Bæjarins besta


Bæjarins besta - 11.01.2006, Side 17

Bæjarins besta - 11.01.2006, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2006 17 Fréttaannáll ársins 2005 – síðari hluti bara vilja fá að vera í friði. Hann vildi greinilega láta lítið á sér bera og stoppaði frekar stutt“, segir Eygló Jónsdóttir, kaffihúsagestur. Að sögn starfsmanna á Langa Manga staldraði Viggo við á kaffihús- inu, fékk sér kaffibolla og skoðaði myndlistasýningu sem þar stendur yfir. Sam- kvæmt upplýsingum bb.is kom Viggo til Ísafjarðar á laugardag með ferjunni Baldri yfir Breiðafjörð. Var hann einn að ferðast á bíl og sneri aftur með Baldri á sunnudag. Grafíkball í fyrsta sinn í tæp 20 ár 06.07 Ísfirska hljómsveitin Grafík heldur dansleik í fé- lagsheimilinu í Hnífsdal þann 23. júlí næstkomandi. Að- spurður segist Helgi Björnsson söngvari sveitarinnar halda að hátt í tuttugu ár séu síðan Graf- ík hélt dansleik fyrir vestan. „Það hlýtur að vera ansi langt síðan. Sennilega var síðasta Grafíkballið haldið þar árið 1987, þá með Andreu Gylfa- dóttur söngkonu. Sjálfur söng ég síðast með Grafík á balli fyrir vestan í júlí 1986“, segir Helgi. Sæluhelgi á Suðureyri 11.07 Sumarhátíðin Sælu- helgi á Suðureyri er að baki og þótti takast vel þrátt fyrir að veður hafi ekki verið með besta móti. „Sæluhelgin hepp- naðist vonum framar þrátt fyrir leiðindaveður og í heildina litið erum við ánægðir. Þó það hafi verið blautt og vindasamt yfir helgina tel ég að allir hafi farið heim með sól í hjarta“, segir Sturla Páll Sturluson, einn Mansavina sem skipu- leggja Sæluhelgina. Varðeldur í Naustahvilft 18.07 Nær 250 manns gengu upp í Naustahvilft í fjallinu Erni ofan byggðar á Ísafirði til að njóta skemmtunar við varð- eld á föstudagskvöld. Sam- koman var liður í útivistarhá- tíðinni Útilífverunni. „230 manns skráðu sig í gestabók- ina og eflaust hefur einhverj- um láðst að kvitta fyrir komu sína. Þarna var fólk á öllum aldri og margir sem höfðu aldrei farið upp í Naustahvilft en skelltu sér nú þar sem þeir höfðu skemmtilegt tilefni“, segir Rúnar Óli Karlsson, einn af skipuleggjendunum. Hafnarstræti 17 rifið 03.08 Ásýnd Eyrar í Skut- ulsfirði breyttist mjög í gær- morgun þegar starfsmenn Ísa- fjarðarbæjar hófust handa við að rífa húsið númer 17 við Hafnarstræti. Staðið hefur til um nokkurra ára skeið að rífa húsið þar sem það hefur lengi verið fyrir skipulagi enda stóð það vel út í Hafnarstrætið. Eig- andi hússins, Ísafjarðarbær, seldi húsið í vor fyrir 2.005 krónur en kaupandinn stóð ekki við tilboð sitt. Því var ákveðið að rífa það nú. Húsið var byggt árið 1907 og bílskúr við það var byggður árið 1940. Það var í heild tæpir 275 fer- metrar að stærð. Raggagarður opnar 08.08 Raggagarður, fjöl- skyldugarður Vestfjarða í Súðavík, var tekinn í notkun á laugardag. „Það var rosalega stór áfangi að geta opnað garð- inn í ár. Ég gat ekki betur séð en að börn og fullorðnir hafi verið hæstánægð með þetta en það var töluvert að fólki þarna saman komið og svo var stöð- ugt rennerí allan daginn“, segir