Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Side 14

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Side 14
Jenna Bush með bók um hiv Breytingin á Jennu Bush, dóttur Bandaríkjaforseta, er eftirtektarverð, úr óstýrilátum unglingi frá Texas í það berjast á ritvellinum fyrir kúgaðar konur í heiminum. Fyrir hálfu öðru ári var hún þekktust fyrir það að reka tunguna framan í fréttamenn og að hafa verið kærð fyrir að eiga áfengi undir lögaldri. Nú blasir allt önnur Jenna Bush við. Hún ferðaðist til Suður- Ameríku á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna og nú gefur hún úr bók, Saga Onnu, vonarferð (Ana’s Story, a Journey of Hope). Þar segir hún frá ævi suður-amerísks unglings sem er smitaður af hiv-veirunni. I bókinni er 102 örstuttir kaflar þar sem sagt er frá ungri stúlku sem þriggja ára missti móðir sína úr alnæmi. Hún hlaut illan aðbúnað hjá fósturforeldrum sínum og varð barnshafandi 16 ára. Jenna Bush segir að sagan sé byggð á Önnu sem er til í raunveruleikanum en hún er líka samofin af mörgum frásögnum annarra. Búast má við að bókinni verði vel fagnað af þeim sem vilja efla smokkanotkun gegn hiv-smiti. Hún minnist á það að stunda ekki kynlíf utan hjónabands - það er umdeild stefna föður hennar í alnæmismálum - en hún segir:„Besta leiðin til að verjast hiv-smiti er að vera trúr félaga sínum og nota smokk." „Jólaplattinn í ár ‘ er frá Jómfrúnni Platti rneá ^ úrvals jólaréttum Þú liring'ir - vió senduin !J ] J J í VHITING AÞJÓNl! STA PÖNTI iNARSÍMI 55 10 100

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.