Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.03.2004, Side 14

Bæjarins besta - 03.03.2004, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 200414 > RÚV: 6. mars kl. 22:35 Í þessari bresku bíómynd, sem er frá árinu 1998, er sagt frá því hvernig Elísabet fyrsta kom til ríkis á Englandi og frá fyrstu ár- um hennar á valdastóli, en sú saga er full af leynimakki, banatilræð- um og aftökum. Í aðalhlutverkum eru Cate Blanchett (mynd), Geoffrey Rush, Joseph Fiennes og Richard Attenborough. Elísabet fyrsta á Englandi > Stöð 2: 6. mars kl. 21:45 Herra Deeds er rómantísk gaman- mynd með Adam Sandler og Wio- nu Ryder í aðalhlutverkum. Góð- hjartaður náungi erfir stórfé eftir frænda sinn og veröldin kollvarpast. Longfellow Deeds rekur pítsustað í smábæ en flytur til stórborgarinnar í kjölfar umskiptanna. Allir vilja fá sinn hluta af peningunum og Deeds veit ekki sitt rjúkandi ráð. Herra Deeds > Sýn: 7. mars kl. 11:15 + Enska bikarkeppnin verður í brennidepli á Sýn í dag en þrír leikir verða sýndir beint. Erfitt er að spá fyrir um úrslit en eftir dráttinn í átta liða úrslit var ljóst að minnst eitt lið úr neðri deildunum kæmist í undanúrslit. Veðmangarar hölluðust flestir að sigri Arsenal eða Manchester United í bikarnum en margir vildu sjá þessi lið mætast í úrslitaleiknum. Bikardagur á Sýn Helgarveðrið Horfur á föstudag: Vestlæg átt, 8-13 m/s við suðurströndina fram eftir degi en annars hægari. Skýjað með köflum. Horfur á laugardag: Stíf suðaustanátt með dálítilli rigningu eða súld, en hægari og bjart fyrir norðan og austan. Horfur á sunnudag: Suðvestan átt og skúrir eða él, en sunnanátt og rigning austanlands. Horfur á mánudag: Suðlæg átt og smáskúrir eða él, bjart norðanlands. Spurningin Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Aðeins er tekið við einu svari frá hverri tölvu. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Ertu flughrædd(ur)? Alls svöruðu 340. Já sögðu 82 eða 24% Nei sögðu 173 eða 51% Stundum sögðu 85eða 25% Kirkjustarf Ísafjarðarkirkja: Messa og kirkjuskóli á sunnudag kl. 11:00. Ungl- ingamessa á sunnudags- kvöld kl. 20:30. Hnífsdalskapella: Sunnudagsskóli kl. 13:00. Holtskirkja: Fjölskylduguðsþjónusta á æskulýðsdaginn 7. mars kl. 14:00. Börn og ungl- ingar aðstoða. Mikill söngur. Flateyrarkirkja: Barnastarf á miðvikudag kl. 16:30. Halldór kvaddur með viðhöfn af samstarfsmönnum á höfninni Halldór Hermannsson var kvaddur með viðhöfn þegar hann lauk síðasta vinnudegin- um á Ísafjarðarhöfn síðdegis á föstudag. Halldór lætur af störfum fyrir aldurs sakir og bauð vinum og velunnurum til veislu á hafn- arskrifstofunni af því tilefni. Þangað komu viðskiptamenn hafnarinnar í sem víðustum skilningi þess orðs og héldu upp á tímamótin með Halldóri. Glatt var á hjalla eins og við er að búast þegar Halldór á í hlut og kvöddu ýmsir sér hljóðs til að þakka fyrir samstarfið á höfninni. – kristinn@bb.is Halldór ásamt samstarfsmönnum á höfninni. Guðmundur Kristjánsson, hafnarstjóri, Theódór R. Theódórsson, Theódór Theódórsson, Jónas Finnbogason, Guðrún Guðmannsdóttir, Jóna Símonía Bjarnadóttir, skjalavörður Ísafjarðarhafnar og Hjalti Þórarinsson. Þriðja kynslóð BB vefsins tekin í notkun Þriðja kynslóð bb.is var tekin í notkun með pompi og prakt í Faktorshúsinu í Hæstakaupstað á Ísafirði á laugardag. Eins og lesend- ur bb.is hafa tekið eftir, hef- ur vefurinn tekið veruleg- um breytingum, og í raun verið endurgerður frá grunni, þó skipulag efnis sé í grófum dráttum svipað og verið hefur. Umsjón með breytingun- um hafði Jónatan Einars- son en hann hannaði síð- ustu útgáfu BB-vefsins. Skipt var um grunnkerfi vefsins m.a. til anna síaukinni að- sókn og gera hann léttari í vafri. Framvegis verður hann keyrður á vefumsjón- arkerfinu Lisa.net frá Innn hf. og hýstur hjá Skýrr hf. – kristinn@bb.is Hildur María Halldórsdóttir og Kristín Ósk Sigurjónsdóttir opnuðu vefinn formlega en þær eru dætur Halldórs Sveinbjörnssonar og Sigurjóns J. Sigurðssonar, stofnenda H-prents ehf. sem rekur bb.is. Steingrímur Rúnar Guðmundsson (tv) og Jónatan Einarsson, aðalhönnuður vefjarins. Frá opnunarhófinu í Faktorshúsinu í Hæstakaupstað. 09.PM5 12.4.2017, 09:3314

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.