Bæjarins besta - 11.01.2006, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 200622
mannlífið
Ábendingar um efni sendist til Thelmu
Hjaltadóttur, thelma@bb.is sími 849 8699
○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○
Í dag er miðvikudagurinn
11. janúar, 11. dagur ársins 2006
○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○
Hvað er að frétta? · Gunnar Pétur Garðarsson, þjónustufulltrúi hjá Háskólasetri Vestfjarða
Á þessum degi fyrir 42 árum
Spurning vikunnar
Telur þú að breyting verði
á þínum högum á nýju ári?
Alls svöruðu 512. – Já, til hins betra sögðu 372 eða 73% –
Já, til hins verra sögðu 58 eða 11% – Nei sögðu 82 eða 16%
Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið
skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér.
○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○
Spennandi uppbygging
Hreyfing er lífsnauðsynleg
Nú þegar jólin eru liðin og
fólk farið að komast í sitt dag-
lega mynstur eru ófáir sem
huga að heilsunni. Hvort sem
það stafar af hátíðarskvapi
vegna ofáts af reyktu kjöti,
heimatilbúnum ís og konfekti
eða að menn vilji hefja nýtt ár
með því að bæta líferni sitt og
auka hreysti þá þyrpist fólk á
líkamsræktarstöðvar eða út að
skokka á þessum árstíma.
Margir byrja af miklum móði
og uppfullir af orku og fögrum
fyrirheitum en hætta svo með
hækkandi sól. Aðrir líta á þetta
sem lífstílsbreytingu og
þrauka allt árið. Fyrir fjöl-
mörgu sem strengdu þess heit
á áramótunum að koma sér í
form og bæta heilsuna gefur
Árni Heiðar Ívarsson einka-
þjálfari í Studio Dan hér nokk-
ur góð ráð.
„Hér koma nokkrir punktar
sem gott er að huga að er hefja
skal betri og hollari lífshætti.
Í starfi mínu sem einkaþjálf-
ari hef ég komist að raun um
að það sem mestu máli skiptir
er að vera tilbúin/n að breyta
um lífsstíl og finna raunhæf
markmið sniðin að eigin þörf-
um. Síðan er mikilvægt að vera
tilbúin/n að leggja á sig þá
vinnu sem til þarf og gefast
ekki upp þótt á móti kunni að
blása.“
1. Hreyfing og hollt matar-
æði verða að fara saman.
Hreyfing er þér lífsnauðsynleg
til að við efla andlega og lík-
amlega heilsu og ef heilsusam-
legt og fjölbreytt mataræði
fylgir, þá ertu líkleg/ur til að
ná árangri.
2. Veldu þér hreyfingu sem
þér finnst skemmtileg. Það
eykur líkurnar á því að þú
komir til með að hreyfa þig til
frambúðar.
3. Settu þér raunhæf mark-
mið niður á blað og taktu
ákvörðun um hvort þú sért til-
búin/n að standa við þau. Að
byrja í líkamsrækt er ekkert
ósvipað því að setjast upp í bíl
og fara af stað, þú verður að
vita hvert skal stefna.
4. Þú sjálf/ur tekur ábyrgð á
eigin heilsu og átt að fara af
stað með þeirri hugsun að þú
ert að gera þetta fyrir sjálfan
þig en engan annan. Fagaðilar
og aðrir geta aðstoðað en
ákvörðunin stendur og fellur
með þér.
5. Mundu að andleg og lík-
amleg heilsa á alltaf að vera í
fyrirúmi. Þér verður að líða
vel við það sem þú tekur þér
fyrir hendur, þá verður lífið
miklu skemmtilegra.
6. Leitaðu aðstoðar fagaðila
(einkaþjálfara, næringarfræð-
inga, sjúkraþjálfara, lækna
o.s.frv.), þeir geta hjálpað þér
í átt að betri heilsu.
Að lokum nokkrir mikil-
vægir punktar sem huga þarf
að varðandi mataræði:
Borðaðu 5-6 litlar máltíðir
á dag (til að halda blóðsykrin-
um stöðugum).
Takmarkaðu neyslu sykurs.
Drekktu nóg af vatni (2 - 3
lítra á dag).
Ekki gleyma morgunmatn-
um.
Ekki borða seint á kvöldin,
u.þ.b. 3 .klst. fyrir svefn.
Borðaðu fjölbreytta fæðu.
