Bæjarins besta


Bæjarins besta - 11.01.2006, Síða 19

Bæjarins besta - 11.01.2006, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2006 19 Tvær breytingar hafa verið auglýstar á aðalskipulagi Súðavíkurhrepps og er í báð- um tilvikum um að ræða breyt- ingar á landnotkun í sveitarfé- laginu. Annars vegar er áætlað að aflétta hverfisvernd við Seljaland í botni Álftafjarðar og skipuleggja 172 hektara sem frístundabyggð fyrir um það bil 60-70 frístundahús. Svæðið afmarkast af vatns- verndarsvæði til suðurs og landi Svarthamra skammt norðan Svarfhólsár til norður. Svæðið nær upp í 260 metra yfir sjávarmáli og afmarkast til austurs af veghelgunar- svæði þjóðvegar. Hins vegar er um að ræða svæði sem skilgreint er sem landbúnaðarsvæði og óbyggt svæði, en þar er gert ráð fyrir að verði blanda frístunda- byggðar og skógræktar. Það svæði er um 77 hektarar að stærð fyrir um 10-15 frístunda- hús, og nær svæðið upp í 200 metra yfir sjávarmáli. Breyt- ingartillagan var lögð fram til sýnis á skrifstofu og heimasíðu Súðavíkurhrepps verður þar fram til 30. janúar. Frestur til að gera athugasemdir er til 15. febrúar og skal þeim skilað á skrifstofu sveitarfélagsins. Nýjar frístundabyggðir Aðalskipulag Súðavíkurhrepps Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður stjórnar Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða skrifar Aukin starfsemi Atvinnuþró- unarfélags Vestfjarða árið 2006 Á nýju ári er oft gott að líta til baka og skoða hvað áunnist hefur í hinum ýmsu málum. Hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða (skammst. AtVest.) er ýmislegt á döfinni sem von- andi kemur til með að auka fjölbreytni í atvinnulífi Vest- fjarða í framtíðinni. AtVest hefur með höndum marghátt- uð verkefni og nú í nóvember s.l. var skrifað undir samning um að félagið tæki að sér fram- kvæmd á Vaxtarsamningi Vestfjarða. Þar er m.a. verið að tala um að koma á fót klasa- myndun fyrirtækja, sem von- andi leiðir af sér samstarf og nýsköpun í atvinnu á svæðinu. Í kjölfarið er verið að fjölga störfum hjá AtVest og er sú aukning aðallega í Vestur- byggð og á Hólmavík. Jafn- framt á Reykhólahreppur að fá meiri hlutdeild í vinnu þeirra starfsmanna. Það er vissulega á brattann að sækja við að skapa ný at- vinnutækifæri á Vestfjörðum. Horft er til aukinnar ferðaþjón- ustu og möguleika til háskóla- náms og rannsóknarvinnu í tengslum við það. Hafin er starfsemi Markaðsstofu Vest- fjarða sem AtVest hefur unnið við að koma á fót og er sam- starfsverkefni AtVest, Fjórð- ungssambands Vestfjarða, sveitarfélaga á Vestfjörðum og Ferðamálasamtaka Vest- fjarða. Þar verður unnið að markaðssetningu á Vestfjörð- um í víðum skilningi, bæði í ferðaþjónustu og jákvæðri kynningu á búsetumöguleik- um. Mikilsverður árangur náðist 12. mars 2005 þegar undirrit- aður var stofnsamningur Há- skólasetur Vestfjarða, en At- Vest er einn af stofnaðilum og hafði lengi unnið að því verk- efni og það ferli endar vonandi með að við sjáum hér Háskóla Vestfjarða. Að því verðum við öll að vinna sem viljum sjá Vestfirði og vestfirskt mannlíf vaxa og dafna. Það gerist ekki nema með meiri menntun, nýsköpun og framsækni á öll- um sviðum. Snjóflóðasetur,og aukin starfsemi Hafrann- sóknastofnunar á Ísafirði eru dæmi um starfsemi sem hefur verið að aukast. Ný stofnun um loftslagsbreytingar á Norð- urslóðum er vonandi að kom- ast á fót á Ísafirði. Vestfirðir á miðöldum er dæmi um rann- sóknarverkefni sem fór vel af stað. Að vísu eru þetta ekki mörg