Bæjarins besta - 21.12.2000, Blaðsíða 20
bækur
*
Eg stjórna
ekki leilbmm
Iðunn hefur sent frá sér
bókina Ég stjórna ekki
leiknum eftir Jón Hjart-
arson. í kynningu for-
lagsins segir: „Tölvuleik-
ir og stelpur er það sem
Geira er efst í huga þótt
samræmdu prófin nálgist
óðum - en á árshátíðinni
gerist atburður sem um-
byltir öllu lífi hans. Skap-
ið hleypur eitt andartak
með hann í gönur og
hann hefði aldrei getað
órað fyrir afleiðingunum.
Áður en hann veit af er
hann á leiðinni út á land,
í ókunnugt umhverfi, til
ættingja sem reynast
búa yfir leyndarmálum
sem enginn vill draga
fram í dagsljósið. Til að
fá svör við spurningum
sínum þarf Geiri að
leysa af hendi einstæða
þrekraun.“
Einar Bene-
diktsson III
Iðunn hefur gefið út bók-
ina Einar Benedikts-
son - Ævisaga III eftir
Guðjón Friðriksson
sagnfræðing. Þetta er
þriðja og síðasta bindi
þessa mikla verks. í
kynningu frá forlaginu
segir: „Enginn íslenskur
athafnamaður átti sér
stærri drauma í upphafi
aldar en Einar Bene-
diktsson, ekkert skáld
hugsaði hærra, enginn
persónuleiki var stór-
brotnari og margslungn-
ari. Slíkir menn hverfa
ekki þegjandi og hljóða-
laust af sjónarsviðinu og
kannski var Einar aldrei
stærri í sniðum en eftir
að halla tók undan fæti í
lífi hans - skuldum vaf-
inn heimsborgari sem
lauk að lokum ævinni á
afskekktum sveitabæ."
Úr sól og eldi
Iðunn hefur gefið út
bókina Úr sól og eldi
sem er saga Rögnu
Bachmann sem víða
hefur komið við á lífs-
leiðinni, eftir Oddnýju
Sen. í kynningu forlags-
ins segir: ,,Úr sól og eldi
er í senn saga heims-
konu og hvunndags-
hetju. Ung kvaddi
Ragna æskuslóðir sínar
í Vesturbænum með
erfiða reynslu að baki og
hélt út í heim. í Svasí-
landi og á Sri Lanka, á
Jótlandi og í Jóhann-
esarborg, í Belgíu og
Botsvana, í Reykjavík
og víðar hefur hún
kynnst spennu hins Ijúfa
lífs, ratað í ótrúlegar
raunir en jafnframt
fundið dýpstu gleði.“
Öldin
fimmtánda
Iðunn hefur gefið út
bókina Öldin fimmtánda
en það er sautjánda bind-
ið í hinni vinsælu ritröð
Aldirnar sem hóf göngu
sína fyrir hálfri öld. Óskar
Guðmundsson er höf-
undur bókarinnar. í kynn-
ingu forlagsins segir:
„Fimmtánda öldin hefur
stundum verið kölluð hin
myrka öld Islandssögunn-
ar, öld sem fáir vita mikið
um og hefur verið sveipuð
dulúð og leynd í hugum
margra. En öldin var ekki
atburðasnauð, öðru nær.
Höfðingjar riðu um héruð
með yfirgangi og tókust
ár, sægreifar söfnuðu auði
og kvenskörungar eins og
Ólöf ríka voru áberandi í
íslensku þjóðlífi."
Hættuleg
kona
Iðunn hefur sent frá sér
bókina Hættuleg kona
sem fjallar um lífshlaup
listakonunnar Kjuregej
Alexöndru Argunovu. Sú-
sanna Svavarsdóttir ef
höfundur bókarinnar. í
kynningu forlagsins segir:
„Kjuregej Alexandra segir
hér frá óvejulegu lífs-
hlaupi sínu, frá örlaga-
þrungnum uppvexti sínum
í Jakútíu, einu fjarlægasta
landi gömlu Sovétríkj-
anna, þar sem líf á sam-
yrkjubúum, oft við óblíðar
aðstæður, og skólaganga
fjarri heimahögum var
hlutskipti hennar hennar.
