Bæjarins besta - 11.01.2006, Síða 16
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 200616
STAKKUR SKRIFAR
Kosningaskjálfti, kirkja og samkynhneigð
Stakkur hefur
ritað vikulega pistla í
Bæjarins besta í mörg
ár. Skoðanir hans á
mönnum og málefn-
um hafa oft verið
umdeildar og vakið
umræður. Þær þurfa
alls ekki að fara
saman við skoðanir
útgefenda blaðsins.
Þrátt fyrir það bera
ábyrgðarmenn
blaðsins ábyrgð á
skrifum Stakks á
meðan hann notar
dulnefni sitt.
Smáauglýsingar
Svart leðurveski með gylltu járni
til að loka, tapaðist í Krúsinni
aðfararnótt nýársdag. Töskunni
eða innihaldi hennar skal vin-
samlegast skilað á lögreglustöð-
ina eða hafa samband í síma
867 9068.
Gleraugu í bláu hulstri týndust
á gönguleið um Seljalandsveg
og Engjaveg. Vinsamlegast haf-
ið samband við Brynhildi í síma
866 5243.
Silfurhringur tapaðist í Félags-
heimilinu á Suðureyri eða ná-
grenni á gamlárskvöld. Fundar-
laun. Vinsamlegast hafið sam-
band í s. 865 4791 og 895 7131.
Eldri borgarar í Ísafjarðarbæ!
Leikfimin í gamla íþróttahúsinu
hefst að nýju mánudaginn 16.
janúar. Sama tímasetning og
fyrir jól. Stjórnin.
Til sölu eru tveir hornsófar,
ljósbrúnn leðursófi og annar
með með munstruðu tauáklæði.
Líta báðir vel út. Fást fyrir sann-
gjarnt verð. Upplýsingar í síma
892 1688.
Sá sem tók svarta kuldaskó
merkta HJ í misgripum á Grunn-
eða Tónlistarskólanum, hafi
samband í síma 456 3135 eða
860 4414.
Til sölu er Hyundai H100, sendi-
bifreið árg. 96. Er í fínu standi.
Selst fyrir lítið fé. Upplýsingar
í síma 892 4844.
Fréttaannáll ársins 2005 – síðari hluti
Viðburðarríkt ár fyrir Vestfirðinga
Seinni hluti árs 2005 var sérlega viðburðaríkur
tími á Vestfjörðum. Ákveðið var að grafa göng á
Óshlíð og flytja sjúkraflugsþjónustu fyrir Vest-
firði til Akureyrar, kosið var um sameiningu
sveitarfélaga, fiskvinnslufyrirtækjunum Bíld-
dælingi á Bíldudal, Sindrabergi á Ísafirði, Perlu-
fiski á Þingeyri og rækjuvinnsla Frosta í Súðavík
var lokað þó reyndar séu líkur til að Bílddæling-
ur opni að nýju á næstunni. Rækjustofninn brást
fullkomlega og gengi íslensku krónunnar fór
síhækkandi með þeim slæmu afleiðingum sem
slíkt hefur fyrir útflutningsfyrirtæki. En það
þýðir víst lítið að sýta orðna hluti og Vest-
firðingar stefndu ótrauðir áfram þrátt fyrir
barninginn. Leiklistarhátíðin Act Alone var sett í
fyrsta sinn á Ísafirði, Raggagarður var opnaður í
Súðavík, ástarvikan var haldin hátíðleg í Bol-
ungarvík og hljómsveitin Grafík lék listir sínar í
félagsheimilinu í Hnífsdal. Vestfirðingar eign-
uðust þá sinn fyrsta ráðherra síðan Sighvatur
Björgvinsson hvarf úr ríkisstjórn árið 1995, verð
á íbúðarhúsnæði hækkaði um tæp 40% á einu
ári og sala á fjölbýliseignum jókst um 156% á
sama tíma. Að venju var svo fagnað jólum og
áramótum, og var það mál manna að sjaldan
hefði gamalt ár verið sprengt jafn glæsilega á
brott og gert var að kvöldi síðasta dags ársins í
fullkomnu flugeldaveðri.
Leiklistar-
hátíðin Act Alone
01.07 Leiklistarhátíðin Act
alone hófst í Hömrum á Ísa-
firði með sýningu á einleikn-
um Mr. Single í gær. Leikari
og höfundur leiksins er Zeljko
Vukmirica frá Króatíu sem bjó
um tíma á Flateyri. „Það er
frábært að koma aftur til Ís-
lands en hingað hef ég ekki
komið í 13 ár. Ég hef sýnt
einleikinn víða, t.d. í Banda-
ríkjunum, Kanada, Rússlandi
og Portúgal“, segir Zeljko.
Hann er lærður leikari sem
flúði heimaland sitt vegna
styrjaldar á sínum tíma og var
komið til hjálpar af góðu fólki
á Flateyri. „Ég bjó hér í tæpt
ár og vann sem verkamaður í
fiskvinnslu. Ég veit því hversu
mikilvægur fiskur er þjóðinni.
