Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.03.2004, Blaðsíða 3

Bæjarins besta - 03.03.2004, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 3 Ísafjarðarbær og Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ Vilji til að endurskoða sjúkraflutninga Heilbrigðisstofnunin Ísa- fjarðarbæ hefur lýst yfir vilja til viðræðna við Ísafjarðarbæ um endurskoðun á verksamn- ingum um sjúkraflutninga á svæði stofnunarinnar. Ísafjarð- arbær óskaði eftir viðræðum við Heilbrigðisstofnunina í nóvember á síðasta ári. Þröstur Óskarsson, fram- kvæmdastjóri Heilbrigðis- stofnunarinnar, segir í bréfi til bæjarins að stofnunin sé tilbú- in til við viðræðna með það fyrir augum að gerður verði einn samningur um sjúkra- flutninga í umdæminu í stað tveggja eins og nú sé. Stofnun- in leggur til að Ísafjarðarðbær leggi fram drög að nýjum samningi sem nái til alls starfs- svæðisins. Þröstur segir vilja til þess að annað hvort verði öllum sjúkraflutningunum sinnt frá Ísafirði eða að Dýra- firði verði þjónað sérstaklega með bíl RKÍ sem er staðsettur þar. Fram kemur í bréfinu að heilbrigðisráðuneytið er með samning við RKÍ um sjúkra- bifreið á Þingeyri og hefur Heilbrigðisstofnunin ekki haft nein afskipti af rekstri hans á liðnum árum. Halldór Hall- dórsson, bæjarstjóri Ísafjarðar- bæjar, segir menn þar á bæ vilja taka samninginn til end- urskoðunar þar sem greiðslur vegna hans endurspegli ekki kostnað við rekstur sjúkra- flutninganna. – kristinn@bb.is Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ. Hagstofa Íslands Launagreiðendum fjölgar Þrátt fyrir fækkun íbúa á undanförnum árum hefur launagreiðendum á Vest- fjörðum fjölgað samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Árið 1998 voru launagreið- endur á Vestfjörðum 728 talsins en árið 2002 voru þeir 735 að tölu. Flestir launa- greiðendur voru aðeins með einn starfsmann árið 2002 eða 475 og hafði fækkað úr 517 árið 1998. Launagreið- endur með 2-9 starfsmenn voru 194 árið 2002 og hafði fjölgað úr 159 árið 1998. Sömu sögu er að segja af launagreiðendum með 10-19 starfsmenn. Þeim fjölgaði úr 25 í 36 á sömu árum. Launa- greiðendum með 20-49 starfs- menn fjölgaði úr 19 í 21 og launagreiðendum með 50-99 starfsmenn fjölgaði úr 5 í 6. Einungis þrír launagreiðendur eru á Vestfjörðum með 100- 249 starfsmenn árið 2002 og er það sami fjöldi og árið 1998. Eru það fjölmennustu launa- greiðendurnir í landshlutanum þau ár. Árið 2002 eru flestir launa- greiðendurnir í landbúnaði eða 184 talsins og hafði fækkað nokkuð frá árinu 1998. Ein- ungis einn launagreiðandi í landbúnaði á Vestfjörðum var með fleiri en einn starfsmann árið 2002. Í fiskveiðum voru launagreiðendur 135 árið 2002 og hafði fjölgað um 10 frá árinu 1998. Flestir launagreið- endurnir í fiskveiðum höfðu aðeins einn starfsmann eða 72 talsins. Í fiskvinnslu voru launagreiðendurnir 36 og hafði fjölgað úr 24 árið 1998. Þar er starfsmannafjöldinn mjög mismunandi. Í mannvirkjagerð fækkaði launagreiðendum úr 82 í 79. Fimmtíu launagreiðendur í mannvirkjagerð eru aðeins með einn starfsmann. Launa- greiðendum í verslun og við- gerðarþjónustu fækkar úr 76 í 66 og þar af eru 26 með einn starfsmann. Launagreiðend- um í hótel- og veitingarekstri fækkar úr 18 í 16 á árunum 1998-2002. Flestir þeirra hafa einungis einn starfs- mann eða 9 talsins. Í sam- göngum og flutningum stendur fjöldi launagreið- enda nánast í stað. Þeir voru 61 árið 1998 en 62 árið 2002. Í opinberri stjórnsýslu fækkar greiðendum um einn á þessum árum. Voru þrír en aðeins tveir 2002. Í fræðslu- starfsemi fjölgaði greiðend- um um tvo úr fimm í sjö og í heilbrigðis- og félagsþjón- ustu fækkaði launagreiðend- um um tvo úr 19 í 17. Tvær heimildarmyndir eru í undirbúningi um snjóflóðið sem féll á Flat- eyri árið 1995. Fréttablaðið greinir frá því að undir- búningur hafi staðið yfir í fjögur ár að mynd sem Kristrún Lind Birgisdóttir og Jóhanna Kristjánsdóttir standa að ásamt þekktum framleiðanda. Einar Þór Gunnlaugsson, kvik- myndagerðarmaður frá Önundarfirði, hefur