Bæjarins besta - 03.03.2004, Page 4
MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 20044
Sigurður Gunnar Aðalsteinsson og Kolbrún Elma Schmidt skemmtu sér vel á blótinu.
Sundlaugarblótið fastur lið-
ur í þorrahaldi Súgfirðinga
Sundlaugarblót Súgfirðinga
hefur verið haldið í nokkur ár
og má víst teljast til hefðbund-
inna viðburða nú orðið. Ein-
hverjir tóku upp á því á sínum
tíma að halda þorrablót með
öllu tilheyrandi í sundlauginni
á Suðureyri og voru ekki marg-
ir í fyrstu en fagnaðurinn nýtur
aukinna vinsælda með hverju
ári. Vel viðraði til blóts og
gladdi milt veður og vægur
rigningarúði blótsgesti. Þótti
betur viðra í ár en í fyrra en þá
var mikil snjókoma og töluvert
kalt í veðri, að sögn Valdimars
Hreiðarssonar, sóknarprests á
Suðueyri og eins blótgesta. Til
laugarblóta koma gestir ekki
einungis klæddir venjulegum
sundfötum, heldur svamla þeir
til borðs nokkuð hátíðlega
búnir. Eins og sjá má á mynd-
um Valdimars Hreiðarssonar
skemmtu blótsgestir sér vel í
sundlauginni.
– kristinn@bb.is
09.PM5 12.4.2017, 09:334