Íslendingar eru mjög lánsamir,
þeir hafa besta mat í heimi,
sem sagt fiskinn og lambið
auk besta vatns í heimi. Einnig
búa þeir í landi án styrjaldar“,
segir Zeljko. Mr. Single sem
útleggst á íslensku sem Herra
einhleypur er fjörugur og
kraftmikill einleikur sem fjall-
ar um líf einhleyps manns. Að
sýningu lokinni var boðið upp
á léttar veitingar í tilefni af
setningu hátíðarinnar.
Bílddælingur ehf.
hættur rekstri
01.07 Bílddælingur ehf.,
sem rekið hefur fiskvinnslu
og útgerð á Bíldudal hefur hætt
starfsemi. Er því ljóst að um
50 manns missa atvinnu sína á
staðnum. Forseti bæjarstjórnar
Vesturbyggðar segir sveitar-
félagið enga burði hafa til þess
að grípa inní og tryggja at-
vinnu á staðnum. Þreifingar
eru í gangi um sölu á fisk-
þurrkun og fiskimjölsverk-
smiðju fyrirtækisins svo og
togaranum Hallgrími BA-77.
Óvíst er um lyktir. Sem kunn-
ugt er sagði fiskvinnslufyrir-
tækið upp öllum starfsmönn-
um sínum, um 50 að tölu, um
síðustu mánaðarmót. Þegar
fyrirtækið hóf starfsemi á
Bíldudal snemma á síðasta ári
keypti það hráefni til vinnslu
af fiskmörkuðum og við-
skiptabátum en í desember á
síðasta ári tók það þátt í stofn-
un útgerðarfyrirtækisins Ver-
sala sem festi kaup á togskip-
inu Hallgrími BA-77.
Samkvæmt útboðsskil-
málum vegna sjúkraflugs
er ekki gert ráð fyrir að
flugvél verði staðsett á
Ísafirði yfir vetrarmán-
uðina eins og verið hefur
undanfarin ár, heldur er
gert ráð fyrir að miðstöð
sjúkraflugs verði á Akur-
eyri. Þessi breyting var
gerð í samráði við starfs-
fólk Heilbrigðisstofnunar
Ísafjarðarbæjar. Ríkis-
kaup auglýstu fyrir hönd
heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytisins og
Sjúkraflugið flyst til Akureyrar
Tryggingastofnunar ríkis-
ins útboð á sjúkraflugs-
þjónustu á Íslandi. Í út-
boðinu er landinu skipt í
tvö útboðssvæði, norður-
svæði og Vestmannaeyja-
svæði. Samkvæmt útboðs-
lýsingu afmarkast norð-
ursvæði af beinni línu sem
er dregin frá botni Þorska-
fjarðar að botni Hrúta-
fjarðar, síðan að Hvera-
völlum, þá að Nýjadal og
þar næst að Höfn í Horna-
firði og allt svæðið fyrir
norðan þá línu er norður-
svæði, þar með talin Höfn í
Hornafirði. Í útboðslýsingu
er skýrt tekið fram að aðal-
miðstöð sjúkraflugs skuli
vera á Akureyri. Sam-
kvæmt útboðsskilmálum
átti hið nýja skipulag í
sjúkraflugi taka gildi 1.
janúar 2006, en ákveðið
var að sjúkraflugvél yrði á
Ísafirði að minnsta kosti
þar til lokið hefur verið við
endurbætur á Þing-
eyrarflugvelli. Samnings-
tíminn er fimm ár með
möguleika á framleng-
ingu til tveggja ára. Gæti
því umrædd breyting,
nái hún fram að ganga,
gilt til ársins 2013. Til-
boði flugfélagsins Mý-
flugs var að lokum tekið,
en Landsflug sá áður um
sjúkraflug frá Ísafirði.
Gjaldfrjáls leik-
skóli í Súðavík
01.07 Leikskóli í Súðavík
verður gjaldfrjáls í allt að 8
klukkustundir á dag frá 1. sept-
ember í haust samkvæmt
stefnumótun í atvinnu- og
byggðamálum sem sveitar-
stjórn Súðavíkurhrepps hefur
samþykkt. Verður Súðavíkur-
hreppur því fyrst sveitarfélaga
til þess að bjóða gjaldfrjálsan
leikskóla. Af öðrum nýmælum
í stefnumótuninni má nefna
að byggingalóðir verða afhent-
ar húsbyggjendum að kostn-
aðarlausu og einnig mun sveit-
arfélagið greiða niður bygg-
ingakostnað. Á laugardag fór
fram í Súðavík kynning á
stefnumótun Súðavíkurhrepps
í atvinnu-og byggðamálum.
Markmiðið með stefnumótun-
inni er að fjölga íbúum hrepps-
ins um 40 á árunum 2005-
2010. Auk gjaldfrjáls leikskóla
og ókeypis lóða verður þeim
er byggja í sveitarfélaginu
greitt byggingaframlag sem
nemur 17.500 krónum á hvern
fermetra af íbúðarhúsnæði. Þá
verður svæði ofan Langeyrar-
tjarnar skipulagt þannig að
mögulegt verði að byggja þar
á næsta ári.
