Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.1995, Blaðsíða 8

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.1995, Blaðsíða 8
hvern hátt. Ég nefni hér nokkrar þeirra: Ef HlV-jákvæður einstaklingur er óá- byrgur í kynlífi, hvernig er best að bregðast við því út frá hagsmunum ein- staklingsins sjálfs og þjóðfélagsins? Hver er afstaða okkar til ástarsambands smitaðs einstaklings og ósmitaðs eða til löngunar HlV-jákvæðra kvenna og karla til að eignast börn? En ákveðin hætta er til staðar á því að böm smitist í móður- kviði. Þetta eru erfiðar spumingar sem engin einföld svör eru til við. Ógnun vrið félagslega trilvrist er til komin vegna hættu á útskúfun, mismunun eða höfnun vegna HlV-smits. Sú hætta er að hluta til vegna nokkuð lífsseigra hugmynda í þjóðfélaginu um HlV-smit sem á sér sögulegar rætur. Þar ber fyrst að nefna ranghugmyndir um smitleiðir sem leiða af sér óraun- hæfan ótta við smit. Sá ótti virðist vera mjög inngróinn hjá mörgum og hefur birst HlV-jákvæðum í ýmsum myndum, t.d.eru dæmi um að þeim hafi verið synj- að um þjónustu á heilbrigðisstofnunum eða verið sagt upp vinnu vegna HIV- smits. í könnun Landlæknisembættisins frá 1992 um kynhegðun og þekkingu á alnæmi kemur m.a. fram að mikil þörf og áhugi er á fræðslu um alnæmi meðal ýmissa starfsstétta ekki síst meðal heil- brigðisstarfsfólks. Mikilvægt er að koma til móts við þá þörf, því fræðsla og um- ræður um alnæmi eiga þátt í að breyta neikvæðum viðhorfum til HlV-jákvæðra og stuðla væntanlega að minni leynd í kringum sjúkdóminn og betri þjónustu þeim til handa. Almenn urnræða um HlV-smit hér og erlendis hefur einnig einkennst af flokkun á þeim smituðu og hugtök eins og sekt og sakleysi koma þar við sögu. Hommar, vændiskonur og fíkniefnaneyt- endur eru dæmi um þá seku og almennt er álitið að þau geti kennt sjálfum sér um smitið og eigi því ekki neinn sérstakan rétt á samúð. Gagnkynhneigðir, sem smitast hafa við kynmök, flokkast sem hin grunuðu og misjafnt er hversu mikla samúð þau eiga vísa. Þeir sem smitast hafa við blóðgjöf eru fórnarlömbin, hin saklausu sem eiga alla samúð skilda. Tilgangurinn með þessari flokkun í þjóðfélaginu er kannski að halda í ákveðin viðmið um réttlátan heim og að skapa tilfinningu um eigið öryggi. Þannig verður skiptingin „við hin hólp- nu“ og „hinir þessir óheppnu“. Þessi leið hefur hins vegar ókosti, þar sem hún getur byggt á fölsku öryggi og stuðlar jafnframt að því að mynda gjá milli ólíkra þjóðfélagshópa. Ég held að við þurfum öll, sama hvar í flokki sem við stöndum, að skoða vel afstöðu okkar til hinna ólíku hópa og hvaða áhrif sú af- staða hefur og hvort breytinga sé þörf. HlV-jákvæð persóna sem segir frá smiti sínu á því á hættu að vera hafnað og gengur ekki endilega að samúð og stuðningi vísum, sem er jú svo mikilvægt í þessari stöðu. Ef menn hins vegar velja að segja ekki frá smiti sínu eiga þeir á hættu að afneita sjálfum sér og finnast þeir vera mislukkaðir sem aftur getur leitt til sjálfsásökunar og minnkandi sjálfsvirðingar, sem getur valdið því að fólk einangri sig bæði tilfinningalega og félagslega. Til lengri tíma litið verður of dýrkeypt fyrir hinn HlV-jákvæða að halda smitinu leyndu þar sem bagginn þyngist með árunum og fyrr eða síðar varpa flestir þeirra okinu af sér. Hvernig og hversu langt ferlið er fer eftir einstakl- ingum, en aðstoð