Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Qupperneq 30
Alþjóðlegi
alnœmisdagupinn
1. desemben 2007
Sfcöðvum alnœmi - ePnum loPoröin:
fcökum Porysfcu í eigin hendur
Eftir upplýsingum frá Alnæmisstofnun Sameinuðu
þjóðanna lifa nú 39,5 milljónir manna við hiv-smit, þar
á meðal 2,3 milljónir barna. A árinu 2006 smituðust 4,3
milljónir af veirunni. Um helmingur þeirra sem smitast
eru innan við 25 ára aldur og deyr áður en 35 ára aldri er
náð.
Um 95% þeirra sem búa við hiv-smit og alnæmi eiga heima
í þróunarlöndum. En hiv-veiran ógnar körlum, konum og
börnum í öllum heimsálfum, um allan heim.
Alþjóðlegi alnæmisdagurinn var fyrst haldinn 1. desember
1988. Hann var ekki ætlaður til þess fyrst og fremst að
afla fjár, heldur að auka skilning á málefninu, berjast gegn
fordómum og efla fræðslu. Alþjóðlegi alnæmisdagurinn er
mikilvægur til þess að minna almenning á að hiv-hættan er
ekki horfin og það eru mörg verk enn óunnin.
MálePni alþjóðlega alnœmisdagsins 2007
Undanfarin tvö ár hafa einkunnarorð dagsins verið:
Stöðvum alnœmi - efnum loforðin. Sömu einkunnarorð
eru einnig í ár og verður svo fram til ársins 2010. Með
þeim er höfðað til ríkisstjórna, stefnumótenda og
heilbrigðisyfirvalda að þessir aðilar gæti þess að uppfylla
þau margvíslegu markmið sem sett hafa verið í baráttunni
gegn hiv-veirunni og alnæmi. Sérstaklega á þestta við um
þau fyrirheit að allir geti notið meðferðar við hiv-veirunni,
umönnunar, stuðnings og forvarna í síðasta lagi árið 2010.
Sérstökum áherslum er bætt við á hverju ári og í ár er lögð
áhersla á að við tökum forystuna í eigin hendur, hvert og
eitt á sínu sviði, í vinnu, á heimili, í vinahópi, hvar sem er.