Víðförli - 01.12.2003, Síða 2
2
VlÐFORLI
22. ÁRG. 4. TBL.
Hjálparstarf
kirknanna
Jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar hefst 1. sunnudag í
aðventu og stendur fram í janúarlok. Prestar eru eindregið
hvattir til taka málið að sér með því að minna á söfnunina
í öllum messum í desember og um áramót. Söfnunin er
stærsta fjáröflunin í hjálparstarfi kirknanna í landinu. Gíró-
seðlar og baukurinn gamalkunni fara á öll heimili og stund-
um þarf ekki mikið til að ýta við fólki svo það greiði seðil-
inn og leggi góðu máli lið.
Fyrir börn sem búa ein
Safna á fé til að styðja börn í Úganda sem reka heimili
ein eftir að hafa misst báða foreldra úr alnæmi. Á starfs-
svæði Lútherska heimssambandsins í Rakai-héraði eru um
500 slík heimili og ætlar Hjálparstarfið að styðja sem best
við 315 þeirra sem verst eru stödd. Framlagið á gíróseðlin-
um, 2500 kr. dugar til þess að veita einu heimili aðstoð um
fatnað, teppi og eldhúsáhöld og reglulegar heimsóknir ráð-
gjafa. Það eru ekki síst þær sem skipta máli enda enginn
fullorðinn til að leiðbeina, kenna, fræða og styrkja. 20.000
krónur kostar að þjálfa einn ráðgjafa sem síðan sinnir 5-7
heimilum í sjálfboðavinnu. Þeir sem vinna verkið vita af
þessari söfnun og eru himinlifandi yfir væntanlegri aðstoð,
hversu mikil sem hún verður. Verkefnið hefur haft úr litlu að
spila en árangur hins vegar góður. Sjálfboðaliðar standa
sig vel og finna alveg ótvírætt hve liðsinni þeirra skiptir
börnin miklu máli.
Skiljum ekki börnin eftir, ein og yfirgefin.
Haustfundur presta í Reykjavíkur-
prófastsdæmi vestra
Árlegur haustfundur presta í Reykjavíkurprófastsdæmi
vestra var haldinn í Viðey í byrjun september. Þar voru
komnir saman á þriðja tug presta, en alls eru prestar
prófastsdæmisins 34 talsins. Prófastur bauð „nýliða" vel-
komna í þennan stóra hóp, þau sr. Örnu Grétarsdóttur,
sem nývígð er til Seltjarnarnesprestakalls, sr. Sigurð Árna
Þórðarson, sem tímabundið gegnir starfi prests í Hall-
grímskirkju í leyfi sóknarprests, sr. Guðnýju Hallgríms-
dóttur, sem nú hefur fengið fast aðsetur og þjónustu-
skyldu í Grensáskirkju og sr. Karl V. Matthíasson, nýskip-
aðan sérþjónustuprest, einnig með aðsetur [ Grensás-
kirkju. Öll hafa þau gegnt störfum fyrir kirkjuna árum og
jafnvel áratugum saman og er prófastsdæminu fengur að
starfskröftum þeirra.
Sr. Jón Helgi Þórarinsson, sóknarprestur f Langholts-
kirkju, greindi frá ferð til Finnlands, þar sem þeir Jón Stef-
ánsson, organisti, kynntu sér kórstarf fyrir drengi.
Spannst mikil umræða um stöðu drengja innan islensku
þjóðkirkjunnar og barna- og æskulýðsstarfs almennt.
Kom m.a. fram að huga þarf að leiðtogaþjálfun ungra
karlmanna og endurskoða forgangsröðun fjármuna í
þessu sambandi. Sr. Arna Grétarsdóttir greindi frá fyrir-
huguðum Fermingarháskóla, sem hleypt verður af stokk-
unum á nýju ári og mikilvægt er að söfnuðirnir fylki sér
um. Þá veitti sr. Karl V. Matthíasson fundarfólki innsýn í
nýtt starf sérþjónustuprests þjóðkirkjunnar vegna áfengis-
og fíkniefnamála, sem m.a. miðar að forvarnarfræðslu til
safnaða og framhaldsskóla.
Aðalerindi fundarins flutti sr. Kristín Þórunn Tómas-
dóttir, nýskipuð stjórnarkona í Lútherska heimssamband-
inu fyrir hönd (slands. Lýsti hún aðildarkirkjum og upp-
byggingu sambandsins á einkar greinargóðan hátt, auk
þess sem hún sagði frá heimsþinginu sem haldið var í júlí
sl. í Winnepeg. Var það mál manna, karla og kvenna, að
íslensku Þjóðkirkjunni væri sæmd að stjórnarþátttöku sr.
Kristínar í Lútherska heimssambandinu, og henni óskað
alls hins besta á þeim vettvangi.
María Ágústsdóttir