Víðförli - 01.12.2003, Side 8

Víðförli - 01.12.2003, Side 8
8 VÍÐFÖRLI 22. ÁRG. 4. TBL. Af Landsmóti. . . Framhald af bls. 3 að fá þau til að taka þátt í viðtalinu. Arna ræddi við út- varpskonuna uppi á sviði fyrir framan alla krakkana og það mátti heyra saumnál detta. Eftir að krakkarnir höfðu heils- að útvarpskonunni (til þess að sanna að þau væru þarna öllsömul), og Arna hafði kvatt, voru stuttmyndirnar sýndar. Myndirnar í keppninni voru í alla staði frábærar og gaman að sjá hversu mikla vinnu krakkarnir höfðu lagt í þær. Æskulýðsfélag ísafjarðarkirkju bar þó sigur úr býtum með kvikmyndina „4000“. Eftir hádegismat var kominn tími til að spila kennsluleik- inn Ba/Fa. Krakkarnir voru búnir að læra að hegða sér samkvæmt ákveðinni menningu. Ba og Fa eru afar ólíkir menningarhópar og áttu þessir hópar að reyna að hafa samskipti sín á milli. Markmið leiksins var að láta krakkana reyna að fóta sig í heimi sem er ólíkur þeirra eigin heimi og þannig setja sig í spor þeirra sem flytjast milli ólíkra menn- ingarheima og öðlast dýpri skilning á málum nýbúa og út- lendinga á íslandi. Á meðan helmingur þátttakenda tók þátt í Ba/Fa var hinn helmingurinn í dagskrártilboðum. Leiðtogar mótsins höfðu undirbúið ýmis konar verkefni fyrir krakkana. Þau gátu valið um að fara í ýmsa hópa eins og glasamálunar- hóp, hárgreiðsluhóp, sundhóp, körfuboltahóp, sönghóp, vinabandahóp, gönguhóp og margt fleira. Eftir kaffi var svo þrautakeppni æskulýðsfélaganna, þar sem m.a. var keppt í SMS sendingum og spilakasti. Lið Ólafsvíkur varð hlut- skarpast og hlaut að iaunum verðlaunapeninga. Á kvöldvökunni var mjög góð stemming. Margir krakkar komu fram á kvöldvökunni og voru þau með hreint frábær skemmtiatriði. Það má segja að Lalli sjúkraiiði hafi gert allt vitlaust [ lok kvöldvökunnar því hann velti samkomunni hreinlega á hvolf af hlátri og gerði kvöldvökuna svo sann- arlega ógleymanlega. Diskótekið á eftir var fjörugt, Dj Aprikósa hélt uppi frábæru stuði. Um 100 manns sóttu lof- gjörðarstund sem Arna og Sjöfn sáu um á laugardags- kvöldið. Eftir hana var farið í háttinn. Sunnudagsmorguninn var guðsþjónusta sem sóknar- prestur Ólafsvíkur sá um, sr. Óskar Óskarsson. Stemming- in var frábær og krakkarnir tóku virkan þátt í söng og bæn. Eftir guðsþjónustuna hélt hver til síns heima, sumir bara í næsta hús aðrir áttu langa ferð fyrir höndum. Það er óhætt að segja að einstök stemming hafi ríkt á mótinu. Krakkarnir voru svo jákvæðir og skemmtilegir og leiðtogarnir unnu frábært starf. Þessir tveir þættir urðu til þess að mótið varð eins frábært og raun bar vitni. Næsta landsmót verður haldið 15.-17. október 2004 í Vatnaskógi og er yfirskrift þess „Frjálst fólk - frelsað fólk“. Á vef Landsmótsins www.kirkian.is/landsmot er að finna meira um mótið, bæði myndir og frásagnir. Þess má geta að Landsmótsvefurinn hefur verið afar vinsæll frá því hann var opnaður í nýrri mynd í september. Síðan þá hefur hann verið skoðaður tæplega 10000 sinnum. Ekki verður því annað sagt en að ungdómurinn sé virkur á vefnum! Sjöfn Þór Kontrapunktur Punktur í tónlist einn og sér er ekki rangur né skýr tónn falskur eða óhreinn Stakur tónn er ávallt hreinn Tónn verður þá óhreinn og punktur rangur ef þeir eru á skökkum stað gegnt öðrum punktum í blíðum eða stríðum hljómum þegar hvorki næst blærinn né samræmi í hryn eða hljómi Ef sá sem strýkur gígjuna er sáttur við sig hljóðfærið og tónverkið fær hann frelsi til að spinna tvinna jafnvel þrinna saman tóna í hreinan hljóm og vefa úr þeim þráðum dúk í þétta og skínandi voð Jón Bjarman Úr nýútkominni Ijóðabók sr. Jóns Bjarman: Stef úr steini - lófafylli af Ijóðum. Æskulýðsmót í Bandaríkj unum I sumar var haldið stórt æskulýðsmót í Atlanta í Bandaríkjunum. Mótið kallast ELCA Youth Gathering og það sóttu um 40 þúsund ungmenni og fullorðnir frá Bandaríkjunum. Þátttakendum frá erlendum kirkjum var einnig boðið að sækja mótið og einn íslendingur tók þátt, Bjarni Arason. Fiann hefur skrifað ítarlega ferða- sögu sem er hægt að lesa á kirkjustarfsvefnum. Vefslóð- in er http://www.kirkian.is/kirkiustarf/?meira?id=47. Árni Svanur Daníelsson

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.