Eftir það þá leiðin í Leik-
listarháskóla í Moskvu,
þar sem ástin greip í
taumana og leiddi hana
alla leið til íslands þar
sem ævintýri og átök biðu
hennar.“
Stúlkan sem
elskaði Tom
Iðunn hefur gefið út skáld-
söguna Stúlkan sem
elskaði Tom Gordon eftir
hinn sívinsæla sþennu-
sagnahöfund Stephen
King. í kynningu forlags-
ins segir: „Hin níu ára
gamla Trissa er á stuttri
gönguferð með fjölskyldu
sinni þegar hún gerir ör-
lagarík mistök sem leiða
hana inn í skelfingarver-
öld eyðiskógarins. Alein
þarf hún að takast á við
óvægin náttúruöfl, hel-
svart myrkrið og eigin
vonleysi og ótta - og í
skóginum er eitthvað
íhugnanlegt á sveimi,
eitthvað sem skilur eftir
sig eyðileggingu og
dauða - og það kemur
nær og nær og dregur
hring um hana. Eina
haldreipi hennar erTom
Gordon, sem er þó
órafjarri ungu telpunni
sem berst fyrir lífi sínu.“
Láttu ekki
smámálin
ergja þig
Forlagið hefur sent frá
sér bókina Láttu ekki
smámálin ergja þig
eftir Richard Carlson. í
kynningu útgáfunnar
segir: „Þetta er vinsæl-
asta bók síðari ára, met-
sölubók um víða veröld.
Hinn kunni bandaríski
sálfræðingur sýnir hér
hvernig greiða má á ein-
faldan og auðveldan
hátt úr streituflækjunni
sem alltof mörg okkar
hafa komið sér í. í
hundrað stuttum, bein-
skeyttum og greinargóð-
um köflum skýrir hann
út nauðaeinfaldar að-
ferðir við að vinna bug á
aðstæðum sem valda
streitu og temja sér
yfirvegun og rósemi.“
Háskaflug
Hörpuútgáfan hefur sent
frá sér nýja bók eftir
metsöluhöfundinn Jack
Higgins sem ber heitið
Háskaflug. í kynningu
útgáfunnar segir:
„Háskaflug er sann-
kölluð flughetju-saga
með öllum þeim ógnum
og skelfingar-augna-
blikum, sem her-
flugmenn einir upplifa.
Sagan segir frá banda-
rísku tvíburabræðrun-
um, Harry og Max kelso
sem voru aðskildir í
æsku. Þeir voru um tví-
tugsaldur í byrjun síð-
ustu heimsstyrjaldar og
báðir flugmenn, Max í
flugher Þjóðverja og
Harry í flugher Breta.
Þar lenda þeir bræður í
flugorrustum í nágvígi.
Annar fær það verkefni
að myrða Eisenhower,
hinn að drepa Hitler.
Hvorugur gat séð fyrir
þær djöfullegu aðstæð-
ur sem biðu þeirra um
það bil sem innrás herja
bandamanna í Norm-
andí vofði yfir.“
Máttur
bænarinnar
Hörpuútgáfan hefur
endurútgefið bókina
Máttur bænarinnar eftir
hinn þekkta kennimann
Norman Vincent Peale.
í kynningu útgáfunnar
segir: „Norman varð
fyrst kunnur hér á landi
þegar bók hans „Vörð-
uð leið til lífshamingju"
kom út árið 1965. Bæn-
irnar í bókinni gáfu
Peale kjark og kraft til
að takast á við lífið.
Sömu reynslu hafa hinir
fjölmörgu lesendur hans
upplifað.Þessi ágæta
bók hefur verið ófáanleg
um nokkurt skeið og er
því nú endurútgefin."
Lionsmenn að störfum við skötuna.
Lionsklúbbur fsafjarðar safnar fé til líknarmála
Skötusalan góð tekjulind
- skatan fær meðmæli reyndra manna og annarra
Félagar í Lionsklúbbi ísa-
fjarðar hafa að undanförnu
verið duglegir við að veiða,
verka og selja skötu. Að sögn
S veins Guðbjartssonar hjá Li-
onsklúbbnum er skatan verk-
uð af kunnáttumönnum og
hefur hún fengið góðar við-
tökur reyndra manna. „Bæði
hafa vel fullorðnir menn og
þeir sem yngri eru rnælt með
skötunni", segir Sveinn.
