Víðförli - 01.10.2001, Side 10
10
VÍÐFÖRLI
20. ARG. 7. TBL.
Kirkjumiðstöð Austurlands á Eiðum
Kemur skemmtilega á óvart
Fyrir suma hluti á maður að skammast sín fyrir og segja
engum frá! Eg kom nefnilega í fyrsta skipti á kirkjumið-
stöðina á Eiðum í byrjun september til að fylgja eftir nám-
skeiði fyrir starfsfólk í barnastarfi kirkjunnar, í fyrsta skipti,
en hef þó unnið á vegum kirkjunnar í heil 16 ár! - Nú held
ég að fleiri séu sammála mér að sumt á maður að skammast
sín fyrir og segja engum frá! En ég get ekki orða bundist.
Það var hvasst í lendingu á Egilsstaðaflugvelli, svolítið hrá-
slagalegt úti fyrir, snjór farinn að sleikja fjöllin og mér varð
hugsað til dvalar minnar á Austurlandi í fyrrasumar í 27
stiga hita og sól.
Á Eiða var haldið með fimm manna sendinefnd leið-
beinenda. Á kjarri vaxinni hæð við Eiðavatn stendur
kirkjumiðstöðin og blasir við óvenju fagurt útsýni í allar
áttir um héraðið. Berjalöndin krökk og sást undir skósóla
okkar í allar áttir að tína ber í munninn. Innandyra sem
utan er afar snyrtilegt og mikil alúð greinilega lögð í það
að hafa hluti í lagi. Hitann og þungann af rekstri Kirkju-
miðstöðvarinnar ber Jóhanna Sigmarsdóttir sóknarprestur
en í eldhúsinu er önnur eins kjarnakona, Kristjana
Björnsdóttir frá Borgarfirði eystri. Saman skapa þær stölh
urnar ógleymanlega stemningu í Kirkjumiðstöðinni á Eið-
um.
Námskeiðið okkar tókst vel - fjöldi fólks, allt frá Höfn í
Hornafirði og norður f Bakkafjörð, sótti sér fræðslu og
miðlaði okkur einnig af sínum reynslubrunni í barna- og
æskulýðsstarfi kirkjunnar.
Upphaf Kirkjumiðstöðvar
Ég rakst á grein í Morgunblaðinu, sem birtist 16. júlí sl.,
um Kirkjumiðstöðina á Eiðum eftir Vigfús Ingvar Ingvars-
son, sóknarprest á Egilsstöðum, hann segir þar m.a. að það
hafi lengi verið draumur þeirra Austlendinga að eignast
húsnæði á Eiðasvæðinu til að gera frekari útfærslu sameig-
inlegrar kirkjulegrar starfsemi á Austurlandi mögulega.
Kirkjumiðstöð Austurlands er á vegum Múlaprófastsdæmis
og Austfjarðaprófastsdæmis.
Núverandi húsnæði var vígt árið 1991 og síðan hefur
margs konar starfsemi farið þar fram.
Starfsemi í Kirkjumiðstöðinni
Sumarbúðir hafa verið starfræktar í tíu sumur í Kirkjumið-
stöðinni og hefur það starf verið afar farsælt og mjög fjöL
sótt. Skýrsla um starfsemina frá 1. september 2000 til 31.
ágúst 2001 sýnir svo að ekki verður um villst að þar er nán-
ast alltaf eitthvað um að vera. Má þar nefna fermingar-
barnanámskeið, fundi með foreldrum fermingarbarna,
kóramót kirkjukóra, gospelkóra, barnakóra, kyrrðardaga,
alfanámskeið, sjálfstyrkingarnámskeið fyrir nemendur 10.
bekkjar á Héraði, námskeið í messusöng, TTT mót,
fræðslufundi presta - svo sitt lítið af hverju sé nefnt. Allir
þessir liðir eru á dagskrá vetrarins og ýmislegt fleira.
Framundan er t.d. námskeið fyrir sóknamefndir, meðhjálp-
ara, kirkjuverði og hringjara.
Mótun kirkjufræðslustefnu fyrir Austurland
Sameiginleg starfsaðstaða og samvinna prófastsdæmanna
fyrir austan hefur orðið til þess að unnið hefur verið að
mótun kirkjufræðslustefnu fyrir Austurland. Þeirri vinnu er
ekki formlega lokið en gaman verður fyrir lesendur Víð-
förla að fá að fylgjast með framgangi hennar í framtíðinni.
Við hin gætum margt lært af því plaggi sem þegar liggur
fyrir.
Draumar og veruleiki
Mér sýnist draumar kirkjufólks á Austurlandi um góða að-
stöðu og fjölbreytt sameiginlegt starf í Kirkjumiðstöðinni á
Eiðum hafa fyrir löngu ræst. Að kynnast þessu öfluga starfi
fyrir austan var afar uppörvandi fyrir okkur sunnanfólk. Til
hamingju!
Edda Möller
Fréttabréf Möðruvallaprestakalls
Vetrarstarf Hólskirkju í Bolungarvík hófst á sunnudag-
inn með svonefndri „regnbogamessu*. Hér var um
þematengda fjölskyldumessu að ræða þar sem þemað var
regnboginn. Seint á fimmtudagskvöld bárust blaðinu
upplýsingar um messuna og vetrarstarfið í Hólskirkju og
var mælst til þess að þeim yrði komið á fréttavef blaðs-
ins, allra helst ásamt einhverri fallegri regnbogamynd.
Mjög árla morguninn eftir þegar starfsmaður blaðsins,
sem búsettur er í Bolungarvík, var að leita á internetinu
að heppilegri regnbogamynd leit hann út um glugga og
þá blasti við regnbogi yfir Hólskirkju. Enga úrkomu var
nokkurs staðar að sjá nema á litlu svæði í kringum Hól.
Tækifærið var þegar í stað notað til að taka myndir í
tilefni regnbogamesunnar. Jafnskjótt og myndatökunni
lauk hvarf þessi staðbundni úrkomuvottur og regnbog-
inn að sjálfsögðu líka. Myndasmiðurinn hefur verið bú-
settur í Bolungarvík í hálft þriðja ár og hefur aldrei séð
þar regnboga fyrr.
Frétt úr Bæjarins besta á Isafirði