Vilborg Arnarsdóttir frum- kvöðull að byggingu garðsins en nú hefur verið stofnað áhugamannafélagið Ragga- garður um uppbyggingu hans. Mýrarknatt- spyrnumót 11.08 Mót í mýrarknatt- spyrnu verður haldið á Ísafirði um helgina og er það í annað sinn sem keppni í þessari skemmtilegu en miður hrein- legu íþrótt er haldin á Íslandi. Knattspyrnufélagið Reynir frá Hnífsdal varð fyrsti Íslands- meistarinn í fyrra og verða liðsmenn þess krýndir um helgina. Upphaf þessarar óvenjulegu íþróttar má rekja til skóglendis Norður-Finn- lands þar sem er að finna tals- verð mýrlendi sem myndast á auðum blettum í skóginum eftir að tré hafa verið höggvin. Herkastalinn endurbyggður? 16.08 Umhverfisnefnd Ísa- fjarðarbæjar hefur veitt heim- ild til að skipta tveimur íbúð- um hússins að Mánagötu 4 á Ísafirði í þrjár íbúðir og til að hafa í húsinu verslunar- og þjónusturými auk þess að setja kvist á austurhlið hússins. Breytingarnar eru hannaðar af Sverri Norðfjörð. Um leið og nefndin féllst á tillögurnar benti hún á ákvæði um bruna- varnir. Mánagata 4 er í daglegu tali nefnd Herkastalinn og hófst bygging hússins árið 1920. Hjálpræðisherinn reisti húsið og árið 1922 var stofn- sett í kjallara þess „gamal- mennahæli“ og mun það hafa verið fyrsta elliheimilið á Ís- landi. Perlufiskur hættir starfsemi 20.08 Fiskverkunin Perlu- fiskur á Þingeyri hefur hætt starfsemi og einnig hefur út- gerð í eigu sömu eigenda verið hætt. Nú eru 22 skráðir at- vinnulausir á Þingeyri. For- maður atvinnumálanefndar Ísafjarðarbæjar hefur heyrt af málinu en ekkert erindi hefur borist á borð nefndarinnar og því hefur nefndin ekki fjallað um það. Fleiri eru nú atvinnu- lausir á Þingeyri en á Bíldudal. Ástarvikan sett 22.08 Hjartalaga blöðrum var sleppt upp í himininn er Ástarvikan í Bolungarvík var sett í gær. „Bæjarbúar og ná- grannar tóku vel í upphaf Ást- arvikunnar og það var ljóm- andi vel mætt“, segir Ingibjörg Vagnsdóttir, einn af skipu- leggjendum Ástarviku. Mark- mið ástarvikunnar er að fjölga Bolvíkingum og verða verð- laun í boði fyrir afraksturinn. Leggur af stað í Vestfjarðasund 22.08 Sundkappinn Bene- dikt Lafleur hóf sjósundferða- lag sitt um Vestfirði í gær þeg- ar hann lagði upp frá Gilsfirði. Hann ætlar að synda alla firði fjórðungsins að Ströndum undanskildum til að draga at- hygli að náttúrulegum og menningarlegum fjársjóðum sem þar eru. Áætlað er að ferðalagið taki um tvær vikur. Markmiðið með sundinu er annars vegar að vekja athygli almennings á þeim umhverfis- perlum sem Vestfirðir hafa upp á að bjóða nútímanum með sinni ósnortnu náttúru, sem og kröftugu menningar- starfi Vestfirðinga í heima- byggð sinni, sögu þeirra og framtíð í heimi nútímans. Sindraberg óskar gjaldþrotaskipta 23.08 Stjórn sushi-verk- smiðjunnar Sindrabergs ehf., á Ísafirði hefur óskað eftir því að bú félagsins verði tekið til gjaldþrotaskipta. Sindraberg var stofnað haustið 1999 og var megin tilgangur með stofn- un þess, framleiðsla á frosnum sushi-réttum. Um var að ræða nýsköpun, ekki bara á Íslandi, heldur