Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2009, Síða 36
Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, gaf
út yfirlýsingu frá Hvíta húsinu hinn 1. júní
sl. þess efnis að framvegis skuli júní vera
mánuður lesbía, homma, tvíkynhneigðra
og trans-fólks, mánuður stolts og virðingar
þessum þjóðfélagshópum til handa. Um
leið skorar hann á bandarísku þjóðina að
afnema misrétti og vinna gegn hvers kyns
fordómum og kúgun gagnvart hinsegin
fólki, hvar sem slíkt birtist.
Þessi yfirlýsing markar tímamót. Aldrei
fyrr hefur forseti Bandaríkjanna tekið jafn
skorinort til máls og kveðið jafn skýrt á um
mannvirðingu og mannréttindi til handa
hinsegin fólki í landi sínu. Í yfirlýsingunni
rifjar hann upp framlag homma og lesbía til
menningar minnihlutahópa með Stonewall-
uppreisninni í New York sumarið 1969,
fyrir nákvæmlega fjörutíu árum. Hann
minnir sérstaklega á það mikla framlag
sem hinsegin fólk hefur lagt til mannrétt-
indaumræðu í Bandaríkjunum, hyllir allar
þær manneskjur sem komist hafa til áhrifa
án þess að gera kynhneigðina að fjötri
um fót og þakkar sérstaklega fyrir framlag
samkynhneigðra til baráttunnar gegn HIV
og alnæmi á liðnum árum.
Um leið minnir forsetinn á að þrátt fyrir
sigrana sé mikið verk að vinna í þágu þess-
ara þjóðfélagshópa. „Hinsegin unglingar,“
segir hann, „verða að eiga þess kost að
menntast án þess að lifa í ótta við ofsóknir
og ofbeldi, hinsegin fjölskyldur og aldraðir
skulu eiga kost á að lifa með fullri reisn
E I N S T Ö K Y F I R L ý S I N G B A N D A R Í K J A F O R S E T A
Júní – MÁnUðUR HinSEGin FÓLKS
og njóta virðingar samborgara sinna.“
Um leið nefnir forsetinn það að ríkisstjórn
hans hafi tekið höndum saman við
Sameinuðu þjóðirnar í því skyni að berjast
gegn kúgun samkynhneigðra víða um heim,
og hvað varðar innri málefni ríkisins heitir
hann því að gera allt það sem í hans valdi
stendur til að útrýma hatursglæpum, styðja
stöðu hinsegin fólks innan stéttarfélaga,
vernda pör og fjölskyldur samkynhneigðra,
berjast gegn einelti og kúgun á vinnustöð-
um og tryggja samkynhneigðum rétt til
ættleiðinga á borð við aðra þegna landsins.
Þá segir Barack Obama það eindreginn
vilja sinn að binda enda á þá auðmýkjandi
stefnu sem hefur viðgengist í Bandaríkjaher
og er venjulega bundin í orðunum „Don´t
ask, don´t tell“ – „ekki spyrja, ekki segja
frá“. Og hann bætir við:
„Öll þessi málefni varða ekki aðeins
samfélag hinsegin fólks, heldur líka
gjörvalla þjóðina. Svo lengi sem við
uppfyllum ekki fyrirheitið um jafnan rétt
allra, mun það setja mark sitt á líf allra
Bandaríkjamanna. Með því að vinna saman
að þeim hugsjónum sem lögðu grundvöll-
inn að þjóðlífi okkar, mun það verða öllum
Bandaríkjamönnum til hagsbóta.“
M S C I C e l a n d – G a y P r I d e 2 0 0 9
OPIÐ FIMMTUDAG, FÖSTUDAG OG LAUGARDAG
OPEN THURSDAY FRIDAY & SATURDAY
SUNNUDAG / SUNDAY: JOCKS & UNDERWEAR
www.msc.is
36