Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.1995, Blaðsíða 3

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.1995, Blaðsíða 3
Alnæmissamtökin á fslandi Samtök áhugafólks um alnæmisvandann. Hverfisgötu 69, Reykjavík Pósthólf 5238, 125 Reykjavík. Sími 552-8586, bréfsími 552-0582 Kennitala 541288-1129 Björgvin Gíslason (ábm), hs. 551-2803 Prentvinnsla: Ojfsetprent/Geirsprent sf. Rauði borðínn Að bera Rauða borðann er ætlað að sýna samúð og stuðning við fólk sem er smitað eða sjúkt af alnæmi. Rauði borðinn er yfirlýsing um stuðning, krafa um umræðu, ósk um framfarir í rannsóknum og von um að lækning finnist við alnæmi. Rauði borðinn er leið til að gera alnæmi sýnilegt í þjóðfélaginu. Upphafsmenn Rauða borðans er lista- mannahópurinn í samtökunum Visual Aids í Bandaríkjunum. Þetta eru samtök myndlistarmanna, listfræðinga og for- stöðumanna listasafna. Þau vilja vekja athygli á því að alnæmi kemur okkur öllum við. * KÆRI LESANDI Nú ífyrsta sinn kemur fréttabréf Alnœmissamtakanna á íslandi út í stóru broti og þá um leið í stœrra upplagi. Það er œtlun okkar að ná til mun stœrri hóps en fyrr. Þetta er liður í því að minnafólk á að alnæmi er allra mál en ekki bara þeirra sem eiga um sárt að binda. I leiðinni œtlum við að minna á starfsemi félagsins sem er, eins og segir í lögum þess, samtök áhugafólks um alnœmisvandann. Við ætlum líka að fara þess á leit við þig að þú gerist félagi í Alnœmissamtökunum. Afhverju ? Ifyrsta lagi afþví okkurveitir ekki af stuðningi semflestra svo við getum sinnt hlutverki okkar og þá á ég fyrst og fremst við forvarnarstarf. En líka og ekki síður íþeirri von að okkur takist að draga úr fordómum í náinni framtíð. Þú kannt að segja eitthvað íþá veru að þú sért nú ekki með alnæmi, enginn þér tengdur ogjafnvel enginn sem þú þekkir. Því vil ég svara þannig; ég erfélagi íAmnesty, ég hefaldrei verið samviskufangi (ekki heldur samviskulaus), enginn mér tengdur og jafnvel enginn sem ég þekki. Samt vil ég leggja málefninu lið. Utbreiðsla alnæmis hér á landi hefur sem beturfer ekki orðið jafnmikil og gert var ráðfyrir í eldri spám. Útbreiðslan er samt of mikil. Nú hefur verið lögð niður Landsnefnd um alnæmis- varnir en hún hafði það að meginhlutverki að sinna forvörnum. Alnæmissamtökin hafa sinnt forvarnarstarfi allt frá stofnun þeirra og vilja sinna því í auknum mæli framvegis. Til þess þurf- um við stuðning þinn. Með vinsemd, Eggert Sigurðsson, formaður. 3

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.