Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.1995, Blaðsíða 14

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.1995, Blaðsíða 14
* Hólmfríður Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Vinnueftirliti ríkisins: Andlegur stuðningur við hiv-smitaða einstaklinga Hvaða Eins og mörgum lesendum blaðsins mun vera kunnugt kom Lars-Olof Juhlin prestur og þerapisti í Svíþjóð á námsstefnuna „Alnæmi og andlegur stuðningur: Hvert á á leita?“ sem haldin var 17. nóvember síðast- liðinn. Alnæmissamtökin, Rauði kross Islands og Fræðslu og þjónustudeild þjóðkirkjunnar stóðu að námsstefnunni og buðu Lars-Olof til landsins til þess að hafa framsögu á námsstefnunni og ræða við þjóna kirkjunnar og fleiri um það hvemig unnt væri að styðja við bakið á hiv-smituðum einstaklingum, alnæmis- sjúkum og aðstandendum þeirra. Ég var beðin að vera túlkur hans á námsstefnunni og var mér það ljúft. Mér finnst málefnið brýnt og taldi að Vinnu- eftirlit ríkisins ætti einnig að leggja hér hönd á plóg með einhverjum hætti. Það sem hér fer á eftir eru nokkrir punktar úr ræðum Lars-Olofs en engan veginn tæm- andi úttekt né þýðing. Ég reyni fremur að draga saman það sem mér finnst muni kasta nokkru ljósi á málflutning hans, en hann talaði við námsstefnugesti í hartnær þrjár klukkustundir. Lars-Olof sagðist hafa prófað á sjálf- um sér hvemig hann mundi bregðast við ef hann reyndist smitaður. Hann sagðist hafa spurt sig ýmissa spuminga, svo sem hvað mundi ég segja öðmm og hverju mundi ég þegja yfir. Hann sagði frá kynnum sínum af alnæmissjúklingum sem hann hafði kynnst í upphafi starfsins, ótta sínum og vandanum sem fælist í því að annars vegar væri hann þerapisti hins vegar yrðu skjólstæðingarnir vinir hans og oðskap flutti Lars-Olof ýmis vandkvæði kæmu upp, þegar vin- átta blandaðist starfi. Málflutningur Lars-Olofs var mjög svo litaður af kristnum viðhorfum enda er hann prestur. Hann vitnaði oft í biblíuna og orð Krists sem hefði hafnað þeim viðhorfum sem uppi hefðu verið meðal samtímamanna hans að sjúkdómar væra merki um lélegt siðferði, eins konar hefnd Guðs fyrir rangt líferni. Lars-Olof lagði áherslu á að sam- kvæmt kristinni lífssýn væri manneskjan dularfullt fyrirbrigði og hvaðan hún kemur og hvert hún stefnir sé utan henn- ar sjálfrar. Þess vegna geti maðurinn aldrei skilgreint sjálfan sig til fullnustu eða skýrt alla hluti. Hver og einn hafi gildi í sjálfum sér og hvað sem hendir missi hann aldrei sérstætt manngildi sitt. Hann talaði um kærleika Guðs til allra manna og að kirkjan ætti að opna faðm sinn móti þeim sem um sárt eiga að binda. Hún hefði sofið lengi en virtist vera að vakna. Hann sagði að það ætti ekki að setja sjúkdóma í rósrauðan bjarma. Sjúk- dómur væri ytri hömlun, líkamleg tak- mörkun, innri þjáning og orsök sorgar og kvíða. Þótt þjáningin sé mikilvægur lærdómur í lífinu, ætti þjáningin það ekki skilið að vera upphafin og væri ekki endilega til þess fallin að göfga neinn. En þegar þjáningin hremmdi manninn væri mikils um vert að hann gæti vænst fulls stuðnings og virðingar umhverfisins, þegar hann reyndi með mismunandi hætti að komast í gegnum það sem á hann væri lagt. Ekkert einfalt svar væri við því hvernig ætti að bregðast við þjáningunni. En mönnum bæri að taka þátt í þjáningu Juhlin? náungans - að því rnarki sem það er hægt. Lars-Olof sagði að hlutverk þeirra sem stæðu við hlið þeirra sem sjúkir eru og sorgmæddir væri að glæða von. Ekki að glæða óraunverulegar vonir um að veraleikinn breytist, ef honum verður ekki breytt, heldur að glæða von um að unnt sé að lifa því lífi sem er - á viðun- andi hátt. Til þess að vonin verði raun- veraleg verður að vera hægt að taka á henni og finna fyrir henni. Hún má ekki felast í einhverju hinum megin heldur miklu frekar einhverju sem núna blasir við. Vonina verður að glæða með nær- veru, snertingu og hlutdeild í lífinu. Það þarf stað þar sem fólk getur komið til að tala saman og til að afla sér þekkingar og fá hjálp með það sem viðkemur hversdeginum? LFmhverfi þar sem hægt er að vera maður sjálfur. Manneskja sem á sína sögu er ekki bara hiv-jákvæður einstaklingur. Slíkir merki- miðar hafa í för með sér að fólki finnst það vera utan við hópinn og útilokað. Við viljum öll vera með í hópnum - hvort sem við eram hiv-smituð eða ekki. í sálgæslunni er kærleikurinn miðaður við þarfir þess sem er hjálpar þurfi. Við skulum alltaf miða við það að koma til manneskjunnar þar sem hún eða hann er - ekki þar sem við vildum að hún eða hann væri. Við skulum spyrja eins og Jesú spurði: „Hvað viltu að ég geri fyrir þig?“ Það nægir ekki að gefa eitthvað í samræmi við kunnáttu og þekkingu - hversu mikilvægt sem það kann að vera. Maður verður um leið að gefa eitthvað af sjálfum sér og af þeirri gjöf lífsins og trúarinnar sem maður hefur sjálfur þegið af Guði. 14

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.