Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2004, Síða 17

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2004, Síða 17
Það er opinbert leyndarmál, að hin fimmtíu ára gamla Eurovision-keppni hefur alla tíð verið í miklu uppáhaldi hjá hommum. Þeir hafa elt keppnina á röndum heimshornanna á milli, verið tíðir gestir í áhorfendasaln- um, og aðdáendaklúbbar keppninnar eru oftast nær starfræktir af hommum. En yfirlýstir hommar hafa sjald- an verið staddir á sjálfu svið- inu, fyrir framan myndavél- arnar, til að taka þátt í Eurovision sem fulltrúar þjóðar sinnar – nema kannski sem bakraddir. Auðvitað hefur fjöldinn allur af fólkinu í skápn- um tekið þátt í keppninni. †msar getgátur hafa til dæmis verið uppi um kynhneigð Cliffs Richard frá Bretlandi, Jans Verner frá Noregi, Birthe Kjær frá Danmörku og Christers Björklund frá Svíþjóð og svo má áfram telja. Páll Óskar var fyrsti yfirlýsti homminn sem tók þátt í Eurovision árið 1997. Þar með var brotið í blað í sögu keppn- innar, og í kjölfarið kom Dana International frá Ísrael og sigraði. Nú eru yfirlýstir homm- ar og opinberar lesbíur mun óragari að taka þátt í Eurovision, því það hefur löngu sannast að kynhneigð viðkomandi þarf ekki að koma í veg fyrir gott gengi í keppninni. Skemmst er að minnast Deen frá Bosníu sem söng lagið „In the Disco“ og lenti í 9. sæti. Tómas Þórðarson, sem keppti í Eurovision í ár fyrir hönd Dana, heiðrar nú Hinsegin daga með nærveru sinni. Kannski líka sumpart til að þakka fyrir það að Íslendingar gáfu honum 12 stig í Eurovision-forkeppninni – eina þóðin sem færði honum 12 stig. Hann er 29 ára atvinnumaður í tónlist, hann syngur með latínó-bandi sem svipar til Milljónamæringanna og söngurinn er hans lifibrauð. Hann hefur tekið þátt í mörgum söngvakeppn- um í heimalandinu og náð ágætum árangri. „En þetta er toppurinn, að fá að syngja fyrir hönd dönsku þjóðarinnar í Eurovision. Algjört æði,“ sagði Tómas þegar hann hafði unnið sér réttinn til að taka þátt í Eurovison-keppninni fyrir hönd Danmerkur í Istanbul sl. vor. Tómas á íslenskan föður og danska móður og býr á Nørrebro í Kaupmannahöfn ásamt eiginmanni sínum, Kenneth og fósturbarni þeirra. Kenneth var einmitt í bakraddakórnum sem studdi við bakið á Tómasi þegar hann söng til sigurs í undankeppni Eurovision í Árósum í febrúar sl. „Ég söng lagið fyrir Kenneth,“ sagði Tómas í samtali við Ekstrabladet eftir að sigurinn var í höfn. Tómas elskar mann sinn heitt „og það skilar sér alltaf í söngnum,“ segir hann. 29-year-old tomas thordarson represented denmark in this year’s eurovision song Contest. he performed splen- didly when he gained an unequalled victory at the danish national song Contest with the catching latin song “shame on You“. this victory is in fact tomas´ second on national television. two years ago the danes enjoyed his brilliant vocal, when he won the opening round in the premiere edition of the large tv talent show “star for a night“. this brought him to the finals where he ended in third place. shortly after his performance in “star for a night“, tomas took the consequences of his love for music. he felt that the most important thing for him was to be able to earn his living from what made him happy. thus he decided to give up a secure job and started to concentrate entirely on music. now tomas writes his own songs, and spends lots of hours composing music on his beloved computer. this has resulted in a debut album, which is a hot topic right now. tomas himself describes it as a pop album with a touch of latin. his new hit-single “hvis du vil ha´ mig“ is now available in the shops. tomas thordarson is performing at the gay pride open air concert in reykjavík saturday 7 august. Welcome to iceland, tomas! 17 TOMAS Þ O R Ð A R S O N •

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.