Bæjarins besta - 28.05.2003, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
ÚTGÁFAN
ISSN 1670 - 021X
Útgefandi:
H-prent ehf.
Sólgötu 9, 400 Ísafjörður
Sími 456 4560,
Fax 456 4564
Ritstjóri:
Sigurjón J. Sigurðsson,
sími 892 5362, bb@bb.is
Blaðamenn:
Kristinn Hermannsson
sími 863 1623
kristinn@bb.is
Hálfdán Bjarki Hálfdánsson
sími 863 7655
hafldan@bb.is
Ritstjóri netútgáfu:
Hlynur Þór Magnússon
sími 892 2240
hlynur@bb.is
Ljósmyndari:
Halldór Sveinbjörnsson
sími 894 6125,
halldor@bb.is
Ábyrgðarmenn:
Sigurjón J. Sigurðsson og
Halldór Sveinbjörnsson
RITSTJÓRNARGREIN
Beðið eftir Godotbb.is
pú
lsi
nn
fy
rir
ve
sta
n
Sölustaðir á Ísafirði:
Hamraborg, Hafnarstræti
7, sími 456 3166. Flug-
barinn, Ísafjarðarflugvelli,
sími 456 4772. Bónus,
Ljóninu, Skeiði, sími 456
3230. Bókhlaðan, Hafn-
arstræti 2, sími 456 3123.
Bensínstöðin, Hafnarstræti,
sími 456 3574. Samkaup,
Hafnarstræti 9-13, sími 456
5460. Krílið, Sindragata 6,
sími 456 3556.
Lausasöluverð er kr. 250
eintakið m.vsk. Áskriftarverð
er kr. 215 eintakið. Veittur
er afsláttur til elli- og
örorkulífeyrisþega. Einnig
sé greitt með greiðslukorti.
Umboðsaðilar BB:
Eftirtaldir aðilar sjá um
dreifingu á blaðinu á þétt-
býlisstöðum utan Ísa-
fjarðar: Bolungarvík:
Sólveig Sigurðardóttir,
Hlíðarstræti 3, sími 456
7305. Súðavík: Sólveig
Gísladóttir, Arnarflöt 7, sími
456 4106. Suðureyri:
Deborah Anne Ólafsson,
Aðalgötu 20, sími 898
6328. Flateyri: Gunnhildur
Brynjólfsdóttir, Brimnesvegi
12a, sími 456 7752.
Þingeyri: Anna Signý
Magnúsdóttir, Hlíðargötu
14, sími 456 8233.
Ný ríkisstjórn er sest að völdum. Fráfarandi stjórnarflokkum reyndist létt að
brúa gjána sem myndaðist milli þeirra í kosningabaráttunni. Það var þó ekki út-
gjaldalaust fyrir hvorugan flokkinn. Að 15 mánuðum liðnum eftirlætur Davíð
Oddsson Halldóri Ásgrímssyni stól forsætisráðherra. Stóll umhverfisráðherra er
milligjöf í stólaskiptunum.
Málefnasamningur hinnar nýju ríkisstjórnar boðar aukna velmegun og enn betri
lífskjör þjóðinni til handa en hún hefur átt við að búa í góðærinu margrómaða.
Fagnaðarefni ef rétt reynist. Hætt er þó við að ýmsum leiðist biðin þótt ekki væri
nema eftir hluta þeirra loforða, sem flæddu yfir þjóðina í aðdraganda kosninganna.
Beinar skattalækkanir sem almenningi var heitið fyrir kosningar, og flokkana
greindi helst á um, eiga nú að taka mið af almennum kjarasamningum við næstu
áramót. Þetta þýðir einfaldlega að kauphækkanir og skattalækkanir þykja ekki
vænlegar á sama tíma, svo neinu nemi.
Að því er best verður skilið er ASÍ-forystan ánægð með varfærnina í skattamálum.
Virðist sú afstaða stafa af ótta við að skattalækkanir leiði til samdráttar í
velferðarkerfinu. Ef vill er sá ótti ekki ástæðulaus. Verkalýðsforystunni, líkt og
öðrum, er a.m.k. ljóst að utanríkisþjónustunni verður ekki ýtt út á klakann. Þar á
bæ eru margar vistarverur og engum úthýst, sem lent hefur á vergangi stjórnmála.
Hætt er við að skipstjóraskiptin á þjóðarskútunni leiði til þess að velflest stærri
mál verði sett fyrirbrigði sem er kunnuglegt í heilbrigðiskerfinu, biðlista. Vestfirð-
ingar hafa slæma reynslu af framkvæmdabiðlistum. Hvað um yfirlýsingar um upp-
byggingu í Norðvesturkjördæmi sem mótvægi við framkvæmdir í öðrum landshlut-
um? Hver verður framvinda fræða- og háskólaseturs á Vestfjörðum, sem ætlað er
að leiði til stofnunar háskóla á Ísafirði? Og hvað um rannsóknasetur í eldis- og
veiðarfæratækni? Mál af þessu tagi brenna heitt á Vestfirðingum. Þeir vita öðrum
betur að biðin verður að taka enda ef ekki á illa aða fara. Þanþol lopans er takmark-
að.
Nýkjörið Alþingi var sett í fyrradag. Framundan er stutt þing þar sem allt fer
fram samkvæmt hefðinni. Á haustþingi kemur í ljós hvort stjórnarliðið hefur róð-
urinn eða lætur sér nægja að damla með árinni fram til 15. september 2004.
s.h.
