Víðförli - 01.10.2001, Qupperneq 12
12
VIÐFORLI
20. ÁRG. 7. TBL.
Kristur yfir kakóbolla og kökusneið
Árni Svanur Daníelsson ræðir við sr. Jónu Hrönn Bolladóttur um Ömmukaffi
Nú á dögunum var opnað nýtt kaffihús í miðbænum. Það
gengur undir því hlýlega nafni Ömmukaffi. Arni Svanur
Daníelsson skiptist á nokkrum tölvuskeytum við sr. Jónu
Hrönn Bolladóttur miðborgarprest og fræddist um starf
miðborgarprests og þetta nýja og nýstárlega kaffihús.
Komdu sæl Jóna Hrönn. Gætir þú sagt lesendum Víðförla
og kirkjan.is stuttlegafrá starfi miðborgarprests.
Hlutverk miðborgarprests eins og annarra presta er að
sinna sálgæslu, standa fyrir fræðslu og helgihaldi. Sálgæsl-
an er mjög stór þáttur í mínu starfi. Fólk leitar til mín um
viðtöl, en sálgæsla við unglingana fer fram í hópastarfi og á
næturnar um helgar þegar opið er í Ömmukaffi. Starf með
ungu fólki er mikilvægasti hluti af starfi miðborgarprests. Á
vegum starfsins er sjálfshjálparhópur ungs fólks sem hefur
orðið fyrir einelti og er félagslega einangrað. Og síðan
heldur miðborgarprestur utan um næturstarfið um helgar
og er þar sjálfur fjórar nætur í mánuði.
Hvemig farið þið að með helgihaldið, eruð þið í samstarfi við
einhverjar tilteknar kirkjur eða er kannski messað á götum úti?
Helgihald á vegum miðborgarstarfsins er óhefðbundið.
Það eru mánaðarlegar messur í Kolaportinu, sem margir
þjóna í. Á þeim stað fer fram mikil sálgæsla undan og eftir
messu. Einnig undirbýr miðborgarprestur mánaðarlegar
æðruleysismessur í Dómkirkjunni ásamt Jakobi Ágústi
Hjálmarssyni dómkirkjupresti. En þær messur eru einkum
ætlaðar fólki sem er að leita að bata eftir 12-spora leiðinni,
en það eru að sjálfsögðu allir velkomnir. Svo eru einnig
óhefðbundnar messur við einstök tækifæri í miðborginni.
Hvað með fræðslustarfið, hafið þið lagt áherslu á eitthvað
sérstakt íþvísambandi?
Fræðslan er unnin í samstarfi við aðra, eins og t.d. hóp-
inn Betri borg sem samanstendur af fulltrúum frá ITR, lög-
reglustjóraembættinu, Félagsþjónustunni í Reykjavík,
Rauðakrosshúsinu, Hinu húsinu, Foreldrahúsinu, Samhjálp
og URKI. Einnig hefur verið samstarf við Biblíuskólann
við Holtaveg um sálgæslunámskeið. Það er einnig samstarf
við Laugarneskirkju um einstaka málþing um mikilvæg
umræðuefni í okkar samfélagi, eins og t.d. um mikilvægi
þessa að vinna gegn klámiðnaðinum. Miðborgarprestur
hefur einnig verið í vinnuhópum á vegum borgarinnar til
að vinna að heill miðborgarinnar.
Nú voruð þið að opna nýtt kaffihús sem heitir því skemmti-
lega nafni Ömmukaffi. Hver er hugmyndin á bak við það og
hvert stefnið þið með þessu starfi?
Grunnhugmyndin að kaffihúsinu er að færa starfið nær
götunni. Við sem að miðborgarstarfinu stöndum viljum
leita leiða til að boða Jesú Krist. Hann er drifkrafturinn að
þessu starfi og við erum fyrst og fremst að nota hans aðferð
til að mæta fólki með umhyggju, samtali og vináttu. Þá er
kaffihús alveg tilvalinn staður til slíkrar nálgunar. Enda
hvar er betra að tala saman en yfir góðu kaffi og ljúffengri
tertu. Síðan hugsum við okkar að staðurinn nýtist fyrir
ungt fólk á aldrinum 16-20 ára. Það á engan stað í borg-
inni og við viljum leyfa því að njóta með okkur. Á fimmtu-
dagskvöldum í vetur verða „lúxus kvöld“ fyrir ungt fólk.
Þar verður lifandi tónlist og margir listviðburðir. En kaffi-
húsið er opið alla virka daga frá kl. 10:00-18:00 fyrir gesti
og gangandi. Það er tilvalið að eiga stefnumót þar fyrir litla
fundi eða bara fyrir spjall um lífið og tilveruna. Staðurinn
er reyk' og áfengislaus. Þar er bjart og hreint og góður andi.
Landsmót æskulýðsfélaga
„Frábært fólka
Landsmót æskulýðsfélaganna verður haldið 19. til 21.
október næstkomandi á Hvammstanga. Umsjónarmenn
mótsins að þessu sinni eru Margrét Ólöf Magnúsdóttir
(margretolof@visir.is) og Pétur B. Þorsteinsson (pet-
ur@hateigskirkj a. is).
Þema mótsins er sótt til þess að Guð skapaði okkur í
sinni mynd, sem konur og karla, fólk með frábæra eigin-
leika og hæfileika. Dagskrá mótsins miðar að þessu, að
færa unglingana einu skrefi nær því að vera sáttari við
sjálfa sig. Fastir dagskrárliðir og dagskrártilboð miða öll
að því að tala um sköpun Guðs, menneskjuna og eigin-
leika hennar.
Fjölbreytt dagskrá
Búið er að fá afnot af íþróttahúsinu, félagsheimilinu,
sundlauginni og að sjálfsögðu kirkjunni. Boðið verður
upp á fjölbreytta dagskrá, t.d. kvöldvöku, sameiginlegt
taco kvöldverðarboð, sundlaugarpartí, tónleika, guðs-
þjónustu og fleira. Einnig verður boðið upp á frjálsan
tíma þar sem unglingarnir geta tekið þátt í hinum ýmsu
hópum, t.d. íþróttahóp, gönguhóp, listahóp, leikhóp,
fréttahóp, sjóstangaveíðihóp o.fl.
Mótsgjald er 6.000 kr., en innifalið eru rútuferðir á
mótsstað, gisting, fæði og skipulögð dagskrá.
Mótið er einkum hugsað fyrir unglinga sem eru virkir
í æskulýðsstarfi kirkjunnar. Hægt er að fá frekari upplýs-
ingar um mótið á heimasíðu kírkjunnar, www.kirkj-
an.is/landsmot, eða hafa samband við Margréti eða Pét-
ur, sem einnig sjá um skráningar.