Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Side 26
'
*
a
Niðunsböðun
líPsgœðakönnunan
meðal hiv-jökvœðna
ó Nonðunlöndum
Menntun, atvinna og Pjárhagsstaða
Helmingur þátttakenda telur þárhagsstöðu sína góða, karlar
eru þar í meirihluta. Ríflega helmingur svarenda er í fastri
vinnu, hluta- eða fullu starfi, 40% vinna fullan vinnudag.
Aðrir eru í námi, endurhæfingu, eftirlaunum, atvinnulausir
eða öryrkjar. Framhalds- eða háskólamenntun er algengari
meðal þeirra sem stunda fulla vinnu. Af þeim sem eru
án atvinnu sögðust 21% vissulega vera tilbúnir að fara á
vinnumarkaðinn ef þeir fengju sérstakan stuðning til þess,
en 54% voru kannski tilbúnir að hefja atvinnu að nýju með
stuðningi.
NordPol, samstarfsvettvangur norrænu alnæmissamtakanna,
stóð fyrir könnun meðal hiv-jákvæðra á Norðurlöndunum um
lífsskilyrði þeirra. Markmiðið var að fá heildstæða mynd af
því hvernig hiv-jákvæðir á Norðurlöndum upplifðu líf sitt og
aðstæður.
Könnunin náði til hiv-jákvæðra í Svíþjóð, Finnlandi og á Islandi.
Þátttakendur voru 823 af þeim 5.000 hiv-jákvæðum sem lifandi
eru í þessum þrem löndum, þar af 24 frá íslandi. Sexhundruð
fjörutíu og sex aðspurðra eru karlar og konur eru 172 talsins.
Hommar og tvíkynhneigðir eru 512 en gagnkynhneigðir 216.
Könnunin er sú fyrsta sinnar tegundar og er ekki vísindalega
viðurkennd. Það voru 49 spurningar lagðar fyrir þátttakendur.
Niðurstöður eru ekki endanlegar, eftir er að vinna frekar úr
þeim. Þær verða síðan bornar saman við niðurstöðum úr fyrri
könnunum sem gerðar hafa verið í Danmörku og Noregi. Hér
verður því stuttlega sagt frá nokkrum þáttum úrvinnslunar sem
okkur hafa verið sendar frá Svíþjóð.
Félagslegar aðsfcœdur
Meirihluti þátttakenda eru barnlausir, nema á íslandi en 54%
svarenda þaðan eiga börn. Félagsleg einangrun er vandamál
meðal þátttakenda á öllum aldri og af báðum kynjum. 59%
svarenda sögðust finna oft eða stundum til einsemdar, þrátt
fyrir að þeir gætu hugsað sér félagsskap annarra.
Þátttakendurvoruspurðirumhelstuafleiðingarþess
að greinast hiv-jákvæður og svöruðu eftirfarandi;
♦ Félagsleg einangrun - einsemd 57%
+ Aukið samband við fjölskyldu og vini 53%
♦ Upplifa sig sýkt/smitandi og halda líkamlegri
fjarlægð frá öðrum 43%
♦ Aukin samkennd og athygli frá öðrum 40%
♦ Upplifa annað fólk hrætt við sig og halda
fjarlægð 31%