Bæjarins besta - 21.12.2000, Síða 14
Hér er skúta Ashkenazys á siglingu undir íslenskum fána. Það er reyndar ekki alveg kórrétt
að vera með íslenska fánann uppi, vegna þess að ennþá hefur hún ekki fengist skráð á ís-
landi, þrátt fyrir baráttu við kerfið á annað ár. Þórunn Jóhannsdóttir teiknaði merkið á
seglinu.
I Tyrklandi á síðasta hausti. Hér eru Ashkenazy-hjónin við skútuna ásamtjáhöfninni. Hér
er skútan með breskan siglingafána. Skipstjórinn er frá Suður-Afríku en kokkurinn er að
sjálfsögðu franskur.
Ashkenazy-hjónin ásamt Magnúsi Alfreðssyni, eiginmanni
Aslaugar, í Holtsfjöru sumarið 1995.
orðin einkabílstjóri á flottum
bflum. Þetta var skemmtilega
fjölbreytt að vera barnapía og
ráðskona hjá Ashkenazy-fjöl-
skyldunni“, segir hún.
Tengsl viö
Rússland á ný
Eiginkona Dimitris Þórs er
svissnesk og þau tala ævin-
lega frönsku saman. Annars
er hann vel mæltur á fimm
tungumál - auk frönskunnar
talar hann þýsku, ítölsku,
ensku og íslensku, en sagðist
ekki vera mjög sleipur í rúss-
nesku, tungumáli feðra hans.
A æskuheimili hans var töluð
enska en íslenskar bamfóstrur
töluðu íslensku við börnin.
Foreldrar hans hafa líka
verið búsettir í Sviss í meira
en tuttugu ár. Dimitri hefur
ekki mikil tengsl við Rússland
en hefur komið þangað nokkr-
um sinnum á seinni árum.
Hann kom þangað í fyrsta sinn
til ættmenna sinna árið 1989
eftir fall kommúnismans.
Vladimir eldri hafði þá ekki
komið þangað í 26 ár en
grunnt var á því góða milli
hans og stjórnvalda í Sovét-
ríkjunum sálugu.
Með íslenskt
vegabréf
Dimitri Þór telur sig einna
helst Svisslending en hann er
þó með íslenskt vegabréf, rétt
eins og foreldrarnir og öll syst-
kinin. Hann má þó ef til vill
fyrst og fremst kallast heims-
borgari líkt og fjölskyldan öll.
Segja má að Dimitri sé alinn
upp á ferðalögum um heiminn
mörg fyrstu ár ævinnar. For-
eldrarnir voru stöðugt á ferð
og flugi og reyndu að hafa
börnin sem mest með sér á
meðan þau voru ekki enn
komin á skólaaldur og höfðu
því barnfóstrur með. Hins
vegar var jafnan reynt að sam-
eina fjölskylduna um það leyti
sem þrjú af börnunum áttu
afmæli, en það var áttunda,
tíunda og ellefta október.
Þau Þórunn og Vladimir
Ashkenazy voru með aðal-
bækistöðina í Reykjavík á
þeim árum þegar Áslaug var
barnfóstra og einkabílstjóri
hjá þeim og þar voru eldri
krakkarnir í skóla. Á þeim
tíma var ráðskona hjá þeim
Margrét heitin móðir Ás-
björns apótekara hér á Isafirði.
Hún annaðist eldri börnin og
sá til þess að þau fengju eitt-
hvað hollt og gott að borða,
rétt eins og Áslaug nokkru
síðar. Segja má að Margrét
hafi verið eins konar amma á
heimilinu og ekki síst var
mjög kært á milli hennar og
Dimitris.
Reyndar notaði Dimiiri
tækifærið um daginn að heilsa
upp á Ásbjörn apótekara.
Dimitri sagði að Ásbjörn væri
alveg eins og mamma hans
og Ásbjörn sagði að Dimitri
væri alveg eins og pabbi hans.
Það má til sanns vegar færa,
því að ungi maðurinn minnir
afar mikið á pabbann í útliti.
