæst í Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31, og kostar 2.390 kr.

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.