Viggo Mortensen
heimsótti Ísafjörð
05.07 Stórstjarnan Viggo
Mortensen var staddur á Ísa-
firði á laugardag og heimsótti
þá kaffihúsið Langa Manga.
„Hann kom inn og settist út í
horn skömmu eftir miðnætti.
Einn kaffihúsagestanna spurði
hann hvort hann væri ekki al-
veg örugglega Viggo Morten-
sen og hann játti því. Þá spurði
gesturinn hvort hann vildi setj-
ast hjá okkur en Viggo sagðist
Árlegu hernaðarástandi er lokið. Margir eru fegnir. Björgunarsveitir
og aðrir veltu ríflega hálfum milljarði króna. Flestir eru glaðir, bæði
sprengivargar og björgunarsveitir. Í Hveragerði skall hurð nærri hælum.
Hluti flugeldanna eyðilegðist, en sem betur fer slapp fólk nánast við
meiðsl. Framkvæmdastjóri Landsbjargar lét hafa eftir sér í DV degi fyrir
brunann að það yrði glæsileg flugeldasýning ef kviknaði í flugeldageymsl-
unni í Keflavík. Jón Gunnarsson var hnípinn í sjónvarpi er sjá mátti hús
og búnað björgunarsveitar brenna á gamlársdag. Er ekki kominn tími til
að tengja við veruleikann, áður er illa fer? Svo skrítið sem það er eiga
flugeldar og hundahald það sameiginlegt að tillit þeirra sem hafa ama af
hvoru tveggja er afar takmarkað.
En áramótum fylgdi fleira. Forsetinn talaði ekki um Mónakó heldur
gamla fólkið. Sama gerði forsætisráðherra og bætti við matarverði, sem
gert hefur marga ríka. Biskup er leiðtogi þjóðkirkjunnar og amast við
hluta þegnanna með óskiljanlegum hætti. Nú er það ekki lögbrot að
hneigjast til sama kyns, en þjóðkirkjan vill enn hafa þá í sér hólfi líkt og
óhreinu börnin hennar Evu. Biskup telst hirðir meirihluta þjóðarinnar
sem enn tilheyrir þjóðkirkjunni. Hún hefur sérstöðu samkvæmt stjórnar-
skránni. Kirkjugarðar Reykjavíkur létu IMG Gallup nýverið kanna
hvort fólk tryði á tilvist að loknum dauða. Nær væri að kanna viðhorf til
samkynhneigðra og fá fram hvort söfnuðurinn deilir skoðun biskups.
Hagstofan taldi 250.661 sál í Þjóðkirkjunni 1. desember 2004. Nærri
lætur að 83% íbúa á Íslandi tilheyri þjóðkirkjunni. Hún hefur yfirburði
gagnvart öðrum trúfélögum og því fylgja ríkar skyldur og vandmeðfarnar.
Þjóðkirkjan á ekki að vera einangrað fyrirbrigði og þótt guðfræði geri
lítið úr samkynhneigð, ef Biskup er rétt skilinn, verður stofnun sem nýtur
velvilja stjórnarskrár að gæta vel að framkomu sinni. Mörgum er tilheyra
henni og telja sig trúaða er misboðið. Reyndar mun þetta vandamál leys-
ast ef farin verður sú leið að kirkjan blessi einungis þá sem henni tilheyra,
en hjúskapur verði einungis stofnaður með veraldlegum hætti fyrir til-
heyrandi embættismanni og trú komi þar ekki við sögu. Sá er háttur í
mörgum ríkjum er búa við kaþólska trú.
Mikil gerjun er í pólitískum heimi sveitarfélaganna. Margir skipta um
flokka. Ber Akureyri og Reykjavík hæst. Norðankratar streyma í Sjálf-
stæðisflokkinn og vinstri menn í Reykjavík eru áttavilltir þessa daganna.
Hver áhrifin verða á Alþingi er ekki vitað. Því miður virðist Framsóknar-
flokkur ætla að draga í land með breytingar á hjúskaparlöggjöf, Biskupi
til gleði, en áhugamönnum um jafnrétti til armæðu.
Menningarstarf
Laugardaginn 14. janúar
fer fram dagskrá helguð
Brynjólfi biskup Sveins-
syni í Safnahúsinu á Ísa-
firði. Þeir Helgi Þorláks-
son, sagnfræðingur, Már
Jónsson, sagnfræðingur
og sr. Skúli S. Ólafsson,
flytja erindi um skáldið.
Kirkjustarf
Hvítasunnukirkjan Sal-
em: Barnastarfið hefst að
nýju kl. 17 á föstudag.
Bænastund kl. 16:30 á
sunnudag, samkoma kl.
17:00. Þriðjudaginn 17.
janúar verður kynning á
Alfa námskeiði kl. 20:00.
Ísafjarðarkirkja: Kirkju-
skólinn hefst að nýju kl.
16:30 miðvikudaginn 18.
janúar. Sem fyrr eru það
Árný, Elín og sr. Skúli
sem stýra dagskránni.
Guðsþjónusta verður
sunnudaginn 15. janúar
kl. 11:00.
02.PM5 5.4.2017, 10:0716