Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Page 7

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Page 7
 Viva Glam! Snyrtivörufyrirtækið M.A.C. hefur dyggilega stutt við bakið á þeim er berjast gegn útbreiðslu hiv og alnæmis, sem og þeim er sýkst hafa eða eiga um sárt að binda að einhverju leyti vegna sjúkdómsins. Alnæmissjóður M.A.C. var stofnaður árið 1994 að frumkvæði þeirra Frank Toskan og Frank Angelo meðstofnenda M.A.C. Sjóðurinn nýtur góðs af Viva Glam varalitnum, en allt söluandvirði varalitarins rennur heilt og óskipt í sjóðinn. Ýmsir hafa orðið til að ljá Viva Glam varir sínar til styrktar sjóðnum, má þarf nefna Sir Elton John, Boy George, Christina Aguilera, Linda Evangelista, k.d. lang og Pamela Anderson. Alnæmissjóður M.A.C. hefur frá upphafi styrkt starf alnæmissamtaka um víða veröld og til þessa hafa ríflega 700 félagasamtök notið góðs af framlögum úr sjóðnum. Markmið sjóðsins er að styðja þau er þjást af völdum hiv og alnæmis en einnig hefur sjóðurinn stutt fræðslu- og forvarnarstarf, svo sem starf Alnæmissamtakanna á Islandi. I ár mun M.A.C. fyrirtækið ekki bregða út af vana sínum. Laugardaginn 1. desember, á alþjóðlega alnæmisdaginn, verður sérstök kynning í verslun M.A.C. í Debenhams í Smáralind. Ýmsir listamenn munu leggja lóð sitt á vogarskálar og aðstoða við fjársöfnun fyrir alþjóðlegt stuðnings- og fræðslustarfi M.A.C. Að sjálfsögðu verður hægt að kaupa varalitinn góða og slá þar með tvær flugur í einu höggi! Rauði borðinn, tímarit Alnæmissamtakanna, mun liggja frammi sem og upplýsinga- og fræðslurit Landlæknisembættisins um hiv og alnæmi. Talið er að um 14 milljónir barna hafi orðið munaðarlaus vegna hiv-veirunnar og alnæmis. Það eru því ekki lítil skörðin sem höggvin hafa verið. Undanfarin ár hafa Alnæmissamtökin lagt mikla áherslu á fræðslu' og forvarnarstarf og kunna M.A.C. bestu þakkir fyrir stuðninginn. Síðustu árin hafa Alnæmissamtökin notið góðs af sölu Viva Glam og hefur það vissulega komið sér vel í því fræðslu- og forvarnarstarfi sem samtökin hafa skipulagt. Birna Þórðardóttir

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.