í Evrópu. Fyrirtækið hóf að selja sushi-rétti á inn- lendum markaði, en markað- urinn reyndist afar smár. Strax í byrjun var þó stefnt að út- flutningi sem hófst á árinu 2000. Tap hefur verið á rekstri fyrirtækisins. Stútur undir stýri endaði inn í garði 29.08 Jeppabifreið lenti utan vegar á Seljalandsvegi á Ísa- firði aðfararnótt laugardags og endaði hún inn í garði húss við Miðtún. Vegfarandi, sem varð vitni að atburðinum, til- kynnti óhappið til lögreglu. Þegar lögregla kom á staðinn voru tveir menn í bifreiðinni. Þegar þeir urðu lögreglu varir lögðu þeir á flótta en náðust fljótt og voru þeir handteknir. Ökumaður bílsins er grunaður um ölvun við akstur. Erfitt er að átta sig á með hvaða hætti óhappið átti sér stað því bif- reiðin rann afturábak niður af Ríkisstjórn Íslands samþykkti í haust tillögu samgönguráðherra um aðgerðir á Óshlíðarvegi. Vegagerðinni var falið að hefja rannsóknir og und- irbúning að jarðaganga- gerð með það fyrir aug- um að framkvæmdir geti hafist haustið 2006. Gert er ráð fyrir að jarðgöngin verði um 1.220 metrar að lengd og kosti um einn milljarð króna. Einnig var samþykkt að auka eftirlit á veginum um hlíðina og það verði forgangsatriði að koma upp GSM sambandi á þessum vegarkafla. Í minnisblaði sem Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra lagði fram á fundin- um er sagt frá stöðu mála og þeirri hættu sem vegfar- endur hafa ítrekað staðið frammi fyrir undanfarin ár. Þá er sagt frá þeim hugmyndum sem fram hafa komið til lausnar vandamálsins. Þessi ákvörðun vakti blendin viðbrögð hjá Vestfirðing- um, sem vildu margir að farnar væru aðrar leiðir en þær sem ríkisstjórnin stakk upp á. Jarðgöng í Óshlíð veginum. Helst geta menn þess til að ökumaðurinn hafi ætlað að snúa bifreið sinni með þess- um afleiðingum. Rækjuvinnslu hætt í Súðavík 31.08 Rækjuvinnslu hjá Frosta hf. í Súðavík verður hætt innan skamms og við það missa 18 manns vinnuna hjá fyrirtækinu. Stjórn félagsins ákvað þetta til þess að komast hjá því að félagið færi í þrot. Eigendur Frosta hf. eru Hrað- frystihúsið-Gunnvör hf. í Hnífsdal og Súðavíkurhrepp- ur. Fyrirtækið var stofnað á síðasta ári og tók við rækju- vinnslu HG í Súðavík 1. maí 2004. Hálf milljón safnaðist 06.09 Ágóði góðgerðartón- leika Krabbameinsfélagsins Sigurvonar sem haldnir voru í íþróttahúsinu á Torfnesi í lok ágúst er um hálf milljón króna samkvæmt fyrstu tölum. Allir sem komu að tónleikunum gáfu vinnu sína og settur var upp ljósabúnaður sem vegur 1.200 kg og er það stærsta ljósakerfi sem notað hefur ver- ið á Vestfjörðum. Á tónleikun- um komu fram Á móti sól, Birgitta Haukdal, Nylon, Sign, Davíð Smári Harðarson, Nine elevens, Apollo og Húsið á sléttunni. Hönnun brúar yfir Mjóafjörð 12.09 Segja má að nú sjái fyrir endann á síðasta áfangan- um í uppbygginu Djúpvegar en unnið er að hönnun brúar yfir Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi og hefur verið ákveðið að byggja bogabrú. Brúin er liður í endurbyggingu Djúpvegar á 28,3 km kafla frá Eyrarhlíð í Ísafirði, yfir