Fyrsti hringmyrkvi á sólu hérlendis frá 1793
Sést vel á Vestfjörðum
Fyrsti hringmyrkvinn á
sólu sem sjáanlegur er hér á
landi frá árinu 1793 mun
sjást vel frá norðanverðum
Vestfjörðum aðfaranótt 31.
maí, svo fremi að skýjafar
leyfi. Hringmyrkvi er sól-
myrkvi þar sem rönd af sól-
inni sést allt í kringum tungl-
ið og því er ekki um almyrk-
va að ræða.
Hringmyrkvinn mun sjást
allur fyrir norðan og austan
línu sem dregin er frá Höfn í
Hornafirði að Bíldudal. Verður
hann í algleymi, séð frá Ísa-
firði, um kl. 4.07 að nóttu en
deildarmyrkvi hefst kl. 3.10.
Ætla menn að aðstæður til að
fylgjast með þessu fyrirbrigði
verði góðar á norðanverðum
Vestfjörðum en þar mun tungl-
ið sjást nákvæmlega fyrir
miðju sólar. Þó verður að
huga að því við val á útsýnis-
stað að fjöll skyggi ekki á
sólu.
Á heimasíðu Almanaks
Háskóla Íslands má sjá feril
hringmyrkvans. Hann fer
yfir svæðið á þremur stund-
arfjórðungum frá kl. 03.45
til kl. 04.31.
Hátíðarhöld í tilefni sjó-
mannadagsins verða á Suður-
eyri um næstu helgi. Á laug-
ardag verður kappróður á lón-
inu við bæinn en stærstur hluti
dagskrárinnar fer fram á sjó-
mannadaginn sjálfan. Um
morguninn kl. 10 bjóða út-
gerðarmenn til skemmtisigl-
ingar á smábátum en kl 13.45
verður gengið frá Bjarnaborg,
húsi Verkalýðsfélagsins Súg-
anda, til messu í Suðureyrar-
kirkju.
Klukkan 15.30 hefst
skemmtidagskrá á höfninni.
Þar verður meðal annars keppt
í reiptogi, koddaslag, kapp-
beitningu, kararóðri og kara-
hlaupi.
Um kvöldið verður efnt til
hátíðarkvöldverðar í Félags-
heimilinu á Suðureyri. Húsið
verður opnað fyrir matargesti
kl. 19.30 en rúmum þremur
klukkutímum síðar verður
borðum rutt burt og dansað
við tónlist Halla & Þórunnar.
Sjómannadagurinn á Suðureyri
Kappbeitning
og kararóður
Mikil óánægja með lokun útibús Ísafjarðar apóteks á Flateyri
Afhentu mótmælalista með und-
irskriftum rúmlega 180 íbúa
Auðunsdóttir. „Það eru
ekki allir sem eiga bíl og
sumir eiga erfitt með að
komast yfir á Ísafjörð. Þá
er fólk líka mjög ósátt við
það hversu stuttur fyrir-
varinn var. Starfsmanni
útibúsins var sagt upp á
miðvikudegi og afgreiðslan
rýmd á föstudegi.“
Auk undirskriftalistans
er vitað til þess að Lyfju
hf., eiganda Ísafjarðar
apóteks, hafi borist
mótmæli frá Íbúasamtök-
um Önundarfjarðar og
Lýð Árnasyni, lækni á
Flateyri.
Jónasi Þór Birgissyni,
lyfsala á Ísafirði, var síð-
degis á mánudag afhentur
listi með rúmlega 180
undirskriftum íbúa á Flat-
eyri. Þar er skorað á eig-
endur Ísafjarðar apóteks
að endurskoða þá ákvörð-
un að loka lyfsölunni á
Flateyri. Guðlaug Auðuns-
dóttir og Gróa Haralds-
dóttir afhentu Jónasi
listann, sem þakkaði
kærlega fyrir og sagðist
myndu koma undirskrift-
unum áfram.
„Það neitaði enginn að
skrifa undir enda er mjög
mikil óánægja með þessa
ákvörðun“, segir Guðlaug
Lögreglustjórar og næstráð-
endur þeirra á Ísafirði, í Bol-
ungarvík, á Patreksfirði,
Hólmavík og í Búðardal hitt-
ust á árlegum samráðsfundi
sínum á Ísafirði í síðustu viku.
Helsta mál fundarins var
skipulag löggæslu á Unglinga-
landsmóti UMFÍ sem haldið
verður á Ísafirði í byrjun ágúst.
Búist er við sex til tíu þúsund
gestum á mótið og má því
ætla að mjög mikil umferð
verði um vegi á Vestfjörðum á
þessum tíma. Fundurinn var
tíundi vorfundur embættanna
en sá fyrsti var haldin í Bjarka-
lundi í Reykhólasveit í byrjun
júní árið 1994.
Á fundunum er fjallað um
ýmis löggæslumálefni en sér-
staklega er farið yfir skipulegt
samstarf embættanna í um-
ferðarmálum yfir sumartím-
ann. Síðastliðin tvö ár hafa
embættin einnig haldið haust-
fundi. Þar eru önnur löggæslu-
verkefni rædd en þó sérstak-
lega forvarnamálefni og annað
starf sem tengist æsku landsins
á vettvangi lögreglunnar.
Búa sig undir umferðina kringum unglingalandsmótið
Samráðsfundur nokkurra lögregluembætta á Vestfjörðum og Vesturlandi
Guðlaug Auðunsdóttir og Gróa Haraldsdóttir afhenda Jónasi Þór Birgissyni lyfsala á Ísafirði undirskriftalistann.
21.PM5 18.4.2017, 11:062