Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.09.1998, Page 20

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.09.1998, Page 20
Fréttabréf Alnæmissamtakanna á Islandi Mynd 1. Fjöldi HIV smitaðra á íslandi sem greinst hafa frá upphafi til 31. október 1998 • ^ 2 I4U 120 o '+H5 ÍUU u *o ÖU bS) ov ci s 4U C3 2U 00 H Med alnæmi □ Án alnaemis -/ f.v.v.v r —! T“—r r “1 ! í árslok 1997 taldi Alþjóðaheil- brigðismálastofnunin að yfir 30 millj. manna væru smitaðir af völdum HIV og að um 16 þús. einstaklingar smit- uðust á degi hverjum. Talið er að 2,3 millj. manna hafi látist af völdum alnæmis á síðasta ári. Þar af létust 800 þús. konur og 460 þús. böm innan 15 ára aldurs. Frá því að alnæmisfaraldurinn hófst er talið að nálægt 12 millj. manns hafi látist af völdum alnæmis, þar af 4 millj. konur og 2,7 millj. barna undir 15 ára aldri. Heildarfjöldi munaðarlausra barna er talinn vera 8,2 millj. frá því að alnæmisfaraldurinn hófst. Fjöldi HIV smitaðra einstaklinga sem greinst hefur á Islandi frá upphafi til 31. október 1998 er 120 manns (mynd 1). Heldur hefur dregið úr nýgengi alnæmis á Islandi á undanförnum árum en hins vegar hefur nýgengi á HIV smiti haldist óbreytt síðasta áratuginn (mynd 2). Þá hefur ekki orðið nein umtalsverð aukning á fjölda látinna síðustu árin (mynd 3). Ekki er nokkur vafi á að ástæðan fyrir því að dregið hefur úr fjölda alnæmissjúklinga og dauða af völd- um alnæmis, er öflugri lyfjameðferð gegn HIV, sem hófst hér snemma árs 1996. Ef sjúklingar þola lyfjameðferð- ina og hún er tekin samviskusamlega er hún afar hjálpleg og hefur hingað til staðist þær væntingar sem gerðar voru til hennar í meginatriðum. Helsta áhyggjuefnið er að veiran myndi smám saman ónæmi gegn lyfjunum en á móti kemur að sífellt er verið að þróa ný og fjölbreyttari lyf gegn veirunni enda hefur þekking á eðli hennar tekið stórstígum fram- förum. Hafa verður þá í huga að lyfja- meðferðin er í sjálfu sér íþyngjandi fyrir hina smituðu. Sjúklingar þurfa að taka mikið af töflum og fylgja meðferðinni vel eftir. Þá hafa flest lyfin í för með sér nokkrar auka- verkanir en sem betur fer þola flestir sjúklinganna aukaverkanirnar, enda þótt þær dragi nokkuð úr gæðum lífs hjá mörgum þeirra sem þurfa að vera í meðferð. cð '3 a o o o o o 2 o ÍST lynd 2. Nýgengi HIV smits og alnæmis á íslandi -O- HIV Alnæini

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.