Bæjarins besta


Bæjarins besta - 11.01.2006, Síða 11

Bæjarins besta - 11.01.2006, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2006 11 Sú einkennilega staða kom upp á fimmtudag í síðustu viku að vél Flugfélags Íslands lenti tóm á Ísafjarðarflugvelli með- an nærri 50 farþegar biðu þess fyrir sunnan að komast vestur. Senda átti þá farþega með ann- arri vél einungis 15 mínútum síðar, en vegna bilunar tafðist brottför og þegar vélin komst loksins vestur var orðið ófært til lendingar. Ólafur Ólafsson sem starfar við flugumsjón hjá Flugfélag- inu segist vel skilja að fólk hafi verið svekkt vegna þessa. „Þetta er pínlegt, ég viður- kenni það og verð bara að biðj- ast afsökunar á þessu. Tvær vélar þurfti til að flytja farþega að vestan, en farþegar á vestur- leið komust fyrir í einni vél og til hagræðingar var ákveðið að senda aðra vélina tóma, eins og oft er gert. Í slíkum tilfellum eru farþegar þó yfirleitt sendir með fyrri vél“, segir Ólafur. „Í þetta skiptið voru ekki allir farþegar mættir, þó þeir hafi flestir verið komnir, og var því ákveðið að senda þá korteri seinna. Þegar kom að brottför vildi svo illa til að bilun varð til þess að það þurfti að fresta. Svo var orðið ófært og flugi aflýst.“ Ekki var flug- fært til Ísafjarðar á ný fyrr en rétt fyrir hádegi á laugardag, eða tveimur sólarhringum síð- ar. – halfdan@bb.is Vél lenti tóm á Ísafirði meðan farþegar biðu enn í Reykjavík Pétur Tryggvi Hjálmarsson Meðal bestu silfur- smiða á síðustu öld Kanna eftir silfursmið- inn Pétur Tryggva var valin í hóp bestu verka silfursmiða 20. aldar hjá Koldinghus-listasafninu á Jótlandi. Koldinghus sem á eitt stærsta silfursafn 20. aldar í Evrópu valdi nýlega 24 bestu verk safnsins eftir átján silfur- smiði og hönnuði. Var gefin út bók með mynd- um af verkunum ásamt umfjöllun um smiðina. „Ellefu af þessum átján smiðum eru látnir og sá elsti var fæddur 1843. Þá eru margir góðir smiðir sem ekki eru í bókinni“, segir Pétur Tryggvi. Verkin spanna alla 20. öldina og eru eftir þekkta silfursmiði eins og George Jensen og því ljóst að um mikinn heiður er að ræða. „Þetta er mjög ánægjulegt og ég áttaði mig ekki alveg á þessu fyrst“, segir Pétur Tryggvi. Hann lauk sveinsprófi í gullsmíði hjá föður sínum, Hjálmari Torfasyni, árið 1979, og hefur unnið við gull- og silfursmíði síðan. Hann stundaði nám í Institut for Ædelmetal í Kaup- mannahöfn 1981-83. Silf- ursmíði Péturs Tryggva hefur víða vakið athygli og hann hefur unnið til fjölda viðurkenninga fyrir verk sín. – thelma@bb.is Pétur Tryggvi Hjálmarsson. Slökkvilið Ísafjarðarbæjar Þrjátíu útköll á nýliðnu ári Slökkvilið Ísafjarðarbæjar var kallað út 30 sinnum á nýliðnu ári. Ellefu útkallanna voru vegna elds, tvö vegna mengunarslysa, sjö vegna dælingu úr kjöllurum húsa, tvö vegna feilboðunar eld- varnarkerfa, tvö vegna um- ferðarslysa, tvö vegna örygg- isvaktar í samkomuhúsum og fjögur vegna óveðurs. Eitt dauðsfall varð í bruna á árinu. Sjúkraflutningar voru 218 talsins. Þar af voru al- mennir flutningar 126 og for- gangsflutningar 61. Þetta kemur fram í nýútkominni ársskýrslu slökkviliðsins. Þar fyrir utan stóðu slökkvi- liðsmenn sjö sinnum vakt við olíuskip og ellefu sinnum voru staðnar helgarvaktir yfir sumartímann. Tíu æfingar voru haldnar á árinu, þar af eitt námskeið frá Brunamála- skóla. „Á árinu voru eldvarnar- eftirlitsskoðanir um 82 tals- ins af 130 skoðunarskyldum og af þeim voru 60 bruna- varnarskýrslur Allir skólar voru heimsóttir og rætt við alla átta ára nema um bruna- mál. Einnig var nokkur fræð- sla á vegum slökkviliðsins bæði fyrir einstaklinga, fyrir- tæki og skóla í meðferð slökkvitækja. Unnið er eftir vinnureglum um eftirfylgni