Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2004, Blaðsíða 30

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2004, Blaðsíða 30
Reykjavíkurborg og Hinsegin dagar í Reykjavík hafa gert með sér samstarfs- samning til þriggja ára. Um er að ræða mjög merkan áfanga í sögu Hinsegin daga og mun samningurinn létta mjög allt undirbúnings- og kynningarstarf hátíðarinnar. Þegar Hinsegin dagar sóttu um styrk til Reykjavíkurborgar vegna ársins í ár, buðu þeir borginni að gera samstarfssamning til lengri tíma. Borgarráð samþykkti síðan í mars að styrkja hátíðina um 1,6 milljónir króna árin 2005, 2006 og 2007, en það er sama upphæð og styrkur borgarinnar til Hinsegin daga er í ár. Þórólfur Árnason borgarstjóri og Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri Hinseg- in daga undirrituðu samstarfssamninginn í ráðhúsinu í júnímánuði. Reykjavíkurborg semur við Hinsegin daga The City of Reykjavík Makes a Long Term Agreement with Pride the city council of reykjavík accepted earlier this year reykjavík pride’s offer to make a three years agreement with the pride. the agreement secures the pride with 1,6 million isk each year through the year of 2007. this will make it easier for the pride organization to publish its information material. thorolfur arnason, mayor of reykjavík, and heimir Már pétursson the executive director of reykjavík gay pride, signed the agreement in City hall last june. Photo: Sverrir Vilhelmsson 30

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.