Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.1995, Blaðsíða 23

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.1995, Blaðsíða 23
Hvað Alnæmi er lokastig veirusýkingar af völdum veiru sem nefnd er HIV (Human Immunodeficiency Virus) sem eyðilegg- ur ónæmiskerfi líkamans. Ónýtt ónæm- iskerfi leiðir til þess að sjúklingurinn verður berskjaldaður fyrir sýkingum og ýmsum illkynja sjúkdómum (alnæmur). Eftir að smit á sér stað líða í flestum tilvikum nokkrar vikur eða mánuðir þar til líkaminn myndar mótefni gegn veirunni. Þetta mótefni er hægt að mæla í blóðinu. Rannsóknir benda til þess að 8 til 10 árum eftir smit séu um helmingur smit- aðra kominn með lokastig alnæmis og að flestir sem smitast veikist. Smitleidir. HIV er yfirleitt ekki bráðsmitandi en smit getur átt sér stað á þessa vegu: • Við samfarir, en þar er smokka- notkun eina þekkta vörnin. • Við blóðgjöf, sem á ekki að geta gerst á íslandi vegna skimunar á gjafablóði. • Með blóðblöndun, t.d. með meng- uðum sprautum og nálum, eða ef sýkt blóð kemst í opin sár. • Þá getur veiran einnig borist frá móður til fósturs. Algen'gast er að HIV smitist við sam- farir, annað hvort milli karls og konu eða milli karla. Fínkniefnaneytendur eru í mikilli smithættu ef sama sprautunálin er notuð af fleiri en einum. Engin smithætta er í daglegum sam- skiptum. Hættulaust er að heilsa smituð- um með handabandi eða að faðmast. Hósti og hnerri veldur ekki smiti. HIV smitast hvorki með mat eða drykk og ekki heldur með matarílátum eða í sund- laugum. Einkcnni. Margir þeirra sem smitast eru einken- nalausir mánuðum og árum saman. I nokkrum tilvikum geta þeir sem smitast er alnæmi? fengið bráð tímabundin einkenni nokkrum vikum eftir smit, til dæmis eitlastækkanir, hita, hálsbólgu og stund- um húðútbrot. Veiran getur valdið bráðri tímabundinni heilahimnubólgu og eru þá einkennin höfuðverkur, hiti, Ijósfælni og hnakkastífni. A síðari stigum sjúkdómsins sem oft verður fyrst vart mörgum árum eftir smit, gætir ýmissa einkenna, svo sem við- varandi eitlastækkana, m.a. undir hönd- um og á hálsi, nætursvita, langdregins hita, kvíða og þunglyndis, konur geta fengið þrálátar sveppasýkingar í leg- göng, svo nokkuð sé nefnt. Lokastig sjúkdómsins hefur verið nefnt alnæmi (AIDS). Það einkennist yfirleitt af óvenjulegu sýkingum sem sjást yfirleitt ekki nema hjá einstakl- ingum með verulega skert ónæmiskerfi. Þegar svo er komið sögu geta sjúklingar fengið svæsnar lungnabólgur, sýkingar í miðtaugakerfi, langdreginn niðurgang, lystarleysi og megrast verulega. Sjúkl- ingar með alnæmi geta einnig fengið sjaldgæfar tegundir af krabbameinum. Grcíning. HIV- smit er yfirleitt greint með mælingu mótefnis í blóðprufu. Niður- stöður slíks prófs fást eftir nokkra daga. Lækning. Engin raunveruleg lækning er til við alnæmi enn sem komið er. A hinn bóginn hafa komið fram lyf sem geta dregið úr útbreiðslu veirunnar í líkam- anum og þar með bætt líðan og lengt líf HlV-smitaðra. Alnæmí á Islandi. Fyrsti íslenski sjúklingurinn með al- næmi greindist árið 1985. I ársbyrjun 1992 höfðu 69 einstaklingar greinst HIV- smitaðir þar af 22 greinst með alnæmi og 11 þeirra voru látnir. í ársbyrjun 1995 hafði alls greinst 91 einstaklingur HIV- smitaður á Islandi frá upphafi og af þeim voru 25 látnir. Langflestir höfðu smitast við kynmök. Sennilegt er talið að tala smitaðra sé helmingi hærri. I fyrstu bar nær eingöngu á smiti meðal homma, en smituðum einstakl- ingum í hópi gagnkynhneigðra hefur fjölgað undanfarið. Tíðni meðal kvenna fer vaxandi. Mótcfnamæling. Á höfuðborgarsvæðinu: Göngudeild húð- og kynsjúkdóma Þverholti 18, kl. 9-11:30 (ekki þarf að panta tíma) sími 560-2320. Hægt er að biðja um kynsjúkdómapróf og er þá HlV-mótefnamæling einnig boðin. Göngudeildir Landsspítalans og Borgarspítalans. Heilsugæslustöðvar. Heimilislæknar. Á landsbyggðinni: Heilsugæslustöðvar. Shrífstefan Skrifstofa og upplýsingasími Alnæmissamtakanna á íslandi er opin alla virka daga frá kl. 12-17 að Hverfisgötu 69, Reykjavík. Pósthólf 5238, 125 Reykjavík. Upplýsingar eru fyrir HlV-smitaða, aðstandendur og almenning, algjör trúnaður og nafnleynd. Netfang Aids@Centrum.is Rauðí borðínn Á skrifstofunni eru einnig til sölu málmbarmmerki, Rauði borðinn, til styrktar félagsstarfsseminni, verð er 300 kr. Að bera Rauða borðann er ætlað að sýna samúð og stuðning við fólk sem er smitað eða sjúkt af alnæmi og að- standendur þeirra. Merkin fást einnig í verslunum The Body shop.

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.