Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2009, Blaðsíða 18
Natthawat Voramool byrjaði snemma að koma fram á
skemmtunum heima í sveitinni sinni í Taílandi. Hann nam
söng og dans og sérhæfði sig í tónlist sem nefnist Molan
og er ættuð úr norðausturhéruðum landsins. Um þriggja ára
skeið starfaði hann við söng- og dansleikhús sem ferðaðist
víða um land og skemmti. Árið 2005 fluttist Natthawat til
Íslands og hefur síðan auðgað líf okkar með nærveru sinni
og afburða kunnáttu í dansi og söng. Búningar Natthawats
eru stældir eftir ævafornum viðhafnarklæðum taílenskra
konunga sem skörtuðu ógrynnum gersema til að sýna tign
sína og vald. Við bjóðum Natthawat og félaga velkomin á
útihátíð Hinsegin daga við Arnarhól laugardaginn 8. ágúst.
tHE oRiEntal EXpREss
a singer and dancer since childhood, natthawat
Voramool grew up to master the exotic musical
style of Molan, originated from his native thailand.
natthawat, along with several dancers, will perform
songs and dances of love at the open air concert at
arnarhóll, saturday, 8 august.
Kvennarokkhljómsveitin Elektra hóf feril sinn
í Söngvakeppni sjónvarpsins á þessu ári
þegar stúlkurnar fluttu lagið „Got no love“
eftir Örlyg Smára og höfnuðu í 3. sæti.
Hljómsveitina skipa þær Nana, Dísa, Eva
og Brynhildur og nýlega hafa þær gefið út
lögin „Sísí“, sem er vinsæl endurgerð á lagi
Grýlanna, og „Komdu aftur“ eftir Dr. Gunna.
Við bjóðum stúlkurnar í Elektru velkomnar á
útihátíð Hinsegin daga við Arnarhól 8. ágúst.
you don’t nEEd a to HaVE a
coMplEX to likE tHEsE giRls
the all-girl rock band Elektra came
together for the first time when they
participated in the primary for this year’s
Eurovision song contest. the band has
recently released a handful of new
singles that they promise will blow peo-
ple’s minds. we welcome Elektra to the
open air concert at arnarhóll, saturday,
8 august.
elektra
n
a
tth
a
w
a
t