Víðförli - 01.12.2003, Blaðsíða 9

Víðförli - 01.12.2003, Blaðsíða 9
DESEMBER 2003 V í Ð F Ö R LI 9 Frekar starf en steinsteypu Fjórir áheyrnarfulltrúar unga fólksins sátu Kirkjuþing í október. Þetta er í fyrsta skipti sem slíkir áheyrnarfulltrúar sitja þingið. Áheyrnafulltrúarnir voru Jón Ómar Gunnars- son frá Æskulýðssambandi kirkjunnar í Reykjavíkurpró- fastsdæmum og Árni Þorlákur Guðnason frá Félagi guð- fræðinema. Fulltrúar af landsbyggðinni voru Friðþjófur Þor- steinsson frá ísafirði og Stefán Einar Stefánsson frá Borga- nesi. Fimmti áheyrnarfulltrúinn, Ásdís Björnsdóttir frá Æskulýðssambandi kirkjunnar, forfallaðist. Við hittum Jón Ómar, Stefán og Friðþjóf í kaffihléi og ræddum við þá um þingið. Enginn þeirra hafði áður komið á kirkjuþing. Jón Ómar og Stefán eru í guðfræðideild. Frið- þjófur er æskulýðsfulltrúi ísafjarðarkirkju og kom ásamt Jóni Ómari beint af landsmóti æskulýðsfélaga á kirkjuþing- ið. „Þetta er mjög áhugavert og fræðandi," sagði Jón Ómar og hinir tóku undir það. „Þetta er óvæntur hasar,“ sagði Stefán, „menn takast meira á um ýmis mál en ég átti von á.“ Friðþjófur tók undir það: „Þetta er skemmtilegra en ég bjóst við. Við komum til með að skila greinargerð sem ég vona að nýtist í umræðu ungs fólks um kirkjuleg málefni." Stefán: „Séra Lára Oddsdóttir hefur lagt til að leitað verði eftir styrk og hann notaður til að halda kirkjuþing ungs fólk, svipað og var gert á kirkjudögum." Finnst þeim ungt fóik afskipt í kirkjunni? Stefán: „Ekki í æskulýðsstarfinu." Friðþjófur: „En ekki þar með sagt að fólk sem er í æsku- lýðsstarfi finni sér grundvöll alls staðar innan kirkjunnar." Stefán: „Okkur er til dæmis ekki boðið að starfa að sóknarnefndarmálum." Jón Ómar: „Þó að við gætum það ef til vill ef við sækt- umst eftir því. Það er ekki slegist um að vera í sóknar- nefnd.“ Þeir hafa tekist aðeins á um kirkjustarfið. Jón Ómar og Friðþjófur hafa ákveðnar skoðanir: „Ég vil frekar sjá pen- inga í starfi en steypu. Ef hægt er að spara 10-15 milljón- ir með því að kaupa notað orgel frekar en nýtt þá getur sú fjárhæð nýst í æskulýðsstarfi í 15 ár.“ Adda Steina Björnsdóttir Vel heppnuð prédikunarráðstefna Dagana 3.-4. nóvember var haldin ráðstefna um predikunina í Skálholti á vegum Kjalarnessprófastsdæm- is. Um 40 þátttakendur sóttu ráðstefnuna, og komu þeir úr röðum presta, guðfræðinga og guðfræðinema. Flutt voru vönduð erindi um predikunina frá ólíkum sjónarhorn- um. Pétur Pétursson sagði frá því hvernig predikunin kom út í könnun sem hann og Björn Björnsson gerðu árið 1990. Hann talaði einnig um að mikilvægt væri að tengja predik- un, díakoníu og litúrgíu. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir fræddi okkur um það hvernig predikunin kom út í stefnu- mótun Þjóðkirkjunnar en lítið virðist fara fyrir henni þar. Gunnar Kristjánsson prófastur talaði um nýjar áherslur í predikunarfræðum. Hann minnti á að texti, tákn og tjá- skipti væru ein samofin heild. Hann benti einnig á að nýj- ar kenningar í prédikunarfræðum ganga út frá því að per- sónuleiki prédikarans setur óhjákvæmilega mark á prédik- un hans, bæði efnisval, umfjöllun og flutning. Gunnar kom einnig inn á táknfræði og lagði áherslu á að prédikunin sé ævinlega tvíræð og kalli fram margvísleg viðbrögð áheyr- enda. Sr. Gunnar Björnsson prestur á Selfossi flutti ráðstefnu- gestum hugleiðingu eftir tíðagjörð í Skálholtskirkju. Hulda Guðmundsdóttir fulltrúi á Kirkjuþingi og Koibrún Halldórsdóttir alþingismaður fluttu erindi um predikunina út frá sjónarhorni áheyrandans. Þær komu inn á ýmsa þætti predikunarinnar svo sem flutning og mál beggja kynja. Dagskrá þriðjudagsins hófst með tíðagjörð í Skálholts- kirkju og hugleiðingu sem sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir flutti um predikun í sjávarplássi. Jóna sagði á lifandi og skemmtilegan hátt frá starfi sínu sem prestur í sjávarplássi og lýsti ýmsum áhugaverðum hliðum á samstarfi við sóknarbörnin. Sr. Svavar A. Jónsson flutti innlegg um predikun og áheyrendur. Hann sagði meðal annars að það væri mikil- vægt fyrir predikarann að gera sér grein fyrir því hvernig áheyrandinn heyrir til þess að hægt sé að koma boð- skapnum sem best til skila. Margt hefur áhrif á hvernig áheyrandinn heyrir, þar á meðal fyrirframgefin sannfæring áheyrandans, umhverfi og sú mynd sem áheyrandinn hef- ur af predikaranum. Þá flutti Gauti Kristmannsson aðjúnkt við Háskóla ís- lands í þýðingarfræðum innlegg um predikunina sem bók- menntir og myndmál í sálmaskáldskap. Ráðstefnugestir tóku virkan þátt í ráðstefnunni og mikl- ar og skemmtilegar umræður spunnust. Fólk var sammála um að það væri þarft að færa áhersluna aftur að predik- uninni og að hlúa þyrfti að þessum mikilvæga þætti í starfi presta. Predikunarhópar presta eru þróun í rétta átt og vísbending um að áhugi þeirra og metnaður er mikill þeg- ar kemur að predikun. Sjöfn Þór

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.