Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Síða 31

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Síða 31
Heimsmolar MáiePni alþjóðlega alnœmisdagsins Prá upphaPi 1988 Veröldin sameinuð gegn alnæmi 1989 Okkar líf og okkar neimur - látum okkur annt hverju um annað 1990 Konur og alnæmi 1991 Deilum abyrgðinni 1992 Alnæmi — ábyrgð samfélagsins 1993 Kominn tími til athafna 1994 Alnæmi og íjölskyldan 1995 Sameiginleg réttindi - sameiginleg ábyrgð 1996 Einn heimur - ein von 1997 Börn í heimi alnæmis 1998 Afl til breytinga - heimsátak meðal ungmenna gegn alnæmi 1999 Hlustum, lærum, lifum - ungt fólk og alnæmi 2000 Alnæmi - afstaða karla skiptir máli 2001 Snertir mig - en þig? 2002 Fordómar og útskúrun 2003 Fordómar og útskúfun 2004 Konur, stúlkur, hiv og alnæmi - hlustið á rödd okkar 2005 Stöðvum alnæmi - efnum loforðin: hreinskilni og víðsýni 2006 Stöðvum alnæmi - efnum loforðin: almenna ábyrgð 2007 Stöðvum alnæmi - efnum loforðin: tökum forystu í eigin hendur Niður með virðisaukaskattinn á smokkum Hvergi í Evrópusambandinu er virðisaukaskattur hærri en í Danmörku og Svíþjóð, almenni skatturinn er 25%. Vinstri flokkarnir á Evrópuþinginu standa nú fyrir undirskriftasöfnun á netinu til stuðnings þess að í öllum aðildarlöndunum verði skatturinn á smokkum 5%. Undirskriftirnar á að afhenda stuttu fyrir alnæmisdaginn 1. desember. Samkvæmt reglum sambandsins ráða löndin því sjálf hve hár skatturinn er en hann má hvergi vera lægri en 5%. Mannréttindabrot í Póllandi Mannréttindasamtökin Human Right Watch hafa ritað pólsku ríkisstjórninni - sem er nú nýfarin frá - opið bréf og mótmælt lagafrumvarpi sem er ætlað að banna alla fræðslu um samkynhneigð í skólum og öðrum menntastofnunum. Það brjóti gegn málfrelsi og réttinum á aðgengi að upplýsingum. I frumvarpinu er þeim sem brýtur lögin gert að sæta brottreksti úr starfi og sektum eða fangelsi. Þetta á við alla sem starfa að forvörnum gegn hiv og alnæmi. Eþíópíumenn verjast alnæmi með smokkum með kaffibragði Læknar hafa lengi deilt um áhrif kaffis á heilsuna en það er líklegt að hróður þess aukist, þökk sé smokki með kaffibragði sem á að hvetja til öruggs kynlífs í Eþíópíu. 300.000 stykki seldust á einni viku eftir að sala hófst en bandarískt góðgerðafélag dreifir þeim. Félagið segir að 2,1% Eþíópumanna séu hiv-smitaðir og 7% í Addis Ababa, höfuðborginni. Kaffismokkarnir eru talsvert ódýrari en aðrir og kosta helmingi minna en kaffibolli á kaffihúsi. Þeir eru dökkbrúnir á lit og bragðið er eins og af uppáhaldskaffi flestra, eins konar expresso með miklum sykri og rjóma. Smokkurinn var þróaðir vegna þess að svo margir kvörtuðu yfir latexlyktinni af óbreyttum smokkum. Félagið hefur dreift smokkum í Indónesíu með bragði af durian-ávexti sem er alræmdur fyrir fýlu og í Kína með bragði af sætum maís. Ekki eru allir ánægðir með nýjungina. Talsmaður koptísku kirkjunnar er það ekki enda boðar hún kynlífsbindindi utan hjónabands.„Við erum stolt af kaffinu okkar," segir hann. Maður nokkur, 37 ára, sagðist ekki hrifinn af kaffi- smokkunum. „En ég nota alltaf venjulegan smokk þegar ég á mök við aðrar en konuna."

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.