Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.03.2004, Page 7

Bæjarins besta - 03.03.2004, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 7 Menntaskólinn á Ísafirði Fræðslumiðstöð Vestfjarða Háskólakynning á Ísafirði Háskólar landsins verða með kynningu í Menntaskólanum á Ísa- firði laugardaginn 6. mars nk., kl. 11:00-15:30. Þar gefst fólki kostur á að fræðast um námsframboð, jafnt fjar- nám sem staðnám, ræða við námsráðgjafa eða kynningarstjóra skólanna og fá upplýsingar um flest það er háskólanám varðar. Fólk er hvatt til að nýta sér þennan möguleika. Það er ekki seinna vænna að huga að námi næsta vetrar. Kynningin er fyrir alla, jafnt framhaldsskólanema sem fullorðna. Menntaskólinn á Ísafirði Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Menntaskólinn á Ísafirði – öflugur framhaldsskóli á Vestfjörðum Opið hús 4. mars 2004 kl. 14-16 Bóknám Stúdentsbrautir: Náttúrufræðibraut, Félagsfræðibraut. Viðskiptabraut. Almenn námsbraut, leiði 1,2 og nýbúanám. Starfsbraut. Verknám Rafiðnir, grunndeild. Málmiðnir, grunndeild. Vélstjórn, 1. og 2. stig. Samningsbundið iðnnám. Allir eru hjartanlega velkomnir að kynna sér starfsemi skólans og bjóðum við sér- staklega nemendum 10. bekkjar grunnskóla. Skólameistari. Framkvæmdastjóri Héraðssamband Vestfirðinga óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra í fullt starf. Þarf hann að geta hafið störf sem fyrst. Í boði er áhugavert og krefjandi starf í líflegu umhverfi. Reynsla af starfi innan íþróttahreyfingarinnar er æskileg sem og hæfni í mannlegum samskiptum. Umsóknarfrestur er til 10. mars. Nánari upplýsingar gefur Karl Jónsson, framkvæmdastjóri á skrifstofu sambands- ins að Hrannargötu 2 á milli kl. 9 og 15 eða í síma 898 7292. Umsóknum skal skilað á sama stað. Ísafjarðarbær, Grundar- fjarðarbær, Fjarðarbyggð og Fjölmenningarsetrið hafa átt í samstarfi um þýðingu á stöðl- uðum húsaleigusamningi á pólsku. Elsa Arnardóttir, for- stöðumaður Fjölmenningar- seturs, segir fólk þurfa hús- næði um leið og það komi til landsins. „Því getum við ekki gert kröfu um að fólk sé farið skilja íslensku þegar það gengur frá húsaleigusamningi. Þetta er dæmi um skjal sem léttir öllum lífið“, segir Elsa. Þýðingin er bæði á pólsku og íslensku. „Það var talið mikilvægt að hafa íslenskuna með svo að ekki fari á milli mála hvaða ákvæði er verið að tala um og einnig styður það undir ís- lenskunámið að hafa hana með“, sagði Elsa. Pólverjar eru langfjölmenn- asti hópur innflytjenda á Ís- landi. Fjölmenningarsetur dreifir samningnum til allra sem þess óska. – kristinn@bb.is Staðlaður húsaleigusamningur Þýddur á pólsku Niðurgreiðslur rafhitunar hjá Orkubúi Vestfjarða Rúmlega 72 þúsund krónur á hvern notanda Niðurgreiðslur rafhitunar á hvern notanda hjá Orkubúi Vestfjarða voru samtals 72.145 krónur árið 2002 og nutu 2.596 notendur niður- greiðslna á starfssvæði fyrir- tækisins. Þetta kemur fram í svari iðnaðarráðherra, Val- gerðar Sverrisdóttur, við fyrir- spurn Kristjáns L. Möller al- þingismanns Samfylkingar- innar. Í