Bæjarins besta - 11.01.2006, Page 10
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 200610
Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra skrifar
Upphlaup tveggja þingmanna
Vefur BB á Ísafirði er mikið
lesinn enda aðgengilegur og
vel gerður og er hann einn
þeirra vefmiðla sem ég reyni
að fylgjast með vegna starfs
míns. Hann er að mínu mati
mikilvægur vettvangur til
sóknar og varnar í þágu byggð-
anna á Vestfjörðum. Hann er
því mikið notaður af þing-
mönnum sem koma á framfæri
skoðunum sínum og á honum
eru fréttir sem vekja oft at-
hygli.
Breytingar á framkvæmd
póstdreifingar við Ísafjarðar-
djúp hefur gefið tveimur þing-
mönnum tilefni til þess að
hlaupa upp í fjölmiðlum og
leita leiða til árása á mig sem
samgönguráðherra. Þetta upp-
hlaup og málflutningur þing-
mannanna hefur gefið mér til-
efni til þess að hugleiða starf
stjórnmálamanna og ekki síður
samstarf þingmanna. Er það
góðum málsstað til framdráttar
að sverta aðstæður og nota að-
gang að fjölmiðlum til þess að
láta líta svo út sem að við-
komandi hafi ástæðu til þess
að veitast að samstarfsmanni
án þess að gefa færi á málefna-
legri og upplýstri umræðu?
Um jól og áramót gefast
stundir til þess að hugleiða
umburðarlyndi og afstöðuna
til náungans og ekki síst sam-
starfsmanna. Ég er einn þeirra
sem hef hugleitt þessar hliðar
mannlífsins vegna starfs okkar
stjórnmálamanna. Harkan í
garð stjórnmálamanna hefur
verið að aukast og sumir
stjórnmálamenn ganga raunar
sjálfir á undan með fordæmi
sem er lítt til eftirbreytni. Að
nota hvert tækifæri til þess að
gera samstarfsmenn sína tor-
tryggilega getur ekki þjónað
ærlegum eða málefnalegum
tilgangi. Á Alþingi gefst tæki-
færi til umræðu og svara þegar
deilt er um málefni.
Á þeim vettvangi gefst færi
á því að svara og skýra málin
og þar eru fyrirspurnartímar
þar sem þingmenn geta t.d.
sett fram spurningar til ráð-
herra og skapað málefnalega
umræðu. Í fjölmiðlum ljósvak-
ans gefst ekki alltaf tækifæri
til þess að bregðast við full-
yrðingum eða sleggjudómum.
Vefmiðlarnir eru hraðfleygir
og önnum kafnir ráðherrar
hafa ekki tækifæri til þess að
liggja yfir spjalli á vefnum.
Mér hefur verið bent á upp-
hlaup í fjölmiðlum af hálfu
samþingsmanna minna þeirra
Jóns Bjarnasonar, þingmanns
Vinstri grænna og Sigurjóns
Þórðarsonar, þingmanns
Frjálslyndaflokksins. Tilefnið
er endurskipulagning póst-
dreifingar við Ísafjarðardjúp.
Að því tilefni hafa þeir félagar
ekki vandað mér kveðjurnar.
Á BB vefnum talar Sigurjón
Þórðarson um kaldar kveðjur
Sturlu Böðvarssonar og Jón
Bjarnason skrifar í alla miðla
og þar á meðal í BB um að
,,blásið sé í Póstlúðra við Ísa-
fjarðardjúp” gegn hagsmunum
íbúanna við Djúp. Þeir ágætu
þingmenn tala og skrifa eins
og þeir einir beri hag íbúa
dreifbýlisins fyrir brjósti. Þetta
upphlaup þeirra er ótrúlega
ómálefnalegt. Ekki höfðu þeir
fyrir því að leita upplýsinga
hjá samgönguráðherra, sem
þeir voru að gagnrýna og væna
um að hafa ekki hagsmuni íbú-
anna í huga og mátti ætla af
þessum skrifum að ég hefði
sérstakan áhuga á að skerða
þjónustu íbúa við Ísafjarðar-
djúp.
Að þessu tilefni vil ég segja
að Íslandspóstur hefur skyld-
um að gegna í samræmi við
lög og reglur. Það fer ekki á
milli mála að ráðuneytið fylgir
því eftir að þeim skyldum sé
sinnt. Ágætt samstarf er og
hefur verið milli samgöngu-
ráðuneytisins, Íslandspósts og
sveitarstjóra Súðavíkurhrepps
um þá þjónustu sem veitt er,
og verður veitt, á vegum Ís-
landspósts. Er fullt samkomu-
lag um það hvernig íbúunum
við Djúp verður þjónað. Vil
ég vísa til þess sem kemur
fram á heimasíðu Súðavíkur-
hrepps um málið og á heima-
síðu minni. Vænti ég þess að
íbúarnir á svæðinu átti sig á
því hverjir hafi raunverulega
verið að vinna að hagsmuna-
málum þeirra. Upphlaup og
vinnubrögð þessara tveggja
þingmanna hljóta að vekja
furðu. Ég hef orðið þess ríku-
lega var í viðbrögðum þeirra
sem hafa haft samband við
mig og leggja mikið upp úr
góðu og árangursríku sam-
starfi þingmanna og íbúa kjör-
dæmisins. Ég hef ekki lagt það
í vana minn að eltast við ómál-
efnalegt fjas í minn garð. En
ég gat ekki látið þessu ósvarað.
