Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.1995, Blaðsíða 9

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.1995, Blaðsíða 9
viðbrögð við HlV-smiti af persónuleika og lífssögu viðkomandi ásamt samskipt- um við nánasta umhverfi. Hvernig tekist er á við erfiðleika fyrr á Kfsleiðinni gefur vísbendingar um viðbrögð við HIV- smiti. Mikilvægi stuðnings frá fjöl- skyldu, vinum og öðrum er ótvíræður ef takast á að lifa með smitinu á uppbyggi- legan hátt. En hætt er við að þeir sem þurfa mest á stuðningi að halda fái hann einna síst. Hins vegar er óvíst hvort það stafar af því að fjölskylda eða vinir dragi sig í hlé eða hvort það hljótist af því að hinn HlV-jákvæði forðist samskipti vegna þunglyndis, lítils sjálfstrausts eða af ótta við höfnun. Samskiptin mótast af ýmsu, ef t.d. fjölskylda homma sættir sig ekki við samkynhneigð hans er erfitt fyrir viðkomandi að leita stuðnings þar. Ef hinn HlV-jákvæði hefur í gegnum tíðina tekist á við andstreymi með því að flýja á náðir áfengis- og vímuefna og orðið háður þeim í einhverjum mæli, mótar það einnig samkiptin. Þar sem manneskjan er sífellt að þroskast verða oft vendipunktar í lífinu þar sem hægt er að snúa niðumfsferli og félagslegri einangrun í jákvæða og upp- byggilega þróun. Eg þekki nokkur dæmi þess úr vinnu minni og ég hef orðið þess aðnjótandi að fá að fylgja mönnum á þeirri leið, þó í einstaka tilvikum hafi þeim ekki enst aldur til að gera það sem hugurinn stefndi að. Það er erfitt að segja hvaða þættir hafa mest áhrif á að slíkur vendipunktur verður, en allavega þarf að vera til staðar vilji hins HlV-jákvæða til að leggja á sig þá vinnu sem þarf til að brjóta upp óþolandi mynstur ásamt getu þeirra sem að honum standa til að veita stuðning og aðstoð. Mikilvægt er fyrir okkur fagfólkið að skoða og greina þessi atriði nánar í samvinnu við HlV-jákvæða og aðstandendur þeirra. Aðstandendur Staða aðstandenda HlV-jákvæðra er oft erfið og þeir því í þörf fyrir utanað- komandi stuðning. Fyrir utan áhyggjur af líðan ástvinar síns eru þeir að takast á við eigin sorg og óvissu og oft eru þeir óöruggir í samskiptum við hinn HIV- jákvæða. Leyndin er oft mikil út á við og málin jafnvel lítið rædd innávið. Til að koma til móts við þarfir að- standenda hef ég verið að prófa mig áfram með skipulögðu hópstarfi og námskeiðahaldi. Markmið hópstarfsins hefur verið að gefa aðstandendum HIV- jákvæðra tækifæri til að ræða líðan sína, tilfinningar og viðbrögð við aðra í sam- bærilegum aðstæðum og geta þannig aukið styrk sinn og skilning og gefið og fengið stuðning. Eg hef leitt tvo hópa ásamt öðrum félagsráðgjafa. í hvorum hóp fyrir sig byrjuðu 10 manns en 6-7 héldu áfram og hittumst við vikulega í 11/2 tíma í senn í 8 vikur. Það var sam- dóma álit þeirra kvenna sem sóttu fund- ina að þeir hefðu verið erfiðir en mjög gagnlegir og hefðu veitt þeim aukinn styrk, þarna ræddu þær mál sem þær hefðu annars lítið sem ekkert rætt og það auðveldaði þeim að opna umræðuna í fjölskyldunni og jók þar með gæði sam- skiptanna. Þær sem höfðu verið óöruggar í samskiptum við hinn HlV-jákvæða fannst þær verða mun öruggari. Hópstarf hentar ekki öllum og til að fólk hafi fleiri valkosti stóð ég fyrir helg- arnámskeiði fyrir aðstandendur sem byggði á fyrirlestrum frá mismunandi fagfólki, HlV-jákvæðum einstaklingi og aðstandanda. Einnig gafst góður tími í umræður og samveru. Námskeiðið sóttu 17 manns og var stór hluti þeirra utan af landi enda námskeiðið m.a. haldið til að mæta þörfum fólks á landsbyggðinni. Tókst námskeiðið mjög vel og var ánægjulegt að nokkrir karlmenn mættu, en í hópunum hafa eingöngu konur haldið áfram. Ég hef fengið mjög gagn- legar ábendingar og hugmyndir, bæði frá þeim sem þátt tóku í hópstarfinu og einnig þeim sem þátt tóku í námskeiðinu, og mun það verða mér dýrmætt vega- nesti í áframhaldandi vinnu, en ég stefni að því að halda áfram á svipaðri braut. Einn hópur aðstandenda hefur þó orðið afskiptur og í raun alveg gleymst í umræðunni um málefni HIV- jákvæðra, en það eru börn þeirra. Staðreyndin er nefnilega sú að margir HlV-jákvæðir einstakl- ingar eiga börn, ýmist ung börn, börn á unglingsaldri eða upp- komin börn, jafnvel bamabörn. Það er löngu orðið tímabært að gefa þörfum þeirra gaum. Alnæmi 09 andlegur stuðningur - hvert á að leita? Þar sem yfirskrift námstefn- unnar er „alnæmi og andlegur stuðningur- hvert á að leita?“ kemur hér yfirlit (eftir stafrófs- röð) yfir þá aðila sem veitt hafa HlV-jákvæðum og aðstandendum þeirra aðstoð og stuðning allt eftir þörfum þeirra og aðstæðum. Ekki er um tæmandi lista að ræða. Alnæmissamtökin á íslandi - opið hús - jákvæði hópurinn - aðstandendahópur Borgarspítalinn deild A-7, félagsráðgjafi HIV- jákvæðra, prestur, smitsjúkdómalæknar Heimahlynning Krabbameinsfélagsins Meðferðarstofnanir v/ áfengis- og vímuefnaneyslu / AA- og Alanon samtökin Landspítali deild 11A, prestur, smitsjúkdó- malæknar Prestar Samtökin 78, félag lesbía og homma á Islandi. Sálfræðingar Mig langar til að Ijúka erindinu með hluta úr ljóði eftir Philly Bongole Lutaaya frá Uganda, en hann lést úr alnæmi. Ljóðið heyrði ég fyrst sungið af Afríkubúum á alþjóðlegri ráðstefnu sem ég sótti í Kaupmannahöfn í ágúst síðastliðnum og var það mjög sérstök upplifun. Ég hef þýtt hluta þess á ís- lensku og er það á þessa leið: Aleinn Taktu hönd mína núna Ég er þreyttur og einmana Gefðu mér ást, Gefðu mér von Ekki yfirgefa mig, Ekki hafna mér Eina sem ég þarfnast er ást Og skilningur í dag er það ég Á morgun einhver annar Bæði þú og ég Við verðum að rísa upp og berjast Við munum tendra ljós í baráttunni við alnæmi Komum saman út í dagsljósið Stöndum saman, berjumst gegn alnæmi 9

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.