Bæjarins besta


Bæjarins besta - 11.01.2006, Síða 1

Bæjarins besta - 11.01.2006, Síða 1
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk Miðvikudagur 11. janúar 2006 · 2. tbl. · 23. árg. Sigríður Guðjónsdóttir tekur við viðurkenningu og farandgrip í tilefni útnefningarinnar. Sitt hvoru megin við Sig- ríði eru Thelma Hjaltadóttir, blaðamaður á Bæjarins besta og bb.is og Örn Torfason eigandi Gullauga á Ísafirði. Vestfirðingur ársins 2005 valinn á bb.is Vestfirðingur ársins 2005 samkvæmt vali lesenda frétta- vefjarins bb.is er Sigríður Guðjónsdóttir, íþróttakennari á Ísafirði, sem átti því láni að fagna að bjarga ungum dreng frá drukknum í sundlaug Bol- ungarvíkur 1. desember sl. Sigríður fékk rúmlega 22% greiddra atkvæða en á fjórða hundrað manns tóku þátt í kjörinu. Sigríður er fyrsta konan sem kjörinn er Vestfirð- ingur ársins af lesendum bb.is. Sigríður hlaut flest atkvæði Alls fengu 42 einstaklingar atkvæði í kosningunni og fengu þeir sem voru í 1.-5. sæti yfir 53% greiddra at- kvæða. Sigríður tók við viður- kenningu í tilefni útnefning- arinnar undir lok síðustu viku sem og eignar- og farandgrip sem smíðaður er af Ísfirðingn- um Dýrfinnu Torfadóttur gull- smið. Í öðru sæti að mati lesenda bb.is var Vilborg Arnarsdóttir í Súðavík sem m.a. setti á stofn fjölskyldugarðinn Raggagarð í Súðavík um minningar um son sinn sem lést í bílslysi. Í þriðja sæti varð Sólberg Jóns- son, fyrrverandi sparisjóðs- stjóri í Bolungarvík og land- eigandi í Leirufirði í Jökul- fjörðum og fékk hann atkvæði sín fyrir lagningu vegar í fjörð- inn sem mikið var rætt um í fjölmiðlum síðastliðið sumar. Í fjórða sæti varð Elvar Logi Hannesson, leikari og nýkjör- inn bæjarlistamaður Ísafjarð- arbæjar, í fimmta sæti varð síðan Jón Fanndal Þórðarson, verslunarmaður og formaður Félags eldri borgara á Ísafirði. Frá því val á Vestfirðingi árs- ins hófst á vegum bb.is hefur Jón Fanndal ávallt verið á meðal fimm efstu í kjörinu. Hann var í öðru sæti á síðasta ári. Sjá nánar um valið á Vest- firðingi ársins 2005 á bls. 4 og viðtal við Sigríði á bls. 9. – bb@bb.is Framlegð frá rekstri Ísa- fjarðarbæjar fyrir fjárfestingar og afborganir langra lána fyrir fyrstu ellefu mánuði ársins 2005 var jákvæð um 90 millj- ónir kr. en neikvæð um 261 milljón kr. eftir fjárfestingar. Þetta kemur fram í mánað- arskýrslu fjármálastjóra um rekstur og fjárfestingar á árinu 2005. Tekjur bæjarins voru 1.951 milljón kr. og gjöld án reiknaðra liða voru 1.861 milljón kr., og fjárfestingar voru -351 milljón króna. Jákvæð framlegð Sáttasemj- ari ráðinn Einar Gylfi Jónsson sál- fræðingur hefur verið ráðinn af menntamálaráðuneytinu sem sáttasemjari í meintri deilu starfsmanna Mennta- skólans á Ísafirði. Starfshópur ráðuneytisins sem kannaði starfsumhverfi í skólanum komst greindi frá því í skýrslu sinni í fyrra að það væri raunhæfasta leiðin til þess að leysa úr þeim ágreiningi sem verið hefur um allnokkurt skeið innan veggja skólans. Fyrsta barn ársins á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Ísafirði kom í heiminn 4. janúar sl. Er það stúlka sem fæddist þeim Sóleyju Sveinsdóttur og Guð- bjarti Ólafssyni. 53 börn fæddust á Ísafirði árið 2005 sem er heldur færra en árið þar á undan þegar 61 barn fæddist. „Árið lítur ágæt- lega út og dreifast fæðingar misjafnlega yfir árið“, segir Margrét Bjarnadóttir ljósmóð- ir. Fyrsta barn ársins fætt 02.PM5 5.4.2017, 10:071

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.