Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2004, Qupperneq 39

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2004, Qupperneq 39
Ég man ekki hvernig veðrið var þegar ég vaknaði fyrir allar aldir með spennuhnút í maganum af æsingi, kæti, tilhlökkun og öllum góðum tilfinnin- gum í bókinni. Nú var komið að gleðigöngu Hinsegin daga 2003 og ég ætlaði að taka þátt. Mér fannst það svo ótrúlegt og ævintýralegt, því síðastliðin tvö ár hafði ég fylgst með af hliðarlínunni og dáðst að hinum. Gleðin hafði hitt mig beint í hjartastað, þetta frjálslega fas, þau voru þarna bara eins og þau voru, ófeimin og óhrædd. Sú var nefnilega tíðin að ég hélt að ég ætti aldrei eftir að standa í þeirra sporum og hélt mig eins langt inni í skápnum og ég gat. En nú var ég komin út fyrir öllu mínu fólki, búin að eignast kærustur og hafði kynnst fullt af skemmti- legu og góðu fólki, samkynhneigðu og tvíkyn- hneigðu – komin á senuna. Ég tók þátt í fjölmennu lesbíuatriði og minn hópur var útfærsla á „lipstick“ lesbíunni, skvísutýpunni. Æðislegur búningahönn- uður var okkur innan handar og hafði útfært með okkur regnbogalitina á svört föt. Við hittumst allar upptjúnaðar á búningaverkstæðinu okkar en náðum að slaka nógu vel á til að klæða okkur og dást að því hvað við vorum miklar skvísur. Við vorum líka með frábæra sminku sem málaði okkur og allt tók þetta sinn tíma. Svo kysstum við „fyrirpartýið“ bless og keyrðum með búninga- hönnuðinum og sminkunni beint á gönguverkstæðið, alveg þvílíkar dívur. Þar var mikill æsingur, allir að fínpússa sig og sína og sjá um að allt væri á réttum stað, en einhvern veginn var ég bara róleg miðað við spennuna sem hafði heltekið mig fyrr um morguninn. Gat bara ekki beðið eftir því að leggja af stað. Flest atriðin voru komin í startholur göngunnar hjá Hlemmi, en nokkrar okkar urðu eftir á verkstæðinu, því nú rigndi eins og hellt væri úr fötu og okkur vantaði regnhlífar. Þá var brunað í Tiger til að kaupa regnbogaregnhlíf- ar sem höfðu verið uppseldar en von var á nýrri sendingu. Hún kom í tæka tíð og stelpurnar sem fóru til að sækja regnhlífarnar tókst að koma þeim til okkar í tæka tíð. Svo hlupum við niður á Hlemm. Við þetta skapaðist skemmtilega stressaður æsingur. Einhver seinkun var á Hlemmi, en það var bara gaman, fínt tækifæri til að segja hæ við vini og kunningja, skoða hin atriðin og virða fyrir sér hátíðina sem ég var orðin hluti af. Svo lögðum við af stað við dúndrandi músík og þrátt fyrir rigninguna var ekki til það andlit í kringum mig sem ekki lumaði á brosi. Allir döns- uðu í takt við tónlistina, brosandi og veifandi fán- um og regnhlífum, og sjálf var ég engin undantekn- ing. Við lögðum af stað og adrenalínið byrjaði að flæða, þúsund brosandi andlit hvert sem litið var, og þessa stund beindust augu allra að okkur. Ég fann sterkt fyrir samstöðu minnar litlu þjóðar, fyrir viðurkenningu og stuðningi allra sem komu, brostu og keyptu fána handa sér og börnum sínum. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri á að taka þátt í göngunni, þetta var frábær lífs- reynsla, eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert um ævina. Ég hvet sem flesta til að koma og taka þátt í næstu göngu, því þessi hátíðisdagur er kominn til að vera. Takk fyrir mig. Birna hrönn Björnsdóttir, a senior high school student in reykjavík, remi- nisces about her first participation in the pride parade, when she joined the performing group, lipstick lesbians, on 9 august 2003. B I R N A H R Ö N N B J Ö R N S D Ó T T I R 2003 Lipstick-lesbía 39

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.