Víðförli - 01.10.2001, Síða 9
OKTÓBER 2001
VÍÐFÖRLI
9
Hjálparstarf kirkjunnar
Hjálparstarf kirkna í Afganistan
Hjálparstarf kirkjunnar og Rauði krossi íslands efna til
söfnunar til styrktar afgönsku fólki sem komið er á vonar-
völ eftir hetjulega baráttu við endurtekinn uppskerubrest,
stríð og harðstjórn. Ríkisstjórnin hefur samþykkt 10 millj-
óna króna framlag sem beint verður um stofnanirnar tvær.
Hjálparstarfið mun verja sínum hluta og einnar milljónar
eigin framlagi í gegnum ACT, alþjóðaneyðarhjálp kirkna.
Áhersla á vatn, mat og sáðkorn
ACT, alþjóðaneyðarhjálp kirkna sem Hjálparstarf kirkj -
unnar er aðili að, hefur rekið hjálparstarf meðal Afgana í
fjölda ára. Það er í samvinnu við fjölda samtaka í Afganist-
an, Pakistan og íran, óháð trúarbrögðum. Nú gengur vetur
f garð og áhersla er lögð á að koma sáðkorni til afskekktra
þorpa. ACT hefur nýlega dreift korni til 1200 bænda.
Einnig þarf að koma mat sem dugir í að minnsta kosti þrjá
mánuði til fólks í afskekktum sveitum til að sporna við
flótta. Undir forystu Hjálparstarfs norsku kirkjunnar,
bandarísku Church World Service, Middle East Council of
Churches og Christian Aid í Bretlandi beinir ACT aðstoð
sinni að íbúum Afganistan sem eru verst settir, flóttamönn'
um í eigin landi og flóttamönnum í nágrannalöndum. Til
stendur m.a. að útvega allt að 70.000 manns í flóttamanna-
búðum vatn og hreinlætisaðstöðu, mat og hjúkrunargögn,
15.000 nýkomnum flóttafjölskyldum í Pakistan tjaldi, teppi
og segldúk og fólks sem búist er við að komi yfir landamær-
in til Iran bíða hjálpargögn. Auk þess verður veitt áfalla-
hjálp og stuðlað að því að mynda sjálfshjálparhópa, við-
halda fjölskyldutengslum, reisn og mætti fólksins sjálfs til
að takast á við hrikalegar aðstæður. Þetta eru fyrstu ráða-
gerðir en þær eru gerðar með sveigjanleika í huga, enda
óvíst hvemig mál þróast. Innan Afganistan starfa um 1500
innlendir samstarfsaðilar ACT og leggja sig í lífshættu til
að sinna hjálparstarfi.
Allt ónýtt nú þegar
Loftárásir á Afganistan eru e.t.v. ekki sá vendipunktur sem
ætla mætti um afdrif íbúa landsins. Enda birtust hér mynd-
ir af brosandi fólki með múrbrak í höndum, fólki sem er
vant átökum. Neyðin hefur verið viðvarandi. Sfðustu þrjú
ár hafa þurrkar eyðilagt alla uppskeru sem ekki nýtur áveitu
og stórlega dregið úr hinni. Og það f landi þar sem 85%
íbúanna lifa af landbúnaði. Áratuga stríð, innbyrðis átök
og harðstjórn talibana hafa eyðilagt alla inniviði samfélags-
ins. Það er búið að eyðileggja hús og byggingar, það er búið
að eyðileggja vegi, það er búið að taka lifibrauðið af fólki,
ekki síst konum sem beinlínis er bannað að bjarga sér, það
er búið að eyðileggja líf fólksins. Það þarf ekki árás til þess.
Hvenær gleymum við neyðinni í Afganistan?
Nú þarf bara að vona að fólkið í Afganistan gleymist ekki
þótt árásir taki enda og aðrir viðburðir fylli fréttatímana
okkar. Sífellt erfiðara er að fjármagna svokallaða gleymda
neyð eða „forgotten emergencies“. Hjálparstofnanir finna
að fólk þreytist á neyð sem dregst á langinn og fjármögnun
verður erfið. Fólk lifir í núinu. Hjálparstarf kirkjunnar vill
haga starfi sínu svo að fólk fái stuðning til að standa á eigin
fótum. Það tekur tíma. Þess vegna hefur stofnunin stutt
þróunarstarf á Indlandi og í Mósambík til lengri tíma.
Anna M.Þ. Ólafsdóttir
Segðu þína sögu
Öll höfum við eitthvað að segja frá, áhugaverðar reynslu-
sögur úr eigin lífi. Oft höfum við líka þörf fyrir að segja
þessar sögur og deila reynslunni með öðrum. Þá getur líka
verið gott að heyra hvað aðrir hafa reynt og sjá og finna að
maður er ekki einn í heiminum.
Vefurinn www.fray.com varð til í kringum þessa hug-
mynd. Þangað kemur fólk til að segja persónulegar sögur af
sjálfu sér og einhverju sem það hafa gengið í gegnum. A
eftir hverri sögu er að finna tilboð til annarra lesenda um
að bæta sinni reynslu við: „Hefur þú sögu að segja?“
Þegar fjöldi fólks kemur saman með þessum hætti og
deilir reynslu sinni þá er um að ræða mikilvæga hópvinnu
sem nálgast allt að því hóp-sálgæslu. Og ekki er að efa að
þessi vefur hefúr nýst fólki vel í kjölfar hryðjuverkanna
hryllilegu t Bandaríkjunum fyrir skemmstu. Að mati undir-
ritaðs er hér um að ræða góða hugmynd sem gæti verið þess
virði að prófa hér á landi. Árni Svanur Daníelsson
Frá Prestafélagi
Suðvesturlands
Á aðalfundi Félags presta á höfuðborgarsvæðinu í febrúar
síðastliðnum var nafni þess breytt í Prestafélag Suðvestur-
lands.
A vormisseri bar helst til tíðinda að haldið var upp á
fimm ára afmæli félagsins í maí og boðið var til vorfagnaðar
prestsfjölskyldunnar. Nú er framundan sagnakvöld, þar sem
prestar skemmta prestum og verður það haldið mánudaginn
5. nóvember kl. 21. Staðsetning verður auglýst síðar.
Hið árvissa jólaball prests- og djáknafjölskyldunnar verð-
ur haldið í Safnaðarheimili Háteigskirkju föstudaginn 28.
desember kl. 16-18. Þá eru fyrirhugaðar dansæfingar fyrir
prestshjón og einhleypa presta og hefjast um miðjan janúar.
Stjórn PSV skipa prestarnir Friðrik J. Hjartar, Irma
Sjöfn Óskarsdóttir, Magnús Björn Björnsson og María
Ágústsdóttir.