Víðförli - 01.10.2001, Side 5
OKTÓBER 2001
VÍÐFÖRLI
5
Velkomin til Skálholts
Víðförli bað sr. Bernharð Guðmundsson, nýráðinn rektor Skál-
holtsskóla, fræðslu- og menningarsetri kirkjunnar, að segja frá
fyrstu vikunum í nýju starfi.
Hveitibrauðsdagarnir í nýju starfi líða fljótt því að það
tekur tíma að verða sæmilega hagvanur og tileinka sér
heildarsýn yfir starfsemina. Það hefur verið gott að koma
til Skálholts, ekki síst fyrir viðskilnaðar- og viðtökufund
sem skólaráðið gekkst fyrir. Fráfarandi rektorar, sr. Kristján
Valur Ingólfsson og dr. Pétur Pétursson, settur rektor síð-
ustu tveggja ára, skiluðu boðhlaupskeflinu í hendur nýs
rektors sem er nú að hefja sinn áfanga í hlaupinu, reynir að
missa ekki keflið, ná sæmilegu skriði og komast í mark!
Staðarkynning
Fyrstu vikurnar hafa farið í markaðsstarf og sérstaklega litið
til virku daganna sem ekki hefur reynst auðvelt að nýta í
Skálholti. Hef ég því heimsótt um 30 félagasamtök launa-
fólks og stofnanir, sérstaklega innan atvinnulífsins, kynnt
aðstæður í Skálholti og boðið samvinnu um námskeið,
starfsdaga o.þ.h. þar sem staðarkynning og helgihald kirkj-
unnar væri innan dagskrár. Slík samvinna fæli í sér nokk-
urt samtal milli kirkjunnar og samfélagsins og gæti leitt til
frekara samstarfs. I kynningunni hefur verið lögð áhersla á
sérleik staðarins, kyrrð hans, sögulegt umhverfi og hina
trúarlegu vídd sem felur í sér að ekki hentar öll starfsemi
þar. Móttökur þessara aðila hafa verið góðar og hefur kom-
ið fram að Skálholt henti vel til þess að hýsa skipulagsdaga
og starfslokanámskeið fyrir fólk sem er enn í vinnu eða ný-
komið á eftirlaun. Verulegs árangurs er ekki að vænta fyrr
en á næsta ári, slík starfsemi er skipulögð fram í tímann en
nokkur árangur er þó þegar sýnilegur.
Eldri borgarar og önnur þau sem ekki eru bundin í
vinnu eru einnig markhópur okkar í þessu kynningarstarfi.
Skipulagðir hafa verið fræðsludagar í Skálholti með Sam-
bandi eldri borgara og verður fyrsta samveran í októberlok.
Hér er um að ræða þriggja daga dvöl og verða áhugaverð
umræðuefni til umfjöllunar dag hvem undir leiðsögn
kunnáttumanna. Ef þessi tilraun tekst vel verður haldið
áfram á sömu braut og jafnvel með öðrum formerkjum líka,
söngdagar, leiklistardagar o.s.frv.
Kynningarstarfið hefur einnig beinst að erlendum aðil-
um, Alkirkjuráðinu og Lútherska heimssambandinu, nor-
rænum kirkjusamtökum og lýðháskólahreyfingu, sem þegar
hafa brugðist við. Heimsóknir erlendra hópa þyrfti að
tengja íslensku kirkjulífi á einhvern hátt. Það er til gagns
fyrir báða aðila.
Flestar helgar bókaðar fram á aðventu
Rætt hefur verið við ýmsa kirkjulega aðila um nýtingu
Skálholts, en bókunarlistar sýna að þar mætti vera miklu
meira samstarf. Hefur sérstaklega verið hvatt til að halda
símenntunarnámskeið fyrir launað starfsfólk stærri safnaða
í vikubyrjun og starfsfundi og samveru sóknarnefnda í
vikulok. Svörun er allgóð og eru nú flestar helgar bókaðar
fram á aðventu. Þær sóknarnefndir sem þegar hafa átt slfk-
ar samverur í Skálholti telja það afar góða fjárfestingu,
samstarf og áhugi fólks eflist mjög við slíka dvöl. Samvinna
hefur tekist með þeim aðilum kirkjunnar sem einnig ann-
ast fullorðinnafræðslu, þ.e. Leikmannaskólanum og
fræðslusviði biskupsstofu, um nýtingu Skálholtsskóla og
aðra verkaskiptingu. Einnig hefur verið rætt óformlega við
forystu Löngumýrarskóla.
Námskeið fyrir nágrannasveitir
Þá er að hefjast samstarf við næsta nágrenni. Biskups-
tungnahreppur, Búnaðarsamband Suðurlands og Skálholts-
skóli efna til grunnnámskeiðs í tölvunotkun og er mark-
hópurinn þau sem mega teljast tölvufælin og gætu þess
vegna einangrast á vissan hátt. Siðfræði tölvunotkunar
verður þar á dagskrá og áhrif tölvu á hversdagslífið til um-
ræðu, auk verklegra æfinga að sjálfsögðu! Ef vel tekst til
verða fleiri slík námskeið í boði fyrir fólk í uppsveitum
Árnessýslu. Árnesprófastsdæmi áformar ýmis námskeið á
næstu mánuðum í Skálholti, m.a. fyrir ung hjón sem og
fyrir fermingarbörn og hugsanlega meðhjálpara, eins og
áður hefur verið gert með mjög góðum árangri.
Samstarf við Háskóla Islands, sem fyrri rektorar hafa
þróað undanfarin ár, heldur áfram og verður guðfræðideild
ítrekað með stúdentahópa nú á haustmánuðum og einnig
verkfræðideild. Siðfræðistofnun er að undirbúa málþing í
samvinnu við Skálholtsskóla.
Þegar fjárhagur Skálholtsskóla hefur batnað má fara að
huga meira að eigin frumkvæði í dagskrá skólans. Það
verður að sjálfsögðu innan þess ramma sem þegar hefur
verið mótaður enda hefur hér verið fjölbreytt starf á und-
anförnum árum. Sérstök áhersla verður á kyrrðardaga og
væntanlega reynt að þróa ýmsar gerðir slíkra samvera til
að sem flestir finni form við sitt hæfi. Stuðningur við
starfslið og sjálfboðaliða kirkjunnar er einnig forgangs-
verkefni og þá í formi símenntunar og kyrrðardaga. Þá er
starf með börnum og fjölskyldum þeirra, t.d. í formi tón-
listarbúða, á vinnuborðinu. Þá vil ég að haldið verði áfram
að efla Skálholt sem vettvang umræðna fólks víða að í
þjóðfélaginu.
Miðlun reynsluarfsins
Sótt hefur verið til Kristnihátíðarsjóðs um styrk til verk-
efnis til stuðnings ungum foreldrum á nýrri öld: Miðlun
reynsluarfsins. Verður það unnið í samvinnu við ýmsar
stofnanir Háskólans, fjölmiðla og kirkjulega aðila ef styrk-
urinn fæst.
Við tökum fegins hendi á móti góðum hugmyndum um
aukið starf í Skálholtsskóla til eflingar kirkju og kristni í
landinu. Við hvetjum lesendur Víðförla til að nýta sér þær
aðstæður og aðstoð sem Skálholtsskóli býður upp á. Verið
velkomin í Skálholt, bæði í hópi og sem einstaklingar.