Bæjarins besta - 03.03.2004, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 200410
Félagsmálanefnd vill ekki taka lægsta tilboði í akstur fatlaðra
Mat nefndarinnar að faglegur ávinn-
ingur vegi þyngra en fjárhagslegur
Félagsmálanefnd Ísafjarðar-
bæjar hefur samþykkt að
leggja til við bæjarstjórn að
taka tilboði Ferðaþjónustu
Margrétar og Guðna ehf. í
akstur fatlaðra þrátt fyrir að
það sé um 10% hærra en læg-
sta tilboðið sem kom frá
Stjörnubílum ehf. Munur á til-
boðunum er um 1,2 milljónir
á samningstímanum. Fyrir
nokkru var boðinn út akstur
fyrir Ferðaþjónustu fatlaðra
sem Ísafjarðarbær rekur. Þar
kemur fram að verkið felist í
akstri fatlaðra og aldraðra ein-
staklinga, svo sem milli heim-
ila og stofnana, þegar viðkom-
andi getur ekki nýtt sér al-
menna ferðaþjónustu eða ferð-
ast á eigin vegum.
Tilboð voru opnuð 4.febrúar
og bárust fimm tilboð. Tilboð
Stjörnubíla var lægst og var
að upphæð 3,3 milljónir króna.
Tilboð Ferðaþjónustu Mar-
grétar og Guðna ehf. var að
upphæð 3,6 milljónir króna,
tilboð Sophusar Magnússonar
var að upphæð 6,1 milljónir
króna, tilboð F&S Hópferða-
bíla ehf. var að upphæð 6,9
milljónir króna og hæst var
tilboð Úlfars ehf. að upphæð
12,5 milljónir króna.
Framangreindar fjárhæðir
eru reiknaðar af tæknideild
Ísafjarðarbæjar á grundvelli
þess aksturs sem verið hefur
og miðast við akstur á ári.
Ferðafjöldi er misjafn milli ára
þannig að umfang akstursins
getur minnkað en einnig aukist
enda voru tilboð miðuð við
einingaverð.
Tæknideild Ísafjarðarbæjar
var falið að fara yfir tilboðin
og óskaði eftir frekari gögnum
frá Stjörnubílum og Ferða-
þjónustu Margrétar og Guðna.
Eftir að hafa farið yfir þau
gögn taldi tæknideild bæði fyr-
irtækin hæf til þess að taka
verkið að sér samkvæmt út-
boðslýsingu.
Á fundi félagsmálanefndar
voru lögð fram bréf frá Sigurði
Mar Óskarssyni, bæjartækni-
fræðingi, þar sem m.a. voru
samanburðar upplýsingar við
önnur sveitarfélög og punktar
frá fundi með framkvæmda-
stjóra Stjörnubíla ehf. Einnig
var lögð fram greinargerð for-
stöðumanns Skóla- og fjöl-
skylduskrifstofu Ísafjarðar-
bæjar vegna ferðaþjónustu
fatlaðra.
Félagsmálanefnd ákvað síð-
an með vísan til þeirra gagna
sem aflað var að leggja til við
bæjarstjórn að tilboði Ferða-
þjónustu Margrétar og Guðna
verði tekið þrátt fyrir að það
verði á samningstímanum um
1,2 milljónum króna dýrara
en tilboð Stjörnubíla. Í sam-
þykkt nefndarinnar er þess get-
ið að það sé mat nefndarinnar
að faglegur ávinningur sem
hlýst af því að taka tilboði
FMG vegi þyngra en sá fjár-
hagslegi ávinningur sem verði
af því að taka tilboði Stjörnu-
bíla. Þar sé horft til þess hve
notendur þjónustunnar séu al-
mennt viðkvæmir fyrir breyt-
ingum á henni, eins og segir í
bókun félagsmálanefndar.
Á fundi bæjarráðs Ísafjarð-
arbæjar í síðustu viku var til-
laga félagsmálanefndar tekin
fyrir. Guðni Geir Jóhannesson,
formaður bæjarráðs annar eig-
andi Ferðaþjónustu Margrétar
og Guðna ehf., sat ekki fund-
inn og stýrði Birna Lárusdóttir
fundinum í hans fjarveru.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins var það vilji meirihluta
bæjarráðs að afgreiða tillögu
félagsmálanefndar þrátt fyrir
að bæjarráð hefði ekki nein
gögn undir höndum um málið
önnur en fundargerð félags-
málanefndar. Eftir nokkrar
umræður var fallist á kröfu
bæjarráðsfulltrúa Samfylking-
arinnar um að óska eftir frekari
gögnum vegna málsins fyrir
næsta fund bæjarráðs sem
haldinn verður í næstu viku.