Gagnkvæmar
heimsóknir
Mikið samband hefur verið
milli Áslaugarog Ashkenazy-
fólksins eftir að hún hætti að
vinna hjá þeim. Þar má nefna,
að þau Þórunn og Vladimir
komutil ísafjarðarbæði 1995
og 1999 og gistu hjá henni og
fóru með Áslaugu og Magnúsi
manni hennar í bfltúra hér um
svæðið. Þau hafa líka boðið
Áslaugu og Magnúsi til sín,
þar sem þau hafa lifað í vel-
Iystingum praktuglega. í
fyrrahaust fóru þau til Frakk-
lands og dvöldust í fornurn
kastala semAshkenazy-fólkið
á þar og nú í haust fóru þau til
Tyrklands og fóru meðAshke-
nazy-hjónunum áglæsisnekk-
ju sem þau eiga í siglingu í
vikutíma um innanvert Mið-
jarðarhaf.
Þó að Ashkenazy-hjónin
séu með fasta búsetu í Sviss
eru þau öðru hverju í kastalan-
um í Frakklandi og stundunr í
sumarhúsi í Finnlandi og víðar
þar sem þau eiga sér afdrep
eftir því sem henta þykir. T ón-
leikahald og ferðalög Ashke-
nazys krefjast mikillar skipu-
lagningar, svo að líkast er því
að reka fyrirtæki.
Snekkjan góða
Snekkja Ashkenazy-hjón-
anna er hin glæsilegasta og
vel búin og gengur fyrir segl-
um eða dísilvél eftir atvikum.
Þau leigja hana út hálft árið
en að öðru leyti notar fjöl-
skyldan skútuna eftir því sem
tími leyfir. Skútan er mikið
skip og því var vel rúmt þar
um borð um tvenn hjón og
fjögurra manna áhöfn. Þau
Áslaug og Magnús fóru flug-
leiðis til Istanbul með við-
komu í London og þaðan
áfram til strandar í Tyrklandi.
Þennan vikutíma var mest
verið á siglingu með ströndum
en tvisvar komið í höfn. Ann-
ars var mikið verið að synda í
sjónum og gera hreint ekki
neitt og hafa það gott.
Merkið á stórseglinu á skút-
unni og á bolunum sem áhöfn-
in klæðist er samansett úr
flygli og skútu og teiknað af
Þórunni Jóhannsdóttur. Um
borð í skútunni er að sjálf-
sögðu flygill enda sleppir
Ashkenazy því aldrei nokkurn
einasta dag ársins að æfa sig.
Skráningin á
íslandi gengur illa
Það er vilji þeirra hjóna að
fá skútuna skráða á Islandi en
það gengur ekki þrautalaust
að koma því í gegn hjá Sigl-
ingastofnun. Svo virðist að
kerfið virki bæði seint og illa
og segir Áslaug að búið sé að
senda stofnuninni gögn íkíló-
avís en ekkert gengur. Ashke-
nzy vill endilega að skútan sé
skráð í Reykjavík, heimaborg
Þórunnar, og sigli undir ís-
lenskum fána.
Málið hefur farið manna á
milli innan stofnunarinnar,
segir Áslaug, en nú er sami
maðurinn búinn að vera með
málið í sínum höndum meira
en hálft ár án þess að nokkuð
gerist. Það er tæplega hægt að
hæla þessari stofnun fyrir lipra
þjónustu, segir Áslaug, sem
hefur mest staðið í þessu máli
fyrir Askhenazy.
Þessi mynd tók Aslaug í Israel árið 1976 þegar lii'in var
barnfóstra hjá Asklienazy-fjölskyldunni: Þórunn, Vladimir
eldri, Dimitri, Nadia situr undir Soniu litlu, og Vladimir
yngri.
£mdim okkffli beÁtii óikvi im gfáilega jóA- oq uýámliMjuó' oq þöklam cuwó ím m aó' luóa.
FRYSTIKERFI ehf
V Suðurgötu 9 ísafirði
Sparisjóður Önundarfjarðar
Hafnarstrœti - Flateyri
Fiskmarkaður Suðurnesja
Sindragötu 11 - Isafirði
Hafnarbúðin
Olíufélag útvegsmanna hf.
Hafnarhúsinu við Suðurgötu
ísafirði - Sími 456 3245
Freyjugötu 1 - Suðureyri
'Téóteí jádffnbm
f
SdljUntoncfi — 'ládfúubi
Sírni 456 4111
14 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000