fagfólks getur verið mjög mikilvæg í þessu sambandi og hef ég í nokkrum tilvikum aðstoðað menn við að taka þau skref að segja nánasta umhverfi frá smiti sínu. Að takast á vrið HlV-smritrið Af framansögðu má ljóst vera að þegar manneskja greinist HlV-jákvæð, stendur hún frammi fyrir algjörlega nýjum lífs- aðstæðum sem hún þarf að takast á við og lifa með. I mörgum rannsóknum hefur verið skoðað hvernig HlV-jákvæðir takast á við smit sitt. í einni franskri rannsókn er skoðað á hvaða hátt HIV- jákvæðir byggja upp nýja sjálfsmynd í stað þeirrar gömlu sem ekki er lengur nýtileg. I rannsókninni kemur fram samhengi á milli mótunar nýrrar sjálfs- myndar og smitleiða á eftirfarandi vegu: - Gagnkynhneigðir (sem smitast hafa við kynmök) bregðast við með skömm og leynd - Hommar verða virkari í pólitísku starfi samkynhneigðra og í forvam- arstarfi - Sprautunotendur sýna áhugaleysi og tómlæti Það verður auðvitað ekki alhæft út frá þessu, en mér finnst ég sjá sömu til- hneigingar hérna heima. Margir gagn- kynhneigðir finna fyrir mikilli skömm 8 sem leiðir óhjákvæmilega til leyndar. Aðlögunartími þeirra hefur verið stuttur, þar sem aukningin hefur verið í þeim hópi á allra síðustu árum og í allmörgum tilvikum hefur greiningin komið þeim mjög á óvart, þar sem þau höfðu ekki grun um að þau gætu verið smituð. Hvað varðar homma þá átti alnæmi einmitt stóran þátt að gera samkynhneigð sýnilega hér á landi og margir HIV- jákvæðir hafa verið virkir í því starfi. Þeir sem hafa átt erfitt með að viður- kenna eða sætta sig við kynhneigð sína virðast hins vegar hafa farið í felur með smit sitt og þá kannski ekki síður til að leyna samkynhneigð sinni vegna þeirra miklu fordóma sem finnast í þjóðfélag- inu. Töluvert hefur verið rannsakað hvaða áhrif ólík viðbrögð einstaklinga við HIV- smiti hafa á andlega líðan og félagslega stöðu þeirra. Niðurstöðurnar eru nokkuð samhljóða niðurstöðum Lenu Nilsson Schönnesson, sem mig langar til að vitna aftur í, en í rannsókn sinni meðal ein- kennalausra HlV-jákvæðra homma greindi hún þrjú mismunandi ferli eða viðbrögð gagnvart HlV-smitinu. Þau eru: Afneitunarferlið (the avoidant meta- bolizing process) einkenndist af því að afneita tilfinningalega og vitrænt raun- veruleika HlV-smitsins annars vegar og hins vegar af niðurdrepandi hugleið- ingum um hugsanleg veikindi. Þeir sem brugðust við smitinu á þennan hátt sýndu neikvæða sjálfsmynd og þunglyndi og fundu fyrir sjálfsásökunum, sektarkennd og vanmætti og einangruðu sig félags- lega. Leitunarferlið (the needy metaboliz- ing process) einkenndist af leit að fólki sem gæti virkað sem hlífiskjöldur gagn- vart kvíða og hjálparleysi sem tengdist óttanum við veikindi. Þetta „hjálparego“ reyndist samt ekki nógu gott og skildi einstaklinginn eftir með áhyggjur sínar af að veikjast. M.ö.o. gat engin mann- eskja staðið undir þeim kröfum að koma í stað þess persónulega innri styrks sem viðkomandi skorti að einhverju leyti. Ákveðniferlið (the self-assertive metabolizing process) einkenndist af sjálfstrausti einstaklingsins, trú hans á eigin styrk og baráttuþreki gagnvart sjúkdómnum. Þeir sem brugðust við á þennan hátt sýndu jákvæða sjálfsmynd og getu til að viðhalda nánum sambönd- um og þeir fengu góðan félagslegan stuðning. Sem fyrr segir markast upplifanir og

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.