Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Side 5
Einar Þón Jónsson
Pnamkvœmdastjóni AlnœmissamCakanna
Hvað eru lífsgæði?
Að vera (being) - líkami, sál og andi, heilsa, færni,
sjálfstæði, sjálfsmynd, gildi, trú
Að tilheyra (belonging) - sjálf, vinátta, samfélag. aðstæður,
tengsl, félagsleg úrræði, þjónusta
Að verða (becoming) - afkoma, afþreying, árangur,
fjölskylda, skóli, vinna, áhugamál, lærdómur, hæfni
Skert lífsgæði
Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað? (Jóhann Jónsson)
Niðurstöður kannana sem gerðar hafa verið á högum hiv-
jákvæðra að undanförnu og skýrt er frá hér í blaðinu, gefa
vísbendingar um að hiv-jákvæðir búi við lakari lífsskilyrði
á ýmsum sviðum en gengur og gerist og þá sérstaklega þau
félagslegu.
Sjálfsfordæming
Kannað hefur verið hvaða merkingu fólk leggur í hiv og
alnæmi. Hér verða taldar upp nokkrar þeirra: Dauði, kynlíf,
kynsjúkdómar, smit, smitberar, eiturlyfjaneysla, hommar,
ólifnaður, vændi og syndsamlegt líferni.
Eftir þessa upptalningu er erfitt að gera sér í hugarlund að
hiv-jákvæðir eigi sér uppreisnarvon við þessar aðstæður og
það er skiljanlegt að flestir þeirra kjósi að lifa í þögn með sitt
hiv. En hverjir fordæma hverja? Það getur verið samfélagið
í heild, vinnustaður, fjölskylda og vinir sem fordæma. Þeir
sem eru fordæmdir geta líka fordæmt aðra. Þeir sem eru
fordæmdir geta líka fordæmt sjálfan sig. Það að fordæma
sjálfan sig er hættulegast og er vel þekkt sjálfseyðingarafl
meðal jaðarhópa. Einstaklingar sem finnst þeir ekki eiga
neitt gott eða betra skilið, til dæmis félagslega, eru ekki með
góða sjálfsmynd.
Breybbur opnunarbími
Á
Styrking sjálfsmyndar
Góð sjálfsmynd er grunnurinn að velfarnaði og lífsgleði.
Styrking sjálfsmyndar felur í sérþekkingarleit. Einstaklingar
með góða sjálfsmynd vilja ekki sitja á varamannabekk, þeir
eru gerendur ekki bara þiggjendur. Gott ráð við styrkingu
sjálfsmyndar er að taka sjálfan sig ekki of alvarlega en hafa
jafnframt trú á sjálfum sér, vera maður sjálfur og ekki hafa
of miklar áhyggjur af því hvað öðrum finnst um mann.
Sókrates hinn gríski átti það einnig til að undirstrika fánýti
þess að eltast við skoðanir annarra á því hvað er gott og hvað
ekki. Hann lagði áherslu á að vitneskjan um það sem gott er
verði að koma frá manni sjálfum. Hún verður að vera einlæg
til að vera sönn.
Sjálfsmyndin felur ekki aðeins í sérþað sem einstaklingurinn
er núna heldur hvernig hann sér sjálfan sig í framtíðinni.
Heimspekingurinn Jean-Paul Satre orðaði það svo að hann
ætti stefnumót við sjálfan sig í framtíðinni. Stefnumótið við
sjálfan sig getur verið svo kvíðvænlegt að viðkomandi vill
helst ekki hugsa um það.
Alnæmissamtökin hafa gengið í gegnum tímana tvenna og
þrenna undanfarna tvo áratugi: Dauðadóminn ... afléttingu
dauðadómsins ... og árin þar á eftir.
Megintilgangur félagsins frá upphafi, var og er, að styðja við
hiv-jákvæða og aðstandendur þeirra, I öðru lagi að sinna
Stjórn Alnæmissamtakanna hefur ákveðið
að hafa opið á fimmtudagskvöldum næstu
vikur til reynslu.
Opnunartíminn á
Hverfisgötunni er
því sem hér segir:
Mánudagar kl. 12.00'16.00
Þriðjudagar kl. 12.00'16.00
Miðvikudagar kl. 12.00-16.00
Fimmtudagar kl. 20.00-23.00
fræðslu og ráðgjöf hvað varðar hiv og alnæmi. Fræðslu- og
forvarnarverkefni Alnæmissamtakanna undir forystu Birnu
Þórðardóttur fráfarandi framkvæmdastjóra hefur vakið
eftirtekt, jafnt hér heima sem og í nágrannalöndunum, en
þar þykir það einstakt að geta náð til allra unglinga þessa
lands a þann hátt sem gert hefur verið hér.
Brýn þörf er á frekari ráðgjöf og tilboðum fyrir hiv-
jákvæða sem styrkir heilbrigt líferni og sjálfsvitund þeirra.
Kannanir benda til að hiv-jákvætt fólk eigi félagslega erfitt
í sínum aðstæðum. Uggvænleg fjölgun hiv-tilfella á öllum
Norðurlöndunum kalia á aðgerðir sem fela í að styrkja þarf
ábyrgðakennd ungs fólks í kynlífi. Verkefnin eru næg!
5