Reykjarfjörð, yfir Mjóafjörð um Hrútey og að slitlagsenda utan Hörtnár. Ætlunin er að ljúka verkinu árið 2008. Þegar hafa verið opnuð tilboð í 3,6 kílómetra hluta leiðarinnar í Svansvík, sem er fyrsti hluti síðasta áfanga uppbyggingar Djúp- vegar, eins og komist er að orði í framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar. Brúin mun liggja yfir sundið austanmegin við Hrútey en vestanmegin verður lögð fylling. Sundinu að vestanverðu verður líklega lokað áður en brúin verður byggð. Verðandi ráðherra óskað til hamingju 26.09 Á árlegum aðalfundi Eldingar, félags smábátaeig- enda á Vestfjörðum, sem hald- inn var á Hótel Ísafirði í gær, lét fundurinn bóka hamingju- óskir til nýskipaðs sjávarút- vegsráðherra Einars Kr. Guð- finnssonar sem tekur við em- bætti á morgun. Óskar aðal- fundur Eldingar Einari vel- farnaðar í starfi og vonast félagið eftir góðu samstarfi við hann í framtíðinni. Einar er fyrsti ráðherra sem Vestfirð- ingar hafa átt síðan Sighvatur Björgvinsson hvarf úr ríkis- stjórn árið 1995 og fyrsti vest- firski ráðherra Sjálfsstæðis- flokksins síðan Matthías Bjarnason lét af embætti 1987. Meintar ólöglegar sæbjúgnaveiðar 04.10 Varðskip kom á sun- nudaginn að Hannesi Andrés- syni SH-747 þar sem skipið var við sæbjúgnaveiðar á Aðalvík. Við athugun varð- skipsmanna kom í ljós að leyfi til tilraunaveiða á sæbjúgum var útrunnið. Var skipið því fært til Bolungarvíkur og er málið nú til meðferðar hjá sýslumanninum í Bolungar- vík. Veiðar á sæbjúgum í plóg eru bannaðar við Ísland nema með sérstöku leyfi frá sjávar- útvegsráðuneytinu. Sturla kominn til heimahafnar 12.10 Sturla Halldórsson, nýr hafnsögubátur Ísfirðinga, sigldi rétt í þessu inn Skutuls- fjörðinn til heimahafnar. Nú býðst bæjarbúum að skoða bátinn og þiggja kaffiveitingar í Guðmundarbúð. Aðspurður segir Guðmundur Kristjáns- son hafnarstjóri að sér lítist vel á bátinn. Hann hafi reynst vel í sjó á siglingunni frá Pól- landi þrátt fyrir vonskuveður á köflum. Sturla Halldórsson, sem nefndur er í höfuðið á fyrrum yfirhafnaverði Ísa- fjarðar, verður strax tekinn í notkun en Þytur, gamli lóðs- bátur Ísafjarðarhafnar, verður seldur. Eins og sagt hefur verið frá var báturinn sjósettur í Gdansk í Póllandi í ágúst og var lagt af stað áleiðis til Ís- lands fyrir tæplega þremur vik- um síðan. Til stendur að kaupa nýtt skip 24.10 Til stendur að kaupa nýtt skip í stað flutningaskips- ins Jaxlsins sem seldur var til Danmerkur í síðustu viku. Að því er kemur fram á mbl.is segir Einar Vignir Einarsson, skipstjóri Jaxlsins og talsmað- ur Sæskipa ehf., að rekstur skipsins hafi gengið erfiðlega þrátt fyrir samning um gáma- flutninga fyrir Eimskip. Þá segir Einar reksturinn vera þungan og ótraustan, sér í lagi þar sem fyrirtækið hafi ekki bindandi flutningasamninga við fleiri en Eimskip, og því hafi tap verið mikið á rekstr- inum. Nú er verið að leita kjöl- festusamninga til að tryggja rekstur nýs skips. Jaxlinn tekur 02.PM5 5.4.2017, 10:0717

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.