Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Side 39

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2007, Side 39
Heimsmolan „Mér finnst ég vera eitraður" Andrew March var 13 ára þegar honum var sagt að hann væri hiv-smitaður. Hann hafði verið beðinn íjórum árum áður að koma í alnæmispróf á sjúkrahúsinu þar sem hann átti heima í Warwickshire á Bretlandi. Skömmin kringum alnæmi var slík að foreldrunum voru aldrei gefin einhlít svör. „Okkur var aldrei sagt frá niðurstöðunum og urðum að giska. Eg var orðinn 13 ára þegar ég fékk fulla vitneskju um að ég væri smitaður. Það kom bréf frá skólastjóranum sem sagðist hafa fengið bréf um alnæmi og vildi fá að vita hvort hann þyrfti að láta sótthreinsa skólann. Þá fóru foreldrar mínir til heimilislæknisins.“ Þá var Andrew sagt frá því að hann hefði smitast við blóðgjöf þear hann var níu ára. „Viðbrögð mín voru þau að gleypa 50 asperíntöflur. Þegar maður er blæðari má maður ekki taka asperín og ég fékk lífshættulega magablæðingu." Nú er Andrew 33 ára tónskáld og býr í London.„Ég fell í flokk þeirra þar sem ekkert virðist vera að gerast og hef ekki fengið nein alnæmislyf. Ég hef brugðist vel við lyfjum gegn lifrarbólgu C svo að það tókst vel. Ég er meðal afar fárra samkynhneigðra blæðara og smitaðist augljóslega áður en ég vissi nokkuð um kynhneigðina. En ég er einhleypur." „Ég hef verið í sambandi tvisvar en sálfræðilega hliðin er hrein martröð þegar kemur að því hefja kynni. Ég hef kynnst fólki sem er dásamlegt og gæti orðið dásamlegir félagar en það gengur ekki lengur en viku. Þetta er mjög erfitt. Mér finnst ég vera eitraður." W Vændi í Burma Þó að vændi sé alvarlegur glæpur samkvæmt lögum herforingjannaíBurmaþrífstþaðvekeinkumíhöfuðborginni Rangoon og í landamærabæjunum við Taíland. Kaupendur eru útlendingar á ferð og vændiskonurnar sækja einkum hótel og bari. Ungar stúlkur geta fengið greidda 100 Bandaríkjadali fyrir nóttina (6.000 krónur) en þær eldri þurfa að sætta sig við minna. Hiv-faraldurinn er óvíða í Asíu alvarlegri en í Burma. Sameinuðu þjóðirnar áætluðu að 360.000 manns væru smitaðir í árslok 2005 og um þriðjungur þeirra sem stunda kynlífssölu. Utgjöld heilbrigðisráðuneytisins til alnæmismála það árið voru 137 þúsund dalir (8,2 milljónir króna). Ibúar landsins eru 47 milljónir svo að útgjöldin eru 17 aurar á hvern íbúa. Vegna stefnu herforingjastjórnarinnar fær landið miklu minni þróunaraðstoð en nágrannalöndin. Árið 2004 fékk Burma 144 krónur í aðstoð á hvern íbúa, Víetnam 1.320, Kambódía 2.100 og Laos 2.820 krónur. Eftir nýjustu atburði í Burma hafa Bandaríkin og Evrópusambandið ákveðið hertar refsiaðgerðir og Japan hættir að veita mannúðaraðstoð.

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.