Ekki náðist í Ingibjörgu
Maríu Guðmundsdóttur, for-
stöðumann Skóla- og fjöl-
skylduskrifstofu, né Kristjönu
Sigurðardóttur, formann fé-
lagsmálanefndar, vegna máls-
ins.
Hörður Högnason varafor-
maður félagsmálanefndar Ísa-
fjarðarbæjar sagði í samtali við
blaðið að til væru margar
kannanir sem sýndu að við-
skiptavinir þjónustu eins og
Ferðaþjónustu fatlaðra væru
viðkvæmari fyrir breytingum
en ófatlaðir. Í ljósi þess hversu
lítill munur var á tilboðunum
hafi það, ásamt öðrum fyrir-
liggjandi gögnum, haft áhrif á
þá ákvörðun nefndarinnar að
taka tilboði þess aðila sem
hefði sinnt þjónustunni undan-
farin ár.
Aðspurður sagðist Hörður
ekki geta svarað því hvaða
önnur gögn hefðu legið til
grundvallar ákvörðun nefndar-
innar. Að sögn Harðar hefur
núverandi verktaki staðið sig
framúrskarandi vel og það hafi
vegið nokkuð í ákvörðun
nefndarinnar. Hörður treysti
sér ekki til þess að svara því
hvenær faglegir þættir hættu
að vega þyngra en fjárhags-
legir í ljósi þess að nokkur
munur var á tilboðunum. Það
yrði að mati Harðar að skoða í
hvert sinn enda hefðu útboðs-
gögn borið það með sér að
taka mætti hvaða tilboði sem
er eða hafna öllum.
Helga Björk Jóhannsdóttir,
hjá Svæðisskrifstofu um mál-
efni fatlaðra á Vestfjörðum,
sagði í samtali við blaðið að
ekki hefði verið leitað um-
sagnar skrifstofunnar vegna
þessa máls. Fatlaðir séu eins
og annað fólk misjafnlega við-
kvæmir fyrir breytingum en
slíkt sé ekki í þeim mæli að
það valdi fólki tjóni. Helga
sagðist ekki vita til þess að
nein könnun hefði verið gerð
vegna slíkra hluta. – hj@bb.is
Olíudreifing ehf. og Skelj-
ungur hf. vilja ekki flytja olíu-
birgðastöð félaganna á Ísafirði
niður á Suðurtanga en vilja í
þess stað endurbyggja núver-
andi olíubirgðastöð við Suður-
götu. Þetta kemur fram í bréfi
Olíudreifingar til bæjarráðs
Ísafjarðarbæjar þar sem er
ítrekuð ósk félaganna um að
Ísafjarðarbær úthluti þeim við-
bótarlóð við hlið núverandi
birgðastöðvar.
Olíudreifing áætlar að það
kosti 50 milljónum króna
meira að byggja upp nýja olíu-
birgðastöð á Suðurtanga en að
endurbyggja og stækka núver-
andi birgðastöð við Suðurgötu.
„Það er því ósk félaganna
beggja að aðilar komi sér sam-
an um lausn sem tryggi að
núverandi olíubirgðastöð fé-
laganna á staðnum verði end-
urbyggð.“
Ósk um viðbótarlóð segir
Olíudreifing tilkomna vegna
augljósra þarfa félaganna fyrir
að lagfæra ástand núverandi
birgðastöðvar og að koma fyrir
bensínsbirgðageymum ásamt
nýju áfylliplani sem hvort um
sig auki öryggi við geymslu
og meðhöndlun eldsneytis í
stöðinni. „Af hálfu Olíudreif-
ingar ehf. og Skeljungs hf. er
brýnt að niðurstaða komist
þetta mál hið fyrsta svo hefjast
megi handa við endurbygg-
ingu eldsneytisbirgðastöðvar
félaganna svo skjótt sem auðið
er þannig að stöðin komist í
ásættanlegt lag m.t.t. öryggis
og ásýndar.“
Lengi vel lögðu hafnaryfir-
völd til lóð undir nýja olíu-
birgðastöð neðst í Suðurtanga
en nú er reiknað með lóð undir
birgðastöðina nær Sundahöfn-
inni á Ísafirði.
– kristinn@bb.is
Vilja endurbyggja birgða-
stöðina við Suðurgötu
Olíudreifing ehf. og Olíufélagið Skeljungur hf.
Hluti olíutankanna við Suðurgötu.
09.PM5 12.4.2017, 09:3310