Tyggðu matinn vel og njóttu
hvers bita, ekki háma hann í
þig eins og þú eigir lífið að
leysa.
Árni Heiðar Ívarsson, einkaþjálfari.
„Það er allt það besta að
frétta af mér. Kominn heim
eftir að hafa verið erlendis í
námi. Það gerist ekki betra
en það. Ég er að fara vinna
sem þjónustufulltrúi hjá Há-
skólasetri Vestfjarða. Það
leggst vel í mig enda finnst
mér það spennandi verkefni
og gaman að fá að taka þátt í
þessari uppbyggingu.
Ég sótti um starfið þegar
ég var út í Noregi og sá aug-
lýsingu á bb.is um starfið aug-
lýst. Ég var úti í Tromsø að
ljúka námi í sjávarútvegsfræði
en þarf þó að bíða fram á vor
með að fá prófskírteinið.
Ég hafði það alltaf í bak-
höndinni að fara aftur vestur
ef að ég fengi gott starf því að
það er nóg af tækifærum fyrir
unga menn sem eru nýkomnir
úr námi. Ég var því feginn að
fá þetta tækifæri að starfa í
Háskólasetrinu. Nú er starf-
semin að fara í fullan gang og
nóg verður að gera því Há-
skólasetrið tekur við öllu fjar-
námi af Fræðslumiðstöð
Vestfjarða. Þá voru nemar í
prófum í síðustu viku og kenn-
slan hófst í Háskóla Íslands í
þessari viku,“ sagði Gunnar
Pétur Garðarsson, þjónustu-
fulltrúi Háskólasetursins.
Þennan dag árið1918 gengu bjarndýr á land í fyrsta
sinn þennan frostavetur, í Núpasveit austan Öxafjarð-
ar. Næstu daga gengu þau á land á Melrakkasléttu, í
Skagafirði, á Skagaströnd og á Langanesi.
Þennan dag árið 1944 fórst togarinn Max Pamberton
frá Reykjavík undan Snæfellsnesi með allri áhöfn.
Þennan dag árið 1990 fengu fjörutíu skip 28.400 lest-
ir af loðnu djúpt út af Austfjörðum. Þetta var mesta
veiði á einum sólarhring.
Þennan dag árið 1993 fór dýpsta lægð sem vitað er
um á Norður-Atlantshafi, 910-920 millibör, norður með
Austurlandi. Röskun var á samgöngum en litlar
skemmdir urðu.
Heimild: Dagar Íslands. Jónas Ragnarsson tók saman.
○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○
Helgarveðrið
Í gær samþykkti borgarráð einróma tillögu ráðhúsnefndar
um að ráðhús Reykjavíkur skyldi byggt samkvæmt framlögðum
teikningum í norðurenda Tjarnarinnar.[…] Ráðhúsið er skv.
tillögunni tveggja hæða hús með 6 hæða hábyggingu á eða
alls 8 hæðir og er rúmmál hússins 28. þús. rúmm. að viðbættum
kjallara. Útveggir eru úr steinsteypu, málmi og gleri og svalir
í kring. Fyrir norðan húsið er steinlagt torg. Uppdrættir að ráð-
húsinu eru miðaðir við að húsið rúmi æðstu borgarstjórn um
alllangan tíma og um langt skeið verður þar hægt að sjá all-
mörgum af stofnunum borgarinnar fyrir húsnæði.
Kaflinn af Skothúsvegi, sem liggur yfir Tjörnina, á að hverfa
og verða þar hólmi með tveim léttum göngubrúm í staðinn.
Ráðhúsið á að standa í norðurenda Tjarnarinnar og þarf ekki
að ryðja burtu húsum meðan það er í byggingu en Iðnó og
Búnaðarfélagið þurfa að hverfa þegar byggingin verður tekin
í notkun.
Ráðhús Reykvíkinga
Horfur á föstudag:
Suðlæg átt og skúrir eða éljagangur sunnan- og vest-
anlands, en þurrt að mestu á Norðausturlandi.
Horfur á laugardag:
Suðlæg átt og skúrir eða éljagangur sunnan- og vest-
anlands, en þurrt að mestu á Norðausturlandi.
Horfur á sunnudag:
Vestanátt með éljagangi og vægu frosti.
Horfur á mánudag:
Vestanátt með éljagangi og vægu frosti.
02.PM5 5.4.2017, 10:0722