Salan hefur gengið vonum
framar. „Við pökkum sköt-
unni og sendum hvert á land
sem er. Töluvert magn hefur
verið sent á Norðurland og
hafa viðtökur verið frábærar".
segir Sveinn Guðbjartsson.
Þeim sem vilja kaupa skötu
af Lionsmönnum er bent á að
hafa samband við Svein í síma
863-3872.
Lionsklúbbur Isafjarðar
gefur reglulega fé til líknar-
mála. „Við höfum gefið til
Bræðratungu, Fjórðungs-
sjúkrahússins, dvalarheimilis
eldri borgara á ísafirði og fleiri
slíkra stofnana. Skötusalan
verður okkar aðaltekjulind í
ár en ekki er búið að ákveða
hvert peningarnir fara að
þessu sinni. Við ætlum fyrst
að sjá hversu mikið safnasf‘,
segir Sveinn.
r r
Uthlutun úr Menningarsjóði Landsbanka Islands hf.
Tveir hæstn styrk-
imir til Vestfjarrtii
Fyrir skömmu var úthlutað
átta styrkjum úr Menningar-
sjóði Landsbanka Islands hf.
til ýmissa verkefna og komu
tveir þeir hæstu til Vestfjarða.
Gamla Apótekið á ísafirði
fékk 350.000 króna styrk til
reksturs menningarhúss og
Lionsdeild Reykhólahrepps
fékk 270.000 króna styrk til
kaupa á tækjum fyrir vist-
heimilið Barmahlíð á Reyk-
hólum. Heimilið gerir öldr-
uðum heimamönnum fært að
dveljast í heimabyggð.
Aðrir sem hlutu styrk: Coll-
egium Musicum fékk 250.000
kr. til að rannsaka kveðskap,
nótur og lagboða sem t'mnast
í handritasöfnum Jóns Sig-
urðssonar forseta. Kammer-
sveit Reykjavíkur fékk kr.
200.000 til að gefa út á geisla-
diskurn Brandenborgarkon-
serta Bachs. Papeyjarferðir
fengu 200.000 kr. til viðhalds
á Papeyjarkirkju. Skáksam-
band íslands fékk 200.000 kr.
vegna Landsmótsins í skóla-
skák sem haldið verður í maí.
Héraðsskjalasafn Austfirð-
inga fékk 150.000 til að gefa
út Sókna- og sýslulýsingar.
Ný bók eftir Guimlaug Ingimarsson á ísafirði
Litlar sögur af góðu fólki
Gunnlaugur Ingimarsson
á ísafirði (Gulli sendill)
hefur gefið út bók fyrir jólin
líkt og fleiri. Þar segir hann
litlar sögur af ýmsu fólki
sem hann þekkir. Þar á
meðal er gamansaga um
Gísla Hjartarson, kunningja
hans, sem einmitt gaf líka út
bók með gamansögum fyrir
jólin. Þegar Gísli frétti af
bókinni hans Gulla sagði
hann: Nú er ég í vondum
málum. Nú er ég heldur
betur búinn að fá sam-
keppni! I samtali við
Bæjarins besta kvaðst
Gunnlaugur áður hafa gefið
út sex bækur. Kannski má
líka búast við svolítilli bók
fyrir næstu jól. Stafsetningin
í bókinni er mjög persónu-
leg og nokkuð torráðin á
stundum. Farið er frjálslega
með opinberar reglur þar að
lútandi líkt og sést hefur hjá
frægari rithöfunum. í bók-
inni eru líka kaflar urn mál-
efni fatlaðra og um fræðslu
fyrir þroskahefta. Bókin
hans Gulla er 16 síður og
fæst bæði í Bókhlöðunni og
í Hamraborg á Isafirði og
kostar 500 krónur.
Giinnlaugur Ingimarsson
með nýju bókina.
20 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000