störf, en við megum ekki gleyma því að mjór er oft mik- ils vísir og hvert og eitt starf sem verður til er ávinningur og skapar oft fleiri afleidd störf. AtVest var frumkvöðull að rannsókna- og undirbún- ingsvinnu við að koma af stað kalkþörungavinnslu á Bíldu- dal og vann að því allt frá árinu 2000 til vors 2004. Það var síðan selt núverandi fram- kvæmdaaðilum. Því verki miðar vel áfram og mun skapa 11-14 störf á Bíldudal. Margir horfa til þess að við séum ekki að koma á fót stóriðju eins og t.d. er á Austfjörðum og því sé lítið að gerast hjá okkur, og fólki haldi áfram að fækka. En hvað er að gerast á Aust- fjörðum? Jú, vissulega eru miklar framkvæmdir í gangi og mikið vinnuafl að störfum en Íslendingum á Austfjörðum hefur ekki fjölgað, þar eru fyrst og fremst erlendir verkamenn að störfum og sumir að setjast að þar, sem er auðvitað gott og gilt. Við höfum líka á Vest- fjörðum margbreytilega flóru fólks af ýmsu þjóðerni, sem hefur auðgað okkar samfélag og víða er það fólkið sem vinnur í framleiðslustörfun- um, sem Íslendingar fást ekki lengur í. En okkur vantar fleiri og fjölbreyttari atvinnutækifæri fyrir unga Vestfirðinga sem hafa hleypt heimdraganum og menntað sig til ýmissa starfa. Þetta unga fólk vill gjarnan búa á Vestfjörðum fái það störf við hæfi, það sýna kannanir sem gerðar hafa verið á því hvar fólk vill búa. Ég er þeirrar skoðunar að okkar landssvæði sé svo sér- stakt að við þurfum og eigum að nýta það á sjálfbæran hátt. Við getum fjölgað ferðamönn- um með því að nýta okkur þessa sérstöðu og hreinleika svæðisins. Ég horfi þó til einn- ar tegundar stóriðju sem við þurfum að vera vakandi yfir að ná til okkar í fyllingu tím- ans, en það er ómengandi stór- iðja og við eigum náttúruauð- lindir fyrir þá stóriðju. Þar á ég við vetnisframleiðslu, sem verður eldsneyti framtíðarinn- ar. Til þess þarf vatn og raf- magn og við eigum nóg af vatni sem rennur til sjávar í öllum fjörðum ónotað. Við eigum líka fleiri nátt- úruauðlindir sem enn hafa ekki verið nýttar s.s. aðalbláberin. Þar er byrjað að rannsaka vaxt- arskilyrði, fjölgun, efnasam- setningu o.fl. sem gæti tengst ræktun aðalbláberjalyngs í at- vinnuskyni. AtVest fylgist vel með í því sem þar er að gerast, en eins og kunnugt er þá eru margir dalir og fjallshlíðar á Vestfjörðum þaktar aðalblá- berjalyngi og þar talin sérstak- lega góð vaxtarskilyrði. At- Vest hefur þau tæp níu ár sem félagið hefur starfað unnið vel að þeim markmiðum að fjölga atvinnutækifærum, vinna að nýsköpun, aukinni menntun og rannsóknum. Mannauður sem fólginn er í því starfsfólki sem félagið hefur haft á að skipa er auðlind sem við höfum notið í ríkum mæli. Ég horfi því björtum augum til framtíðarinnar og vænti þess að stjórnvöld vinni með okkur í að fylgja eftir vaxtar- samningi Vestfjarða og að í nýrri byggðaáætlun sem verið er að leggja fram á Alþingi á næstu dögum verði raunhæfar áætlanir til að efla byggð hér á Vestfjörðum sem annars stað- ar á landinu og að því fylgi fjármagn til framkvæmda. Og ég minni ykkur á það góðir Vestfirðingar að við höfum alltaf verið þekkt fyrir kraft og framtak. Látum það koma í ljós á næstu árum. Leggjum okkur fram hvert og eitt og vinnum saman, sundrungin skilar engu. Með ósk um farsælt ár og fjölgun atvinnutækifæra á ár- inu 2006. Jóna Valgerður Kristjáns- dóttir, formaður stjórnar AtVest. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir. 02.PM5 5.4.2017, 10:0719

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.