Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2004, Síða 46
fi A U S T A N D A A ‹ H I N S E G I N D Ö G U M 2 0 0 4
Samtökin ´78 – félag lesbía og homma á Íslandi
www.samtokin78.is - www.gayiceland.com - office@samtokin78.is
Samtökin ´78 eru elstu og stærstu samtök samkynhneigðra
hér á landi og voru stofnuð í maí 1978. Markmið félagsins eru
tvíþætt: Að vinna að baráttu- og hagsmunamálum lesbía og
homma í því skyni að vinna þeim jafnrétti á við aðra á öllum
sviðum þjóðlífsins, og að skapa félagslegan og menningarlegan
vettvang til þess að styrkja sjálfsvitund þeirra, samkennd og
samstöðu um sérkenni sín. Starf félagsins byggist að verulegu
leyti á sjálfstæðum starfshópum. Mikill hluti af starfi félagsins
snýst um réttindabaráttu á opinberum vettvangi. fiað var að
undirlagi Samtakanna ´78 að forsætisráðherra skipaði nefnd til
að kanna stöðu samkynhneigðra á Íslandi og leggja fram
tillögur til úrbóta snemma á tíunda áratug 20. aldar. Sú vinna
bar þann árangur að lög um staðfesta samvist fólks af sama
kyni voru samþykkt árið 1996 og verndarákvæði í íslensk hegn-
ingarlög síðar sama ár. fiá er skemmst að minnast nýfengins
réttar samkynhneigðra í staðfestri samvist til stjúpættleiðingar
árið 2000. Á vettvangi félagsins starfa framkvæmdastjóri,
fræðslufulltrúi og félagsráðgjafar sem veita aðstoð og ráðgjöf
um samkynhneigð málefni.
KMK – Konur með konum
www.geocities.com/konurmedkonum - konurmedkonum@hotmail.com
Konur með konum, KMK, varð til sem grasrótarhreyfing lesbía
fyrir rúmum áratug og hefur starfað síðan með nokkrum
hléum. Vorið 2000 var starfið endurvakið og hefur það aldrei
verið blómlegra en síðustu misseri. Tilgangur hreyfingarinnar
er ekki síst að efla sýnileika lesbía, styrkja samstöðu þeirra,
gefaþeim tækifæri til að skemmta sér á eigin forsendum og
kynn-ast öðrum í hópnum. Á vettvangi KMK starfar róðrar-
liðið Gazellurnar sem oft hefur orðið sigursælt á Sjómanna-
daginn. fiá stunda stúlkurnar í KMK blak af kappi og kepptu á
Alþjóða-leikum samkynhneigðra – Gay Games – á síðasta ári.
fiá mála þær landsbyggðina í regnbogalitunum á sumarhátíðum
sínum og bregða sér í útilegur og veiðiferðir þegar vel viðrar.
Á hinni vinsælu vefsíðu KMK er að finna líflega umræðu sem
átt hefur drjúgan þátt í að efla styrk hreyfingarinnar.
MSC Ísland
www.this.is/msc - msc@this.is
MSC Ísland var stofnað árið 1985 og sniðið eftir gay vélhjóla-
klúbbum þótt reyndar fari meira fyrir tilheyrandi klæðnaði og
félagsskap en þeysingi á hjólum. Klúbburinn hefur sínar klæða-
reglur, leður, gúmmí-, einkennis- og gallaföt, og ástæðan er
einfaldlega sú að félagarnir vilja hafa karlmenn karlmannlega
klædda og þá heldur ýkt í þá áttina en hina. MSC Ísland hefur
ferðamennsku og fyrirgreiðslu við erlenda ferðamenn beinlín-
is á stefnuskrá sinni og félagið var ekki síst stofnað til þess að
Íslendingar gætu orðið formlegur aðili að Evrópusamtökum
slíkra klúbba, ECMC. Bein pólitísk afskipti eru ekki á dagskrá
en í reynd hafa ECMC-samtökin verið ein virkustu alþjóða-
samtök samkynhneigðra í heilan aldarfjórðung og lagt mikið af
mörk-um til baráttunnar fyrir stolti, sýnileika og samábyrgð.
FSS – Félag samkynhneigðra og tvíkynhneigðra stúdenta
www.gay.hi.is - gay@hi.is
Félag samkynhneigðra og tvíkynhneigðra stúdenta, FSS, var
stofnað í janúar 1999 af einum 20 stúdentum við Háskóla
Íslands. Brátt var hópurinn orðinn um 150 manns og hefur
félagið haldið uppi blómlegu félagsstarfi síðan. Markmið
félagsins er að vera sýnilegt afl innan háskólasamfélagsins á
Íslandi og í forsvari þar þegar málefni samkynhneigðra ber á
góma. Allir nýnemar við Háskóla Íslands fá sendan kynningar-
bækling á hausti um félagið og starf þess og þeim boðið til
hátíðar á vegum félagsins. Félagið tekur virkan þátt í samtök-
um ungs samkynhneigðs og tvíkynhneigðs fólks í Evrópu,
AFFS, en FSS heldur næsta fund samtakanna nú í byrjun ágúst.
Reglubundin félagsstarfsemi fer einkum fram á svokölluðum
GayDay kvöldum, en þau eru haldin hálfsmánaðarlega. Á
þeim vettvangi skapast þægilegt og gott andrúmsloft þar sem
auðvelt er fyrir nýtt fólk að slást í hópinn.
Jákvæður hópur homma
www.aids.is - aids@aids.is
Fyrir sextán árum stofnuðu nokkrir hommar, sem höfðu smit-
ast af HIV-veirunni, hóp til að styðja hver við annan í lífsbarátt-
unni á tímum þegar aðkast í garð HIV-jákvæðra var daglegt
brauð í fjölmiðlum og lífsvonir litlar fyrir þá sem smitast höfðu.
Eftir að Alnæmissamtökin á Íslandi voru stofnuð hefur hópurinn
starfað á vettvangi þeirra samtaka og lagt mannréttindabarátt-
unni lið með því að upplýsa um HIV og samkynhneigð.
The Forces behind Reykjavík Gay Pride 2004
The gay comunity in Iceland has joined forces to celebrate Gay
Pride 2004 with festivities in Reykjavík on the second weekend
of August. The Reykjavík Gay Pride 2004 is organized by the
Icelandic Organization of Lesbians and Gay Men Samtökin ´78,
the Gay and Lesbian University Student Union FSS, the women´s
group Women with Women KMK, the leather club MSC Iceland,
and the HIV-Positive Group of Gay Men.
Útgefandi: Gay Pride – Hinsegin dagar í Reykjavík
Laugavegi 3 – 101 Reykjavík
Ábyrgðarmaður: Heimir Már Pétursson
Hönnun: Tómas Hjálmarsson
Merki Hinsegin daga: Kristinn Gunnarsson
Ljósmyndir: Árni Torfason, Bára, Helgi Jóhann Hauksson,
Páll Stefánsson, Sóla, Sverrir Vilhelmsson og fleiri.
Textar: Anna Sif Gunnarsdóttir, Ásta Hlöðversdóttir, Birna
Hrönn Björnsdóttir, Heimir Már Pétursson, Páll Óskar
Hjálmtýsson, Ragnhildur Sverrisdóttir, Veturliði Guðnason,
fiorvaldur Kristinsson, fiórhallur Vilhjálmsson.
Auglýsingar: Birna fiórðardóttir, Guðjón R. Jónasson,
Heimir Már Pétursson.
Prentun: Prentsmiðjan Oddi hf.
w w w . s a m t o k i n 7 8 . i s
46