eldvarnareftirlit fyrir slökk- vilið Ísafjarðarbæjar sem hafa verið samþykktar af bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar“, segir í skýrslunni. „Almannavarnir Ísafjarð- arbæjar funduðu 13 sinnum á árinu og þurfti nefndin að rýma hús vegna snjóflóða- hættu í byrjun janúar í Hnífs- dal, Ísafirði, Dýrafirði og Ön- undarfirði. Snjóflóð féll á varnargarð við sorpbrennsluna Funa í Skutulsfirði og á íbúðar- húsið að Hrauni í Hnífsdal og íbúðarblokk við Árvelli. Hafði þetta svæði verið rýmt stuttu áður að ósk almannavarnar- nefndar. Mikið tjón varð á hús- um á Hrauni og á Árvöllum skemmdist fjölbýlishús og spennistöð. Auk þess sendi nefndin út fjölmargar við- varanir vegna hættu á viss- um svæðum í Ísafjarðarbæ. Nefndin hélt nokkrar skrif- borðsæfingar á árinu. Á næsta ári verða töluverðar breytingar á nefndinni þar sem fyrirhugað er að al- mannavarnarnefndin í Súða- vík sameinist Ísafjarðar- nefndinni.“ – halfdan@bb.is Slökkvistöðin á Ísafirði. Dr. Þorleifur Ágústsson hjá Rf á Ísafirði Tekur þátt í rannsókn á hugs- anlegum erfðaáhrifum fiskeldis Dr. Þorleifur Ágústsson, fisklífeðlisfræðingur hjá Rannsóknastofnun fiskiðnað- arins á Ísafirði, tekur þátt í alþjóðlega verkefninu Geni- mpact, sem gengur út á að safna saman upplýsingum um hugsanleg erfðaáhrif fiskeldis. Þessum upplýsingum verður síðan miðlað til hagsmunaðila, stjórnvalda og almennings. Fullt heiti verkefnisins er Eva- luation of genetic impact of aquaculture activities on na- tive populations – A European network. Það er leitt af dr. Terje Svåsand hjá norsku haf- rannsóknastofnuninni. Þor- leifur rannsakar annars vegar áhrif eldis á genamengi fiska og hins vegar þróun mælitækni til að hægt sé að meta gena- mengun í náttúrunni. „Erfðabreytt matvæli hafa verið talsvert til umræðu á síð- ustu árum og eru ekki allir á eitt sáttir um áhrif þeirra. Um- ræðan hefur verið af tvennum toga, annars vegar hvort mat- vælin geti haft skaðleg áhrif á heilsu manna og hins vegar hvaða áhrif ræktun erfða- breyttra nytjaplantna hafi á umhverfið og lífríkið í heild. Þessi umræða hefur einnig náð til fiskeldisiðnaðarins, þar sem ýmsir hafa áhyggjur af hugsan- legum áhrifum eldisfisks á villta stofna“, segir í frétt á vef Rannsóknastofnunar fisk- iðnaðarins. – halfdan@bb.is Dr. Þorleifur Ágústsson. Sveitarstjórnarkosningar í Ísafjarðarbæ 2006 Prófkjör minnihlutaflokk- anna haldið 25. febrúar Prófkjör til sameiginlegs framboðs minnihluta- flokkanna í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, Sam- fylkingar, Vinstrihreyf- ingarinnar græns fram- boðs og Frjálslyndra og óháðra verður haldið þann 25. febrúar nk. Þá hefur Jón Ásgeir Sigurðsson verið ráðinn í hlutverk kosningaráðgjafa hjá sam- eiginlegu framboði flokk- anna. Jón Ásgeir er dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu, en er í fríi frá því starfi. Prófkjör flokkanna verður með því framboðs undir lok nóv- embermánaðar og hafa starfað að undirbúningi framboðsins síðan. Í síðustu sveitarstjórnar- kosningum fékk Vinstri- hreyfingin 6,7% af gildum atkvæðum, og náði ekki inn manni í bæjarstjórn. Samfylkingin fékk 22,7% og náði inn tveimur mönn- um á meðan Frjálslyndir fengu 13,4% og einn mann kjörinn. Samtals voru flokkarnir þrír því með 42,8% atkvæða, en ein- ungis þriðjung bæjar- fulltrúa. – eirikur@bb.is sniði að svokallað hólfa- prófkjör verður fyrir fyrstu fjögur sætin en bar- áttusætið, fimmta sætið, verður skipað sameigin- legum fulltrúa sem allir flokkarnir geta sætt sig við. Uppstillt verður svo í sætin sem eftir eru. Flokkarnir ákváðu að ganga til sameiginlegs Jón Ásgeir Sigurðsson. 02.PM5 5.4.2017, 10:0711

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.