einnig í hyggju að búa til mynd um snjóflóðið sem fram- leidd verður af fyrirtækinu Edisons lifandi kvikmynd- ir. Einar Þór hyggst hefja tökur á næstu mánuðum en vill ekki segja til um hvenær framleiðslunni verði lokið. Kristrún Lind segist í samtali við Frétta- blaðið engin tengsl hafa við Einar Þór um gerð mynd- arinnar og að hún muni halda sínu striki. „Ég veit ekkert um áform Einars Þórs“, sagði hún. Tvær heimildar- myndir í undirbúningi Verið er að undirbúa tón- listarhátíð á Ísafirði sem ætlunin er að halda í Skíðavikunni um páskana. Meðal tónlistarmanna sem hafa verið orðaðir við há- tíðina eru ýmsir af þeim Íslendingum sem hafa ver- ið að ná hvað lengst á er- lendri grundu á síðustu árum. Örn Elías Guð- mundsson, jafnframt þekktur sem tónlistar- maðurinn Mugion, stað- festi að ýmsir aðilar á Ísa- firði hefðu tekið höndum saman um að undirbúa tónleikadagskrá um pásk- ana en vildi að svo stöddu ekki gefa upp hvaða lista- menn kæmu fram. Verið væri að setja saman dag- skrá og yrði hún kynnt innan skamms. Tónlistarhátíð í bígerð á Skíðaviku Sparisjóður Vestfirðinga tapaði 27,1 milljón króna á árinu 2003. Það er töluvert verri afkoma en árið áður þegar reksturinn skilaði 10,2 milljóna króna hagnaði. Vaxtatekjur sjóðsins voru rúmlega 621 milljón króna sem er tæplega 19% samdráttur á milli ára. Vaxtagjöld sjóðsins lækkuðu enn meira eða um rúm 23% úr 453 milljónum króna í 347 milljónir króna. Hreinar vaxtatekjur sjóðsins minnkuðu því um rúm 11%. Aðrar rekstr- artekjur sjóðsins jukust hinsvegar umtalsvert eða úr 118 millj- ónum króna í 223 og nemur því hækkunin um 88% á milli ára. Önnur rekstrargjöld hækka milli ára um 8,5%. Framlag í afskriftareikning útlána eykst um tæp 68% á milli ára og fer úr 132 milljónum króna í tæplega 222. Eiginfjárhlutfall sjóðsins hækkaði úr 9.9% í 11,7% en það má ekki vera lægra en 8% í rekstri fjármálastofnana. Innlán jukust um 5% á árinu 2003 en aukningin var 23,6% á árinu 2002. Útlán jukurst um 3.8% samanborið við 6,3% á árinu 2002. Stöðugildum hjá sjóðnum fjölgaði úr 32 á árinu 2002 í 35 á árinu 2003. Í tilkynningu frá Sparisjóði Vestfirðinga segir að rekstrar- umhverfi sjóðsins hafi verið erfitt á liðnu ári. Framlag í afskrift- arreikning sjóðsins sé mun meira en gert hafi verið ráð fyrir. Þá segir einnig að þrátt fyrir tap og tímabundna erfiðleika í rekstri sé eiginfjárstaða sjóðsins góð. – hj@bb.is Tapaði 27milljónum á árinu 2003 Sparisjóður Vestfirðinga Sparisjóður Vestfirðinga á Ísafirði. Brunavarnir bættar í Sundhöll Ísafjarðar Ráðist verður í endurbæt- ur á brunavörnum íþrótta- hússins á Flateyri og Sund- hallar Ísafjarðar í kjölfar úttektar eldvarnareftirlits Ísafjarðarbæjar á húsun- um. Ástand brunavarna í Sundhöllinni var talið slæmt en sæmilegt í íþróttahúsinu á Flateyri. Íþrótta- og æskulýðsnefnd Ísafjarðar fjallaði um mál- ið og fól Birni Helgasyni, íþrótta- og æskulýðsfull- trúa að gera strax úrbætur á því sem hægt er en öðr- um þáttum var vísað til tæknideildar bæjarins til frekari útfærslu. Björn segir tiltölulega einfalt mál að uppfylla tilmæli eld- varnareftirlitsins vegna íþróttahússins á Flateyri og verði gengið í það. Meiri aðgerð sé hins vegar að verða við tilmælunum vegna Sundhallarinnar á Ísafirði enda sé það mun eldra hús. „Þar er þó mjög margt sem við getum að- hafst strax og erum komin á fullt í að lagfæra t.d. varðandi neyðarljós og merkingu flóttaleiða.“ Sundhöll Ísafjarðar var byggð árið 1945. Þar þarf að sögn Björns m.a. að bæta við flóttaleiðum í kjallara og á lofti þar sem bókasafnið á Ísafirði var áður til húsa. Auk þess er farið fram á að settar verði upp sjálfvirkar eldvarnar- hurðir við sundlaug og íþróttasal. „Þetta eru nokkuð umfangsmiklar framkvæmdir og þarf líklega að gera töluverðar breytingar á húsinu til að koma hurðunum við en þær eru að auki mjög dýrar. Við höfðum ekki gert ráð fyrir slíkum fram- kvæmdum í fjárhagsáætl- un“, sagði Björn. – kristinn@bb.is 09.PM5 12.4.2017, 09:333

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.