Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Blaðsíða 37
Mbeki forseti Suðurafríku er enn
„alnæmisandófsmaður“
Ævisaga Thabo Mbekis forseta Suðurafríku er væntanleg
bráðlega. Höfundurinn segir að forsetinn sé enn við sama
heygarðshornið í alnæmismálum þó að hann hafi ekki rætt
þau opinberlega í fimm ár. Hann hætti að tala um alnæmi
vegna óánægju ráðherra í ríkisstjórninni sem sögðu að
hann gerði að engu virðingu þá sem landið hefði áunnið sér
erlendis þegar Nelson Mandela var forseti. Reyndar hefur
heilbrigðisráðherrann, Manto Tshabalala-Msimang, haldið
haldið að tala áfram á sömu nótum og Mbeki.
Mbeki samdi 100 blaðsíðna rit fyrir nokkrum árum sem var
ekki gefið út opinberlega en dreift leynilega. Þar segir hann
að alnæmissérfræðingar séu nútíma útrýmingarbúðastjórar
nasista og svartir menn sem fallist á skoðanir þeirra séu
sjálfsþjökuð fórnarlömb þrælshugans.
A það er bent í bókinni að skýrslur ríkisstjórnarinnar sjálfrar
sýna að yfir tvær milljónir manna eru dánar í landinu af
völdum alnæmis og áttundi hver maður á vinnualdri er hiv-
smitaður.
Mbeki kom í veg fyrir að lyf gegn retró-veirum væru notuð
í almenningssjúkrahúsum því að lyfjafyrirtækin ýktu
tengslin milli hiv-veirunnar og alnæmis til þess að auka
söluna og að þau drægju úr því að lyfin hefðu eituráhrif sem
andófsmennirnir segja að bani fleirum en sjúkdómurinn.
Alnæmi barst með einum
manni til Bandaríkjanna
Að mati bandarískra vísindamanna er afar sennilegt að veiran
sem veldur alnæmi hafi borist til Bandaríkjanna frá Haítí um
1969 með smituðum innflytjanda. Þróunarlíffræðingurinn
Michael Worobey við háskólann í Arizona sagði í október
2007 að þetta hafi verið talsvert fyrr en áður var ætlað. Eftir
þetta hafi veikin kraumað í tólf ár áður en vísindamenn
áttuðu sig á því að upp væri kominn nýr sjúkdómur, Á
þessum árum hafa margir dáið úr honum án þess að það
væri vitað.
Vísindamennirnir uppgötvuðu að veiran hefði borist til
Haítí frá Mið-Afríku um 1966. Okunnur maður, laus og
liðugur, hefur líklega farið frá Haítí til Miami eða New York
og þar hefur ferð veirunnar hafist um Bandaríkin og síðan
um allan heim.
Vísindamennirnir eru nokkuð vissir um þessi kenning sé rétt.
Þeir líta svo á að útilokað sé að veiran hafi borist rakleiðis frá
Afríku til Bandaríkjanna. Samkvæmt rannsóknum munu
menn fyrst hafa smitast af verunni um árið 1930 við það að
borða kjöt af sýktum apa.