Sturla Böðvarsson.
Sturla Böðvarsson.
Olíudreifing ehf. hefur ósk-
að eftir því fyrir hönd Skelj-
ungs hf. og Olíudreifingar ehf.
að Ísafjarðarbær heimili þeim
uppbyggingu birgðastöðvar
fyrirtækjanna við Suðurgötu
á Ísafirði. Í beiðninni er falin
ósk um stækkun núverandi
lóðar um 1.130 m², eða úr
2.190 m² í 3.320 m². Í fyrsta
áfanga hyggjast félögin setja
niður tvo bensíngeyma neðan-
jarðar, steypa botn þróar,
ganga frá áfylliplani og frá-
rennslisskilju, flytja geymir
sem nú er staddur við Mjósund
og loka þeirri stöð í framhald-
inu. Í bréfi sem Hörður Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri
Olíudreifingar, skrifar bæjar-
ráði segir meðal annars:
„Að breytingum loknum
yrðu geymar stöðvarinnar
málaðir og umhverfi snyrt
þannig að sem minnst færi fyr-
ir þessari starfsemi og hún gæti
verið eigendum sínum og bæn-
um til sóma.“ Í öðrum áfanga
fælist þá að nýir geymar yrðu
byggðir og þró yrði stækkuð
sem því nemur, í bréfinu segir
að ráðast eigi í þær fram-
kvæmdir „þegar markaðurinn
[kallar] á fleiri tegundir elds-
neytis“. Þá hafa félögin hug á
að koma fyrir afgirtu bílastæði
og starfsmannaðstöðu á lóð-
inni við Suðurgötu.
Þá kemur fram að gangi bæj-
aryfirvöld að beiðni félaganna
muni þau lýsa því yfir að nú-
verandi lóðaleigusamningur
sem gerður var 1950 til 99 ára
komi til endurskoðunar, líkt
og Halldór Halldórsson bæjar-
stjóri Ísafjarðarbæjar hefur
gert kröfu um, og felld verði
út grein um að bænum sé skylt
að kaupa upp eignir olíufélag-
anna vilji bærinn ekki fram-
lengja lóðaleigusamninginn
að loknum leigutíma.
Halldór Halldórsson bæjar-
stjóri lagði fram tillögu til sam-
þykktar á beiðni félaganna
með fimm skilyrðum:
„1. Gerður verði nýr lóðar-
leigusamningur sem nái til
þeirrar lóðar sem olíufélögin
hafa og viðbótarlóðar sem
samningur er runninn út á.
Samningurinn verði ekki til
lengri tíma en núverandi samn-
ingur, þ.e. til 45 ára.
2. Ákvæði verði í nýjum
lóðarleigusamningi að þrátt
fyrir ákvæði skipulags- og
byggingarlaga um uppkaup
eigna eftir að lóðaleigusamn-
ingur rennur út, muni það ekki
eiga við í tilfelli lóðar við Suð-
urgötu.
3. Olíufélögin uppfylli öll
skilyrði laga og reglugerða um
olíubirgðastöð og frágangur
verði þannig að sem minnst
fari fyrir stöðinni í umhverf-
inu. Sökum þéttrar byggðar á
Ísafirði er krafa um frágang
og umgengni mjög ströng.
4. Olíufélögin láti vinna
hættumat vegna staðsetningar-
innar við Suðurgötu og sam-
anburðarmat við aðra staði
sem nefndir hafa verið sem
valkostir á eyrinni. Tekið verði
tillit til löndunar á olíu og bens-
íns í því hættumati þar sem
metið sé hvort meiri hætta sé
af löndun olíu og bensíns innan
eyrarinnar en í Sundahöfn.
5. Eftir að mannvirki hafa
verið fjarlægð við Mjósund
gangi olíufélögin frá svæðinu
þannig að til fyrirmyndar sé
og tryggi með mælingum að
ekki sé mengun í jarðvegi.
Mælist mengun geri olíufé-
lögin ráðstafanir til að ráða
bót á því.“
Birna Lárusdóttir, formaður
bæjarráðs, lagði til að tillögu
bæjarstjóra yrði vísað til bæj-
arstjórnar til samþykktar. Til-
laga Birnu var samþykkt 2-1
og lét Lárus G. Valdimarsson,
bæjarfulltrúi Samfylkingar-
innar, bóka mótatkvæði sitt.
Olíufélögin óska eftir stækkun á lóð
Olíutankar olíufélaganna við Suðurgötu.
02.PM5 5.4.2017, 10:0710