Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Side 3

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Side 3
Formannsspjall Ingi Rafn Hauksson formaður Ælnæmissamtakann Nú er svo komið að ótti okkar um smitfaraldur meðal sprautufíkla hefur orðið að veruleika. I ljósi þess hefur verið rætt um hvort dreifing nýrra sprautunála ril fíkla, sé siðferðislega rétt eða ekki. Þeirri spurningu verður ekki auðsvarað, en jafn augljóst að við verðum að gera það, hvernig svo sem framkvæmdinni verður háttað. Á sama tíma berast okkur fregnir af auknum fjölda nýgreininga hjá ungum, samkynhneigðumkarlmönnum.Þarverðum við að grípa inn í og hjálpa Samtökunum '78, við annars ágæta fræðslu þeirra hingað til. Nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn til Alnæmissamtakanna, Einar Þór Jónsson, og kemur hann í stað Birnu Þórðardóttur sem gegnt hefur því starfi undanfarin ár. Um leið og ég býð Einar Þór velkominn til starfa, langar mig að nota tækifærið og þakka Birnu fyrir gott og óeigingjarnt starf. Á næsta ári (2008) verða Alnæmissamtökin 20 ára og er þegar hafin hugmyndavinna vegna þeirra tímamóta. Ég kalla eftir hugmyndum frá þér, lesandi góður, um hvernig væri best að fagna þessum tímamótum. Ég óska okkur öllum til hamingju með daginn og fyrst og fremst til hamingju með samstöðuna! Alþjóðlegi alnœmisdagurinn 1. desember Alþjóðlegur alnæmisdagur Sameinuðu þjóðanna er 1. desember. I ár ber hann upp á laugardag. Yfirskrift alnæmisdagsins í ár er Stöðvum alnæmi - efnum loforðin: tökum forystu í eigin hendur! Að vanda verður opið hús hjá Alnæmissamtökunum. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti milli kl. 15.00 og 18.00 í félagsmiðstöð samtakanna að Hverfisgötu 69 og eru allir velkomnir. Búast má við ýmsum óvæntum uppákomum í félagsmiðstöðinni. Kl. 18.30 verður svo safnast saman við Laugaveg 3 (í portinu við Samtökin 78) og gengin blysför að Fríkirkjunni í Reykjavík þar sem kerti verða tendruð til minningar um þá sem látist hafa. Eftir kertalýsinguna verður stutt dagskrá í kirkjunni þar sem prestur Fríkirkjunnar og formaður Alnæmissamtakanna munu segja nokkur orð auk þess sem tónlistarmenn munu gleðja gesti. Allir hiv-jákvæðir, vinir og velunnarar eru hjartanlega velkomnir! Að bera Rauða bOPÓann er ætlað að sýna samúð og stuðning við fólk sem er smitað eða sjúkt af alnæmi. Rauöi borðinn er yfirlýsing um stuðning, krafa um umræðu, ósk um framfarir í rannsóknum og von um að lækning finnist við alnæmi. Rauði borðinn er leið til að gera alnæmi sýnilegt í þjóðfélaginu. UpphafRauða borðans má rekja til listmannahópsins Visual Aids í Bandaríkjunum. Þerta eru samtök myndlistarmanna, listfræðinga og forstöðumenn listasafna. Þau vilja vekja arhygli á því að alnæmi kemur okkur öllum við. uði borðinn Alnœmissamtökin á ísiandi Sambök áhugaPólks um alnœmisvandann HvenPisgöbu 69 101 Reykjavík Alnæmissamtökin reka upplýsinga- miðstöð fyrir almenning og bjóða fram fræðslu til skóla, félaga, fyrirtækja og annarra. Þau reka félagsheimili fyrir smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra. Algjör trúnaður og nafnleynd ríkja. Skrifstofan Hverfisgötu 69 er opin mánudaga til miðvikudaga frá kl. 12 til 16 og fimmtudaga kl. 20-23. Sími: 552 8586 Netfang: aids@aids.is Veffang: www.aids.is Kennitala: 541288-1129 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Birna Þórðardóttir Ritnefnd: Birna Markúsdóttir, Einar Þór Jónsson, Guðni Baldursson, Gunnlaugur I. Grétarsson Umbrot: Steinþór Rafn Matthíasson Forsíða: Gunnlaugur I. Grétarsson og Þórdís Claessen Ljósmyndir: Birna Þórðardóttir, Þórdís Claessen og Steinþór Rafn Matthíasson Prentun: Prentsmiðjan Gutenberg ehf, Dreifing: íslandspóstur Upplag: 6.000 eintök Utgáfudagur: 1. desember 2007 ISSN 1670-2751

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.