Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.1995, Page 4

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.1995, Page 4
Aðstandenda- hépar eru starfandi Þar hittast ættingjar og vinir HIV smit- aðra og alnæmissjúkra. Upplýsingar á skrifstofunni mánudaga til föstudaga klukkan 12-17. Styrhir til einstaklinga Félagið veitir einstaklingum sem eru HlV-jákvæðir eða með alnæmi fjár- styrki. Styrkir eru ekki veittir til þeirra hluta sem opinberair aðilar, t.d. félags- málastofnanir eiga að annast. Þeir sem vildu sækja um styrk til félagsins ættu að senda því línu í pósthólfið eða hafa samband við starfs- mann eða stjórnamann til að fá upplýs- ingar um þær reglur sem gilda um styrkveitingar. Námsstefna Alnæmissamtökin á íslandi og Rauði kross Islands hafa staðið árlega fyrir námsstefnu um alnæmi sem haldin hefur verið á haustin að Hótel Lind og hefur hún verið öllum opin. Árið 1995 var hún haldin 17. nóvem- ber með þátttöku þjóðkirkjunnar og var yfirskrift hennar „Alnæmi og andlegur stuðningur - hvert á að leita“. Námsstefnustjóri var Ragnheiður Sverrisdóttir, fræðslufulltrúi þjóðkirkj- unnar. Fræðsla Á árinu 1994 stóðu Alnæmissamtökin fyrir alnæmisfræðslu fyrir unglinga með því að gefa út 16 síðna blað í dagblaðs- formi og var það sent öllum unglingum á landinu sem fæddir eru 1977, 1978 og 1979. Þá um haustið stóðu ÍTR og Alnæmissamtökin að alnæmisfræðslu í 12 félagsmiðstöðvum á Stór-Reykja- víkursvæðinu undir kjörorðunum „Fjöl- skyldan gegn alnæmi - umræða án fordóma.“ Einnig hafa einstaklingar úr Jákvæða hópnum farið með fræðslufundi í félagsmiðstöðvar og framhaldsskóla víða um land.

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.