Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Page 28
Sem fyrr styður Landlæknisembættið fræðsluverkefni
Alnæmissamtakanna en auk þess hefur fyrirtækið
GlaxoSmithKline stutt verkefnið með mjög myndarlegum
hætti. Fleiri aðilar hafa stutt við bakið á Alnæmissamtökunum
í þessu starfi, svo sem snyrtivörufyrirtækið M.A.C, og
Reykjavíkurborg, þannig að einhverjir séu nefndir.
Kunnum við þeim öllum bestu þakkir.
I tímans rás hefur verkefnið þróast og þroskast. Fræðslu-
fulltrúar okkar hafa í auknum mæli lagt áherslu á siðferðislega
hlið málsins. Nauðsyn þess að hver og einn, unglingur sem
aðrir, sýni sjálfum sér og þar með öðrum virðingu í öllum
samskiptum.
Erfitt getur verið að meta gildi fræðslu- og forvarnarstarfs,
en við getum verið viss um að takist okkur að koma í
veg fyrir eitt nýsmit er betur af stað farið en heima setið.
Tölur um greiningu á klamydíu benda til þess að fræðsla
Alnæmissamtakanna skipti máli. Þess vegna munum við
ótrauð halda áfram!
Birna Þórðardóttir
Fnœðslu- og PorvannanvenkePni
Alncemissamtakanna
Hven og einn
skiptin máli
Síðastliðinn vetur lögðu Alnæmissamtökin af stað með
fræðslu- og forvarnarverkefni fyrir nemendur í níundu og
tíundu bekkjum grunnskóla landsins.
Verkefnið stendur reyndar enn yfir þar sem ekki tókst
að ljúka því fyrir lok skólaárs síðstliðið vor. Þar komu til
ófyrirsjáanleg veikindi og fleira sem lagði stein í götu okkar.
En við látum ekki deigan síga og er nú verið að skipuleggja
síðasta áfanga verkefnisins.
Þetta er í þriðja skiptið sem Alnæmissamtökin standa að
þessu umfangsmikla verkefni. Við skipulagningu er gengið
út frá því að hver og einn einstaklingur sé jafn mikilvægur
og eigi rétt á þeirri fræðslu sem boðið er upp á. Stærð skóla
skiptir þar ekki máli, unglingur í Hrísey á sama rétt til
fræðslunnar og unglingur í Hagaskóla, þótt lengri tíma taki
okkur að komast útí Hrísey en í Vesturbæinn!