Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.09.1998, Síða 8

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.09.1998, Síða 8
Fréttabréf Alnæmissamtakanna á Islandi í tilefni merkra tímamóta hjá Alnæmissamtökunum, sem eru eitt af aðildarfélögum Öryrkjabandalags íslands, þá langar mig að festa fá- einar línur á blað, línur sem að miklu leyti verða persónulegar hugleiðing- ar. Um leið fór ég að hugsa um það hversu mörgum félögum ég hefði komið nálægt um dagana, m.a. að stofnun þeirra eða fyrstu skrefum, og þori varla að festa á blað fjölda þeirra en þau munu nokkuð á annan tuginn - alla vega. Þegar Alnæmissamtökin voru stofn- uð þá var Arnþór Helgason formaður Öryrkjabandalagsins. Hann kom að máli við mig og fór að tala um þessi nýju samtök sem stofna skyldi og kvað þau löngu tímabær. Við rædd- um eðlilega um það hversu Öryrkja- bandalagið gæti komið hér að til ein- hverrar styrktar og niðurstaða okkar samtals varð sú að við Arnþór ákváð- um að mæta á fund hjá samtökunum og um leið skyldum við skrá okkur í þau sem félagar. Þetta gekk eftir, við mættum, Arnþór hét stuðningi banda- lagsins við hin nýju samtök, báðir gerðumst við félagar og við fundum báðir að fólki þótti liðsemd okkar ekki lakari. Framhald þessa varð svo það að Arnþór mætti á aðalfund samtakanna, þar sem ég var löglega forfallaður, og ekki nóg með það, fyrir trúlega hans tilverknað og máske annarra einnig var ég dubbaður upp í að verða vara- formaður Alnæmissamtakanna. Mér brá eilítið við þessa upphefð, hafði raunar nóg á minni félagskönnu, en eftir á séð þykir mér aðeins vænt um að þetta varð svo. Ég þurfti ekki mikið á mig að leggja, því þau Auður Matthíasdóttir for- maður, Hólmfríður Gísladóttir ritari og Guðni Baldursson gjaldkeri sáu Helgi Seljan, framkvæmdastjóri ÖBÍ um það sem gjöra þurfti, ásamt þá öðrum, og það með mikilli prýði eins og þeirra var von og vísa. Sannleik- urinn enda sá að býsna gaman var að vinna að þessum málum, mega leggja þeim lið af veikum mætti, kynnast miklu afbragðsfólki, finna til með fólki mikilla og um leið dapurlegra örlaga. Fátt hefur snortið mínar sam- kenndartaugar meir en hin hetjulega barátta þeirra, sem að lokum lutu í lægra haldi fyrir ofureflinu. Ég vakti snemma máls á því sem Arnþór Helgason hafði raunar gjört þegar í upphafi að samtökin ætlu að sækja um aðild að Öryrkjabandalagi íslands, en um slíkt voru fyrst skiptar skoðanir meðal fólks. Það varð þó úr að einróma var samþykkt að sækja um aðild og á aðalfundi Öryrkjabanda- lagsins haustið 1993 urðu Alnæmis- samtökin aðilar að bandalaginu. Von okkar er sú að það hafi til góðs orðið fyrir Alnæmissamtökin og m.a. hafa þau fengið nokkurn fjárhagslegan stuðning allt frá inngöngu félagsins. Sá stuðningur veit ég hefur mikilvæg- ur verið og okkur lijá Öryrkjabanda- laginu gott gleðiefni að geta veitt hann. Nú svo hefur félagið allt frá inngöngu átt fulltrúa í stjóm Öryrkja- bandalagsins - aðalstjórn þess skv. þeirri ágætu reglu að öll aðildarfélög bandalagsins eigi þar sinn fulltrúa. Þannig koma fulltrúar allra aðildar- félaga að allri meiri háttar ákvarðana- töku hjá bandalaginu svo sem best og heppilegast er. En aftur að persónulega þættinum sem óneitanlega blandast inn í þessar hugleiðingar. Félagsaðildinni að Alnæmissamtökunum hefur alla jafna fylgt sú ljúfa skylda að stýra aðalfund- um þess. Þar hafa hin ýmsu mál verið reifuð og rædd og þó er mér minnis- stæðastur sá aðalfundur sem fjallaði að mestu um nýtt lyf og vonirnar því bundnar. Það var hreinlega eins og annað fólk væri til fundar komið, þar sem vongleðin hafði völdin tekið. Öryrkjabandalag Islands sendir aðild- arfélagi sínu bestu óskir og kveðjur með einlægri von um velfamað félags sem félagsmanna. Sjálfur færi ég félagi mínu innilegar óskir um árangur sem allra bestan með þökk fyrir kær kynni af svo ótalmörgum ágætum félögum. Kallið Ég var að vona að þú dveldir lengur hjá mér Ég bar bekkinn að vesturveggnum svo við gætum setið þar í kvöldsólinni En þá kom kallið og þú varðst að fara Nú sit ég á bekknum og strýk í huganum yfír höfuð þitt. Sigrún Ásta Haraldsdóttir

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.