svari ráðherra kemur fram að á árunum 1990 til 2002 var tæpum 6,4 milljörðum króna varið til niðurgreiðslu rafhit- unar á landinu öllu. Á verðlagi ársins 2004 er upphæðin um 8 milljarðar króna. Niðurgreið- slur ársins 2002 voru 863,4 milljónir króna eða um 74.900 krónur á hvern notanda. Til hvers notanda á dreifi- svæði RARIK komu rúmar 77 þúsund krónur í niðurgreiðsl- ur, til hvers notanda Hitaveitu Suðurnesja í Vestmannaeyjum runnu 59.890 krónur og til hvers notanda hjá Rafveitu Reyðarfjarðar var varið 77.887 krónum. Þegar kjördæmamörk eru skoðuð kemur í ljós að til hvers notanda í Norðvesturkjör- dæmis runnu 72.650 krónur, til hvers notanda í Norðaust- urkjördæmi runnu 74.900 krónur og í Suðurkjördæmi komu 69.696 krónur í hlut hvers og eins notanda. Af einstökum sveitarfélög- um kom langmest í hlut íbúa Ísafjarðarbæjar eða tæpar 109 milljónir króna á árinu 2002 eða um 12,7% af öllum niður- greiðslum. Næst á eftir koma Vestmannaeyjar með tæpar 83 milljónir og Fjarðabyggð með tæplega 71 milljón króna. Af einstökum byggðarlög- um á Vestfjörðum má nefna að til niðurgreiðslu á rafhitun á Ísafirði fóru rúmar 75 millj- ónir króna, til Bolungarvíkur 27 milljónir, til Patreksfjarðar 22 milljónir, til Þingeyrar 13 milljónir, til Hólmavíkur tæpar 12 milljónir, til Flateyrar 10 milljónir og til Suðureyrar 9,5 milljónir króna. – hj@bb.is Samtals runnu rúmar 72 þúsund krónur í niðurgreiðslu á rafhitun til hvers viðskiptavinar Orkubús Vestfjarða. Fjórar hafnir stofna samtökin Cruise Iceland Ísafjarðarhöfn meðal stofnaðila Hafnirnar á Ísafirði, Akur- eyri, Reykjavík og Seyðisfirði stofnuðu fyrir stuttu samtökin Cruise Iceland ásamt Ferða- málaráði og Ferðaskrifstof- unni Atlantik. Samtökunum er ætlað að efla þann hluta ferða- þjónustunnar hér á landi sem lýtur að skemmtiferðaskipum. Tilurð samtakanna má rekja til samstarfs hafnanna á Ísa- firði, Akureyri og Reykjavík um þjónustu við skemmti- ferðaskip og markaðssetningu. Í hitteðfyrra fengu hafnirnar ásamt skrifstofu Ferðamála- ráðs í New York erlendan ráð- gjafa til að gera úttekt á mögu- leikum Íslands í greininni og setti hann fram hugmyndina um að stofna samtök hags- fyrirtæki, einstaklingar og sjálfstæðir atvinnurekendur sem starfa í þjónustuiðnaði við skemmtiferðaskip eða í skyld- um greinum gengið í samtök- in. „Þetta er rökrétt framhald af því samstarfi sem hafnirnar hafa verið í ásamt ferðaþjón- ustuaðilum. Okkur þótti rétt að útvíkka starfsemina og kalla til alla þá sem hafa hagsmuni af komu skemmtiferðaskipa til landsins“, sagði Guðmundur. – kristinn@bb.is munaaðila til að þróa mark- aðssetningu Íslands sem ákjós- anlegs áfangastaðar fyrir skemmtiferðaskip. Guðmundur M. Kristjáns- son, hafnarstjóri Ísafjarðar- bæjar, segir að unnið hafi verið að hugmyndinni um nokkurt skeið og m.a. litið til sambæri- lega samtaka á Norðurlönd- unum. Stefnt er að því að fjölga félögum í samtökunum og geta Skemmtiferðaskipið Hanseatic í höfn á Ísafirði. 09.PM5 12.4.2017, 09:337

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.