Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2004, Síða 21
A P A S P I L
Mér er í fersku minni að egar gervasoni-
málið stóð sem hæst og ég var í mennta-
skóla að ég og vinur minn sem nú er virðu-
legur prófessor skrifuðum fjölda lesenda-
bréfa undir aðskiljanlegum nöfnum sem við
fengum lánuð í því skyni að búa til almenn-
ingsálit. Það voru skemmtileg og skapandi
skrif. kann að hugsast að nú sé eitthvað
svipað í gangi í Morgunblaðinu? að minni-
hlutahópur í skoðunum sé að reyna að láta
líta svo út sem hann sé sjálfur almenningur
að láta í ljós sitt álit? eða getur það verið
einleikið hversu margt gagnkynhneigt fólk
að eigin mati virðist finna sig knúið einmitt
um þessar mundir til að amast við samkyn-
hneigð annarra.
ef marka má umræðuna í Morgunblaðinu
um þessar mundir brennur það heitast á
íslenskri þjóð þetta ár hvort samkynhneigð
sé sjúkdómur sem megi lækna, hvort hún sé
guði þóknanleg, andstæð kristinni trú, viður-
styggð.
Ýmislegt bendir reyndar til að trúfífl séu að
færast í aukana nú í aldarlok. í barnatíma á
sunnudagsmorgni í ríkissjónvarpinu um
daginn velti stúlka fyrir sér upphafi mannsins
og sagði að „ýmsir teldu“ að maðurinn „væri
kominn af öpum“ og klykkti út með því að
það væri „nokkuð athyglisverð hugmynd“.
svo fór hún að segja frá adam og evu.
en ætli við verðum ekki samt að ætla að
flestir landsmenn séu svo upplýstir að vita að
óyggjandi gögn hafa fundist sem sýna að
menn og apar eiga sér sameiginlegan
uppruna. og ætli við verðum ekki líka að
ætla að flestir íslendingar noti aðrar aðferðir
við að gera upp hug sinn um kynhneigðir
náungans en að fletta upp í spámönnum
Biblíunnar. umræðan um samkynhneigð í
Morgunblaðinu hefur sem sé verið alltof
trúarleg til þessa, bæði hjá þeim sem ráðist
hafa á samkynhneigða og líka hjá hinum
sem gripið hafa til varna; það er ekki vanda-
mál samkynhneigðra ef kirkjan á ekki annað
erindi við þá en að segja þeim að leita sér
lækninga við þeim kvilla að vera þeir sjálfir.
Guðmundur Andri Thorsson í DV 1999
Hommaleikhúsið Hégómi
Hommaleikhúsið hégómi – og eftirsókn
eftir vindi í seglin hefur verið á allra vörum
undanfarna mánuði. Frá því leikhópurinn
tók til starfa hafa ellefu hommar leikið í
sýningum hans og þrjár lesbíur ásamt
öðru fólki unnið baki brotnu baksviðs til
að gera sýningarnar mögulegar. Frumsýnt
var á Jóni forseta laugardaginn 22. maí
og síðan hefur leikhópurinn
sýnt þar á hverju laugar-
dagskvöldi.
Leikhópurinn starfar
eftir grasrótarfyrir-
komulagi og því er
engin stjórn í
félaginu, held-
ur tekur hann
allar ákvarðanir
á vikulegum
fundum. Fyrir-
myndirnar eru
sóttar til
hommaleikhúss-
ins í Kristjaníu í Kaupmannahöfn og til
Hjallastefnunnar, þar sem kynin eru
aðskilin en leika sér öðru hvoru saman.
Uppi eru áform um leikferð um landið til
að skemmta öllum Íslendingum og met-
naðarfull verk á leikskránni næsta vetur
– kirsjuberjagarðurinn eftir Tsjekov,
píkusögur og jóla- og áramótaskaup. þá
má ekki gleyma „fitubrennslunámskeiði
sem virkar“ og gefið verður út á mynd-
bandi. Einnig er stefnt að útgáfu á
geisladiski með tónlist úr leiksýningum
hópsins sem mun setja svip sinn á
gleðigönguna niður Laugaveg.
Leiðarljós Hégóma eru húmor, áróður,
ádeila og glamúr fáranleikans. Leikhópn-
um er ekkert heilagt og hann tekur sjálf-
an sig hæfilega hátíðlega. því
að engin sýning er annarri
lík og í raun og veru vita
leikararnir aldrei fylli-
lega hvert einstök sýn-
ing þróast hverju
sinni. Heimasíðan er:
www.folk.is/hegomi
Við bjóðum Hégóma
velkominn á svið Hin-
segin daga laugardag-
inn 7. ágúst.
the icelandic Queer
theater vanity is a
group of gay men in reykjavík who per-
form at Club jón forseti every saturday
night at 11 p.m. the vanity queens will
have their float in the gay parade and
vanity singers and dancers are among
entertainers at the gay pride open air
concert, saturday 7 august, with a classi-
cal number from Mel Brook´s film The
Producers. to learn more about the vanity
theater go to: www.folk.is/hegomi